Fréttablaðið - 07.03.2023, Síða 30
Baldur gerir upp Berlínarárin á nýrri þröngskífu. Fréttablaðið/anton brink
Tónlistarmaðurinn og upp-
tökustjórinn Baldur sendi á
dögunum frá sér lagið Damn
it, sem er fyrsta stuttskífan af
fjögurra laga þröngskífu sem
væntanleg er á næstu dögum.
Hann segir að erfitt sé að
staðsetja tónlistina í íslensku
senunni en það sé í góðu lagi.
ninarichter@frettabladid.is
Baldur Hjörleifsson hefur unnið við
tónlist alla sína ævi. Hann lærði upp-
tökustjórn í Berlín og nýtir námið
vel, ekki eingöngu á sviði tónlistar
heldur einnig í hljóðbókafram-
leiðslu sem hann sinnir meðfram
tónlistinni, en hann sinnir upptöku
og framleiðslu fyrir Storytel og fleiri
aðila. Námstíminn í Berlín er einmitt
yrkisefnið sem um ræðir á Damn it.
Erfitt tímabil í Berlín
„Fræið að þessu lagi varð til í Berlín
fyrir nokkrum árum. Þetta er svona
svolítið úrvinnsla frá þeim tíma,“
segir Baldur. „Ég gekk í gegnum svo-
lítið erfitt tímabil í Berlín á sínum
tíma þar sem mér fannst ég vera svo-
lítið staðnaður,“ segir hann.
Baldur segist hafa glímt við mik-
inn kvíða á þeim tíma. „Þetta lag
er um þá tilfinningu að vera áhorf-
andi, en finnast maður vera á skjön
á meðan tækifærin geysast fram
hjá manni, og tíminn. Að dæma sig
hart, en finna samt einhver þægindi í
þessu lærða bjargarleysi,“ segir hann
hugsi. „Þetta er gamalkunn rulla sem
maður kann einhvern veginn. Þetta
er þannig. En svo er textinn meira
abstrakt.“
Að sögn Baldurs einkennist tón-
listarpródúksjón gjarnan af eins
konar bútasaums-ferli. „Örn Eldjárn
spilar inn bassa, ég fæ Tuma Árna-
son til að spila inn saxófónsóló og
Höskuld Eiríksson til að spila inn
trommur. Þetta gerist á löngum
tíma,“ segir hann.
Baldur var undir áhrifum frá
bandaríska pródúsernum J Dilla
heitnum, þegar hann samdi lagið.
„Ég var að hlusta mikið á hann á
þessum tíma. Hann er að vinna með
svona höktandi takta og mér fannst
það ríma vel við þetta „mindset“,
þetta skjögrandi element.“
„Eins og ég sé svolítið að skjögra
inn í þetta sólóverkefni,“ segir Baldur
og hlær. „Þetta er svona skjögrandi
ráðaleysi.“
Húmoristi í Antwerpen
Bróðir Baldurs, Árni Jónsson, leik-
stýrði áhrifaríku myndbandi við
lagið. „Hann er myndlistarmaður
og er að klára mastersnám í Ant-
werpen í Belgíu. Hann er svo mikill
húmoristi í sinni list og þetta verður
svona fullkomin synergía okkar á
milli. Hann skilur tilfinninguna í
laginu og er með þessa hugmynd
sem við útfærum síðan saman. Ég
er svolítið svona, mér finnst vídeóið
og lagið hanga mikið saman,“ segir
hann.
„Þetta er ekki endilega mjög
aðgengilegt lag. Þetta er smá ringul-
reið og meiri eins og kynning á þess-
um hljóðheimi. Svo ætla ég að fylgja
þessu eftir með meiri popplögum,“
segir hann. „Ég ætla að reyna að gefa
út næsta lag í lok apríl og annað lag
aftur í lok maí.“
Baldur segist eiga erfitt með að
staðsetja sig innan íslensku popp-
senunnar. „Ég hef verið í alls konar
kollektífum og samstarfi við Her-
dísi Stefáns, Brynju, hljómsveitina
Ryba og Flesh Machine. Ég er ekki
læs á þetta bransaumhverfi, bein-
línis. En mér finnst eins og eigin-
lega enginn sé læs á það, ekki einu
sinni bransafólkið. Það veit eigin-
lega enginn hvað er í gangi, sem er
frelsandi líka.“
Konur að gera besta efnið
Baldur segir að í íslensku senunni
séu konurnar að gera langbestu
tónlistina. „Það er meira rokk og
pönk að brjótast upp á yfirborðið,
ekki samt með þessum gömlu for-
merkjum. Það er allt leyfilegt og öllu
hrært saman. Mér finnst mitt verk-
efni vera lýsandi fyrir það móment
núna. Ég hef oft haft miklar áhyggj-
ur af því að það sé engin samfella
í gegnum það sem ég er að búa til
vegna þess að suma daga vil ég vera
„singer-songwriter“ og aðra daga
vil ég gera hart elektró-punk, svo
er sækadelía. Þetta verkefni er að
umvefja það, að þetta má bara vera
svolítið random,“ segir hann.
„Aðrir eru kannski næmari en ég
á rauða þráðinn og leiðarstef, frekar
en maður sjálfur. Þarna er ég að
reyna að sigrast á þessu óöryggi. Ég
er bara í mörgum mengjum og það
er allt í lagi.“
Lagið Damn it má nálgast á Spot-
ify, myndbandið er aðgengilegt á
YouTube. n
Baldur skjögrar í sólóferil
KviKmyndir
Cocaine Bear
leikstjórn: Elizabeth Banks
leikarar: Keri russell, Alden
Ehrenreich, O'Shea Jackson Jr.,
ray Liotta
Arnar Tómas valgeirsson
Þótt B-myndir taki sig ekki of hátíð-
lega þá geta þær verið stórskemmti-
legar eða jafnvel mjög góðar, eins og
The Evil Dead eða Texas Chainsaw
Massacre hafa sýnt okkur. Í versta
falli á áhorfandinn að geta skemmt
sér yfir vitleysunni í f lippaðri hug-
mynd eins og hvað myndi gerast ef
útúrkókað bjarndýr myndi ráðast
á fólk.
Það er einmitt, eins og titillinn
gefur til kynna, söguþráðurinn
í Cocaine Bear. Myndin byggir
(mjög lauslega) á sannri sögu þar
sem smyglflugvél full af eiturlyfjum
hrapaði í óbyggðum og björn nokk-
ur komst í feitan farm af kókaíni. Sá
björn drapst skömmu síðar en hér
er björninn sprelllifandi, kókaður
og mannýgur. Ansi banvænn kok-
teill.
Á blaði hljómar Cocaine Bear
eins og hugmynd sem getur ekki
klikkað fyrir áhorfendur sem eru að
leita sér að skemmtilegri vitleysu.
Því miður er útkoman ekki nógu
góð. Þótt Cocaine Bear eigi sína
spretti í tveimur til þremur atrið-
um þá hittir húmorinn ekki nógu
oft í mark. Flest drápin sjást ekki
einu sinni í mynd og undir lokin
er myndin orðin furðulega drama-
tísk og hreint út sagt leiðinleg, sem
er versti hlutur sem B-mynd getur
nokkru sinni orðið. Björninn er þar
að auki oft heldur rólegur og alls
ekki jafnkókaður og hann hefði átt
að vera.
Kvikmyndastúdíóið Asylum,
sem hefur gefið okkur skemmti-
legar en ferlegar myndir á borð við
Sharknado-seríuna, hefur nú lofað
að svara myndinni með sínu eigin
útúrdópaða rándýri í Meth Gator.
Vonum að þar takist betur til. n
NIÐURSTAÐA: Flöt útfærsla á
skotheldri hugmynd. Björninn
hefði mátt vera mun kókaðri.
Hvimleiður hveitibjörn
Ég er ekki læs á þetta
bransaumhverfi,
beinlínis. En mér
finnst eins og eiginlega
enginn sé læs á það,
ekki einu sinni bransa-
fólkið.
Baldur Hjörleifsson
Þegar kemur að útúrkókuðum óargadýrum þá eru kollegar björnsins í
naustinni um helgar mun ógnvænlegri. mynd/SkjáSkot
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON YLFA MARÍN HARALDSDÓTTIR ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON (LADDI)
ANDREA ÖSP KARLSDÓTTIR VIKTOR MÁR BJARNASON KOLBRÚN MARÍA MÁSDÓTTIR
ÁRNI BEINTEINN SELMA LÓA BJÖRNSDÓTTIR VILLI NETÓ
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023
ÞRiðJUDAGUR