Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 16

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 16
stofninum tryggð sú vernd, sem hann þarf að njóta. En reynslan hefur sýnt að stöðugt og strangt eftirlit er nauðsynlegt. Hækkun sektanna hefur liaft nokkur áhrif til bóta, og í ár hefur verið minna um lögbrot en áður, að svo miklu leyti sem vitað er. Enn er það nokkuð algengt, að veitt sé í óleyfi á svæðum annarra manna, einkanlega í vötnum. Skyldu þeir, sem það gera, hafa athugað það, að sá verkn- aður varðar allt að 15 þús. kr. sekt? Þá hefur sá kvittur komist á kreik, að sprengingar hafi verið framdar á tveim- ur stöðum í Borgarfirði í sumar, þótt enn sé ekkert sannað í því efni. Það er mjög áríðandi að þeir menn, sem verða varir við verksummerki, er bent gætu til sprengingar, láti veiðimálaskrifstofuna vita um það. Finnist t. d. dauðir fiskar, sem ástæða er til að ætla að hafi farist af þeim orsökum, ætti að koma þeim strax í kælingu og senda skrifstofunni þá síðar til athugunar. Og síðast en ekki sízt, ættu menn að kæra tafarlaust hvern þann, sem þeir stæðu að slíkum verknaði, og leggja sig í framkróka til þess að ná í sönnunar- gögn gegn þeim, sem grunaðir kynnu að vera um þess háttar glæpapör. ÖNNUR STÖRF SKRIFSTÖFUNNAR. AUK þess sem drepið hefur verið á hér að framan í sambandi við fiskiræktar- framkvæmdir og rannsóknir, fer mikil vinna í allskonar upplýsingastarfsemi og fyrirgreiðslur. Það getur þurft ótrúlega mikla vinnu og fyrirhöfn til þess að svara einni fyrirspurn til hlítar. Kostar slíkt iðulega ferðalög langa vegu, til þess að skoða aðstæður og kynnast öllum mála- vöxtum. Þá fer mikil vinna hjá skrif- stofunni í ýmislegt varðandi félagsmál fiskiræktar- og veiðifélaganna við árnar. Er reynt að fylgjast með starfsemi þeirra eins og unnt er. Ennfremur er unnið að stofnun nýrra félaga um ár og vötn þar sem slík samtök hafa ekki verið áður. Nálægt 50 fiskiræktar- og veiðifélög munu nú vera á landinu. Flest þeirra eru starfandi, en hjá nokkrum hefur starf- semi legið niðri um skeið. Verið er að undirbúa stofnun 5—10 nýrra félaga, sem gert er ráð fyrir að taki til starfa inn- an skamms. Annars tekur slíkt oft ótrri- lega langan tíma og mikið starf áður en það er komið í kring. Af félögum þeim, sem stofnuð hafa verið síðustu árin, má nefna: Félagið við Laxá í Kjós, efri hluta Haukadalsár, Bjarnarfjarðará, Sæmundará, Húseyjar- kvísl, Hvolsá og Staðarhólsá, Laxá ytri í Húnavatnssýslu, Eyjafjarðará o. fl. VEIÐISKÝRSLURNAR. TIL þess að fá sem gleggsta vitneskju um, hvernig veiðin gengur á ýmsum tímum og ýmsum stöðum er nauðsyn- legt að fá sem ítarlegastar veiðiskýrslur. Sveiflur í árferði verka á fiskinn og valda mismun á stærð stofnanna. Af nógu ítar- legum skýrslum er hægt að sjá, hvort á eða vatn fer út úr samhengi við önnur veiðivötn á sama svæði. Á stórum svæð- um á veiðin að fylgjast nokkuð að hlut- fallslega, undir venjulegum kringum- stæðum. Til þess að auðvelda skýrslusöfn- unina er send bók að hverri veiðiá, sem ætlast er til að færð sé rétt og nákvæm- lega. Ennfremur fá bændur sérstök eyðu- blöð fyrir netaveiðina. Því miður geng- ur mjög illa að fá þau til baka sumstað- ar, og sama máli gegnir líka um veiði- bækurnar. Samkvæmt veiðilöggjöfinni eru menn þó skyldugir að hlýða þessum fyrirmælum. Skýrslurnar hafa margvíslegt gildi, eins 14 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.