Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
2 0 2 3
KYNN INGARBL
AÐALLT
ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2023
Feðgarnir Gísli Ásgeirsson og Óskar Hængur Gíslason eru báðir með ólæknandi veiðidellu og miklir náttúruunnendur.
MYND/AÐSEND
Litirnir falla inn í umhverfið og
náttúran fær að njóta sín
Veiðihúsið Fossgerði við Selá á Norðausturlandi er eitt fegursta veiðihús landsins. Gerðar
hafa verið gagngerar endurbætur á húsinu innanhúss, það stækkað og klárað að fullu á
metnaðargjarnan og vandaðan hátt í anda umhverfisins og af virðingu fyrir náttúrunni. 2
Bleikjan er feitur fiskur og er auðug
af D-vítamíni og fitusýrum.
gummih@frettabladid.is
Það efast enginn um að fiskur er
holl matvara og fólk ætti helst að
vera með fiskmeti í matinn tvisvar
til þrisvar sinnum í viku sem
aðalrétt. Það er mikið af próteini í
fiski og ýmis önnur næringarefni
má finna í honum, ekki síst joð en
joðskortur er eitt stærsta lýðheilsu-
vandamál landsins.
Feitur fiskur er auðugur af D-
vítamíni og ómega-3 fitusýrum
en þessi næringarefni eru í fáum
öðrum matvælum en sjávarfangi.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
regluleg neysla á feitum fiski getur
dregið úr líkum á hjarta- og æða-
sjúkdómum. Æskilegt er að ein af
fiskmáltíðunum sé feitur fiskur
og það getur verið lax, bleikja,
lúða eða makríll. Fiskur er ekki
einungis hollur heldur er hann líka
fljótlegur í matreiðslu.
Nokkur hollráð um fiskneyslu
n Prófa mismunandi aðferðir við
að matreiða fiskinn. Hægt er
að sjóða, gufusjóða, steikja eða
grilla fisk eða baka í ofni með
grænmeti og kryddjurtum.
n Nota hvert tækifæri til að fá sér
fisk, til dæmis í mötuneytinu á
vinnustaðnum eða þegar farið
er út að borða.
n Nota fisk eða skelfisk sem álegg
á brauð, í salöt, súpur og smá-
rétti.
n Nota afganga af fiskréttum í
salöt, plokkfisk eða sem tor-
tillufyllingu. n
Er hollur og
fljótlegur að elda
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20
4 6 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R |
LíFið | | 24
tímamót | | 18
íþróttir | | 20
Helgi Þorgils
fagnar stórafmæli
Klikkuð söngkona
segir Langi Seli
Þ R I ð J U D A g U R 7 . m A R S|
Lofthæð hellisins, þrír
til sex metrar, vekur
sérstaka athygli.
Langur og djúpur hellir undir
Jarðböðunum í Mývatnssveit
uppgötvast fyrir tilviljun.
Rannsóknarleiðangur verður
farinn á næstu dögum.
bth@frettabladid.is
NáttúRA Stórmerkur hellir, sem
heimamenn líkja við náttúruundur,
fannst fyrir tveimur vikum við jarð-
vegsframkvæmdir vegna nýbygg-
ingar Jarðbaðanna í Mývatnssveit.
Hellisopið er nálægt núverandi
útiklefum baðanna. Há lofthæð
hellisins, þrír til sex metrar, vekur
sérstaka athygli.
Starfsmenn Jarðbaðanna hafa
forskoðað hellinn. Er áætlað að
hellirinn sé um 12 metra djúpur frá
opi. Hann opnast til vesturs allt að
100 metra og teygir sig tugi metra til
austurs. Allt önnur jarðlög virðast
undir böðunum en áætlað hafði
verið og hafa Jarðböðin tilkynnt
hellafundinn til Umhverfisstofn-
unar.
Er stefnt að rannsóknarleiðangri
í næstu viku.
Segir Guðmundur Þór Birgisson,
framkvæmdastjóri Jarðbaðanna, að
um sé að ræða mjög merkan fund.
Undir það tekur Jóhann Friðrik
Kristjánsson verkfræðingur, sem
hefur fengið umboð landeigenda
til að slást í för með vísindamönn-
unum.
„Þetta er æsispennandi,“ segir
Jóhann.
Ótrúlegar tilviljanir leiddu til
þess að hellirinn fannst. sjá síðu 10
Nýtt náttúruundur fundið
Staðsetning hellisins þykir með miklum ólíkindum en hann fannst fyrir tveimur vikum. mynd/aðsend
ER Á REYKJAVÍKURVEGIÍ HAFNARFIRÐI
LÆGSTA VERÐIÐ
Í F FIRÐI E E I
I
Hetjan
í Lyngby
ORKUmáL Nær tveir þriðju hlutar
aðspurðra í könnun Gallup eru
fylgjandi frekari virkjanafram-
kvæmdum hér á landi.
Aðeins fimmtungur er andvígur
frekari virkjanaframkvæmdum.
Þrír af hverjum fjórum telja að
virkjanir Landsvirkjunar hafi haft
jákvæð áhrif á íslenskt samfélag.
Þetta hlutfall er enn hærra þegar
fólk í nærsamfélagi virkjana er
spurt, en algengt er að yfir 80 pró-
sent heimafólks telji áhrif virkjana
jákvæð.
Þá telja nær níu af hverjum tíu
Landsvirkjun skapa mikil verðmæti
fyrir íslenskt samfélag.
Ársfundur Landsvirkjunar er í
dag og þar verða niðurstöður könn-
unarinnar kynntar nánar. sjá síðu 6
Ánægja með
Landsvirkjun
Aðeins fimmtungur er andvígur
frekari virkjunum.
DÓmSmáL Sakborningarnir fjórir í
stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar
játa aðild að málinu en segjast hins
vegar aðeins vera peð í stóra sam-
henginu. Einn sakborninganna
sagði í skýrslutöku við héraðsdóm
að enginn mikilvægur maður hefði
verið dreginn fyrir rétt í málinu.
Fjórmenningarnir eru sakaðir um
innflutning á um hundrað kílóum af
kókaíni og um peningaþvætti upp
á tæplega 63 milljónir króna. Allir
fjórir segja sinn þátt í málinu óveru-
legan og segjast ekki hafa gert sér
grein fyrir umfangi eiturlyfjasmygls-
ins. Lögreglan telur innflutninginn
hafa verið þaulskipulagðan og að
hver hinna ákærðu fyrir sig hafi haft
sitt hlutverk.
Vitnaleiðslum fyrir héraðsdómi
lauk í gær og þar með var fjölmiðla-
banni á umfjöllun úr réttarsalnum
jafnframt aflétt. Munnlegur mál-
flutningur fer fram á miðvikudaginn
næstkomandi og dómsuppkvaðn-
ingar er að vænta innan fjögurra
vikna frá þeim degi. sjá síðu 8
Segjast peð í stóra
kókaínmálinu
Orðið betra að
keppa í Eurovision
LíFið | | 24