Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Blaðsíða 82
AFMÆLISNÝJUNG SAMVINNUTRYGGINGA
Heimilistrygging
Samvinnutryggingar munu í tilefni tíu ára afmælis síns hefja nýja
tegund trygginga, sem kölluð er heimilistrygging, og er við það sniðin
að veita heimilum sem víðtækast og fullkomnast öryggi. Heimilis-
trygging mun ná til bruna, sprengingar, tjóns af eldingu, tjóns af hrapi
flugvélar eða flugvélarhluta, vatnsleiðsluskaða, innbrota og annars
þjófnaðar, snjóflóða, stuldar bamavagns eða reiðhjóls, tjóns á far-
angri, þjófnaðar af mönnum í hótelherbergjum eða þjófnaðar yfir-
hafna á veitingastað, og loks verður innifalin ábyrgðartrygging (t. d.
ef böm valda tjóni) og væntanlega slysatrygging húsmóður.
Þessi nýja trygging verður nánar auglýst innan skamms, þegar hún
hefst, og ættu allir heimilisfeður þá að kynna sér rækilega skilmála
hennar og það öryggi, sem henni er samfara.
saimi-vn NMTDTTiœrsr© ©nwcaiSJE
Umboðsmenn um land állt.