Fréttablaðið - 07.03.2023, Page 11
Ríkisstjóri Flórída, Ron DeSantis, kynnti á sunnudag nýja bók sína í Air Force One-skálanum í bókasafninu sem
kennt er við Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. DeSantis þykir líklegur til að gefa kost á sér sem
forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins. Fréttablaðið/Getty
Hátíð húðflúra á andlega sviðinu fór fram í Nakhon Pathom í Taílandi.
Þangað mætti áhugafólk til að fá hið helga húðflúr Sak Yant og vera viðstatt
trúarathafnir búddamunka. Sumir féllu í trans og hermdu eftir dýrum sem
flúruð höfðu verið á húð þeirra.
Ungir loftslagsaðgerðasinnar létu til sín taka í Róm á Ítalíu. Var aðgerð þeirra hluti af hinu alþjóð-
lega skólaverkfalli fyrir loftslagið sem fram fer á föstudögum.
Herkúlesflugvél
svífur um loftin
með miklu
sjónarspili á
alþjóðlegri flug-
sýningu í Avalon
í Ástralíu. Sögðu
skipuleggjendur
mikla fjölgun í
hópi þátttak-
enda frá síðustu
sýningu sem
haldin var árið
2019. Sýningin
nú er haldin á
tímum vaxandi
hernaðarlegrar
spennu í Asíu og
Kyrrahafinu.
Úkraínumenn úr
tíunda fjalla-
herfylkinu hlífa
eyrunum er
þeir skjóta af
122 millimetra
fallbyssu í átt
að hersveitum
Rússa í Don-
etsk- héraðinu
í austurhluta
landsins.
ástand heimsins |
Fréttablaðið fréttir 117. mars 2023
ÞriÐJUDAGUr