Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 33

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Side 33
að sjálfsögðu mest á formanninum. — Á fyrsta áraíugnum eftir gildistöku lag- anna frá 1932 var t. d. nrikið starf fólgi'ð í því, að ákvarða árósa og semja arðskrár fyrir hin nýstofnuðu fiskræktar- og veiði- félög víðsvegar um landið. Var Pálmi Hannesson oft fenginn til þessa vanda- sama og tímafreka starfs. Tók hann m. a. þátt í að semja arðskrá fyrir Fiskræktar- og veiðifélag Árnesinga, sem var stærsta lélag sinnar tegundar hér á landi. Föstu veiðiyfirmati var komið á árið 1941 og var Pálmi skipaður matsmaður við það. Átti liann sæti í því til æviloka. Þegar núgildandi veiðilöggjöf hafði verið í gildi rúma þrjá áratugi, þótti rétt að taka hana til endurskoðunar, enda voru þá aðstæður í veiðimálum mjög breyttar frá því, er löggjöfin var sett. Sumarið 1954 skipaði þáverandi land- búnaðarráðherra, Steingrímur Steinþórs- son, milliþinganefnd til að framkvæma endurskoðunina, og var Pálmi Hannes- son formaður nefndarinnar, eins og sjálf- sagt var. Þótt Pálmi Hannesson gengi þá ekki heill til skógar, vann hann mik- ið í þeirri nefnd, og kom reynsla hans og víðtæk þekking á veiðimálum að góðu haldi. Nefndin skilaði áliti í frumvarps- formi vorið 1955. Þrátt fyrir mikið annríki við umsvifa- mikil störf á öðrum sviðum, vannst Pálma Hannessyni tími til að framkvæma nokkr- ar vatnarannsóknir. T. d. merkti hann árið 1927 rúmlega 500 nrurtur í Þing- vallavatni, með silfurnælum, í þeim til- gangi að komast eftir, hvort murta væri sérstakt afbrigði af bleikju. Sumarið 1930 rannsakaði hann Kleifarvatn og skrifaði grein um þessar rannsóknir í Náttúrufræðinginn 1941. Þá skrifaði hann dagbækur yfir athuganir sínar á ferðalögum um landið, og er í þeim að finna margháttaðar upplýsingar um veiðivötn og fiskinn í þeirn. Á sviði veiðimála hefur Pálmi Hann- esson skilið eftir sig mikið og merkt starf. Hin ágæta skipan þeirra mála svo og heillavænleg mótun í þrjá áratugi er honuin meira að þakka lieldur en nokkr- um einum manni öðrum. Þór Guðjónsson. ★ TVEIR kennarar nrínir eru nrér lrug- stæðastir, þótt ólíkir væru um margt. Annar þeirra er Pálmi Hannesson. Eftir 30 ár er nrér enn í skýru minni, sem skeð hefði það í gær, þegar hann snaraðist inn í kennslustofuna okkar á Akureyri í fyrsta sinn, gustnrikill og frjálsnrannlegur, ínrynd þeirrar lrreysti og glæsimennsku, sem allt ungt fólk dáir. Það fylgdi lronum einhver lrressandi andblær, senr strauk af augunr okkar morgundrungann, svo að við glaðvöknuðum öll. Hann lrafði ekki sagt við okkur nema nokkur orð er hann átti hug okkar allra. Og þegar lrann fór að kenna, opnaði lrann okkur strax nýjan heinr í fögunr sínunr. Hanrr kunni þá list, að lýsa viðfangsefninu og skýra það á þann veg, að allir hlutu að skilja. Og síðast en ekki sízt var hann vinur okkar og félagi, sem leit á brek okkar og barnaskap nreð augunr lrins ritra og þroskaða nranns. Ástsæld lrans senr kennara var óvenjulega nrikil, enda unr flest óvenjulegur nraður. Pálnri Hannesson var, sakir frábærs atgervis og nrannkosta, einn þeirra per- sónuleika, senr nrættu styrkja þá trú, að maðurinn iiljóti að lifa, þótt lrann deyi. Víglundur Möller. Vi.im.MAm;RiN\ .31

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.