Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 37

Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Page 37
með spánýja flugustöng, en í fyrstu köst- unum festi ég fluguna í bakka aftan við mig, án þess að veita því eftirtekt, og braut svo stöngina í framkastinu. Þarna hefði ég verið illa settur, ef Guð- mundur hefði ekki haft stöng aflögu, sem hann lánaði mér. Eitt sinn voru þeir með okkur, Þorkell Jóhannesson prófessor og Erlingur Þor- steinsson læknir, mágur minn, en Þorkell var löngum veiðifélagi okkar og mikill vinur Guðmundar, enda báðir einkar vinfastir. Vöknuðum við árla morguns í hráslaga veðri, og varð ég fyrstur til þess að fara út úr tjaldinu og hita kaffí, en þegar ég ætlaði að hella olíu á prím- usinn, fann ég enga trektina. Meðan ég var svo að fjargviðrast út af þessu, þá rumskar Guðmundur í poka sínum og rymur í honum: „Bíddu svolítið, ætli ég hafi ekki trekt hérna á mér.“ Og viti menn, eftir að hafa þuklað og þreifað um sig allan, kom hann með trektina upp tir einum vasa sínum. Þá var það einu sinni sem oftar, að við Guðmundur vorum einir saman að veiðum í Soginu, fyrir Bíldsfellslandi. Höfðum við Italdið okkur á neðra svæð- ínu síðari hluta laugardags og fyrri hluta sunnudagsins, en veiði var í tregasta lagi. Ég stakk því upp á því við Guðmund, að við skyldum skreppa upp að Sakkar- hólma og reyna þar, en Guðmundi fannst tíminn of naumur, því við ætluðum heim þá um kvöldið, en upp að hólmanum var um 40 mínútna gangur hvora lei'ð. Það varð þó úr, að ég fór einn upp eftir, fékk engan laxinn, en var þrjár klukku- stundir í ferðinni. Þegar ég kom aftur, var Guðmundur á stjái á árbakkanum, farinn úr vöðl- unum og kominn í inniskó og sýnilega ekki í bráðum veiðihug. Ég sagði hon- um frá minni ferð og innti hann síðan eftir því, hvort hann hefði nokkuð veitt. Guðmundur anzaði því lítt, en var mjög þungbúinn á svip og auðsjáanlega mikið niðri fyrir. Ég spyr hann því, hvort hann hafi nokkuð meitt sig, en hann sagði það ekki vera. Mér datt þá í hug, að ef til vill liefði eitthvert slys orðið hjá veiði- mönnunum hinum megin árinnar og krafði hann því svars umsvifalaust, hvort nokkuð hefði komið fyrir. „Nei, ekki var það, ekki beinlínis, og þó eiginlega, en það má kannske telja það bæði slæmt og gott.“ Mér varð nú rórra, en er ég sá fram á það, að sagan mundi ekki koma alveg umbúðalaust, settist ég niður og fékk mér kaffisopa, en Guðmundur settist hjá mér og fékk sér duglega í nefið. „Jæja, hvernig var það, veiddirðu nokkuð?“ „Líklega hef ég í dag bjargað þessu vatni frá því versta, sem fyrir gat komið.“ „Og hvernig fórstu að því?“ „Ég veiddi lax, ef lax skyldi kalla.“ „Var hann svona lítill?“ „Lítill og lítill ekki, en ég bjargaði áreiðanlega Soginu með því að draga hann.“ „Hvernig þá það?“ „Það getur hver sagt sér sjálfur, þegar hann sér hann.“ „Láttu mig þá sjá gripinn." „Hann er þarna í læknum — og lif- andi.“ „í læknum? Ertu vitlaus, maður? Hann syndir strax út í á.“ „Nei, hann fer ekki langt. Ég gekk svoleiðis frá lionum, að það er öruggt.“ VWCIMAÐURINN 35

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.