Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 3

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 3
SVFR Veiðimaðurinn 40. árg. Nr. 115 Málgagn stangaveiðimanna Ágúst 1984 Ritstjórar: Víglundur Möller og Magnús Ólafsson Uppsetning og útlit: Rafn Hafnfjörð Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavíkur Afgreiðsla: Háaleitisbraut 68, 105 Reykjavík, sími 686050 Kemur ut: Apríl, ágúst, desember Ettirprentun: Aðeins með leyfi útgefanda Setning og prentun: LITBRÁ-offset Verð: Kr. 100 Dag skal að kveldi lofa Þegar e'g fór að hugsa um hvað segja skyldi í þessari svokölluðu forustugrein Veiðimannsins, kom mér að sjálfsögðu fyrst í hug laxveiðin eins og hún hefur gengið það sem af er veiðitímanum og hvað framundan muni vera. I því sambandi datt mér í hug fyrri helmingur vísu, sem ég hef kunnað lengi, en hann er á þessa leið: ,,Það endar verst sem byrjar bezt/og byggt er á mestum vonum.“ Það er almannarómur, að veiðin hafi byrjað mjög vel þetta árið, einkum íþeim ám, sem hún hófst snemma í júní. En sú dýrð stóð ekki lengi, sem kunnugt er. Afturkippur kom fljótlega svo um munaði, og þótt mánuður, og sumstaðar vel það, sé eftir af veiðitímanum, þegar þetta er skrifað, er ósennilegt, að von sé á stórum göngum héðan afí sumar. Ekki er heldur útlit fyrir, að þcer ár, sem lélegastar hafa verið undanfarin ár, œtli að skána neitt að þessu sinni. Menn voru vitaskuld mjög bjartsýnir fyrstu vikurnar meðan vel veiddist og lifðu jafnvel lengur í voninni um að aftur mundi úr rcetast, eftir að veiðin varfarin að dvína, en fcestir munu, eins og komið er, halda í þá von lengur. Það er gömul reynsla, að lax gengur víða snemma, þegar vor hafa verið hlý, en seinna, þegar þau hafa verið köld. En þótt lax komi snemma, þegar vel hefur vorað, er það engin trygging fyrir því, að áframhaldið verði eins gott, þegar frá líður. Um það má eflaust finna dæmi, sem trúlegt er að einhverjir gamalreyndir veiðimenn muni. Reynslan hefur löngum verið sú, a.m.k. víðast hvar, að eftir júlílok er ekki að vænta teljandi aukningar við þann lax, sem þegar er genginn í árnar. Menn verða VEIÐIMAÐURINN 1

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.