Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Blaðsíða 23

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Blaðsíða 23
enn í hjólinu, og enn tók rakarinn til fótanna, og þá var 2 punda fiskur á fær- inu. Friðþjófur beitti á nýjan leik, kastaði út og var nú kominn í sólskinsskap, hóf svo stritið enn á ný og streymdi fyndnin af vörum hans. Hann var rétt að kornast fram með hægra eyranu þegar ég sé út undan mér að mín stöng fer að kvika grunsamlega, og heyrði ég brrrrr. Ég rak upp org og þaut á fætur, en um leið slitu klippurnar nokkra tugi hára upp úr hör- undinu. Nú var áreiðanlega stærðar fisk- ur á hjá mér. Hann stökk langt upp úr vatninu. Ég varð ákaflega skjálfhentur og óöruggur, enda fór allt slysalega hjá mér. Þetta var ýkjulaust 6—8 punda dólgur, og lét mjög illa. Endaði sá leikur með því, að hann sleit fyrir mér girnið. Ég lagði stöngina frá mér vonsvikinn og niður- lútur. Við tókum síðan til að nýju og Friðþjófur beitti skærunum og greiðunni af mikilli leikni, sem hans var von og vísa. Þetta var nú að taka enda, en ekki lokið, því enn rauk hjólið og línan af stað með feikna hraða lijá Friðþjófi. Ætlaði þessi andsk......klipping aldrei að taka enda? Nú var stór fiskur á stönginni. Ég gat ekkert annað gert en horfa á. Ég hafði ekki einu sinni rænu á að setja nýjan öng- ur á hjá mér og reyna líka — stóð aðeins eins og hálfklipptur hálfviti og horfði á viðureignina, sem endaði á þann veg, að Friðþjófur landaði þarna 6 punda hnöttóttum sjóbirtingi og var nú orðinn ofsakátur. Hann lauk svo við verkið með mikilli prýði, eftir því sem ástæður leyfðu, og hugði nú gott til veiða. En veiðigyðjan er duttlungafull eins og tví- tug yngismær. Við reyndum þarna allar hugsanlegar veiðiaðferðir og klæki, sem við kunnum, en engin sjáanleg hreyfing á beitunni. Jæja. Við fórum svo heim hvor í sínu lagi að áliðnum degi, ég með snoðklipptan haus og öngulinn aftan í mér, en Friðþjófur með dágóða veiði og skemmtilegar endurminningar. En ef þú, lesandi minn, tortryggir þessa sögu, þá gakk þú um hjá Friðþjófi rakara og láttu hann gera aðgerð á kollinum á þér og segja þér söguna betur. Ól. Þorl. „KANNIBALI“. Þriggju punda bleikja, 5S cm. liing, með ca. y2 pd. bleikju, 27 cm. langa, uppi í scr. Veidd i Reyðarvatni. Rdnfiskurinn og fórnardýrið. Stóra bleikjan var langur og ófrýnilegur horslúpur. 21 Veidimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.