Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 8

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 8
ina, sem ég hafði ekki tíma til að yfirgefa. Hélt hann vel í fluguna, sveigði fagurlega grafítstöngina, fékk sér nokkra sundspretti með tilheyrandi fallegum stökkum, og í því hæsta gapti ég af hrifningu, gleymdi mér, og hann sleppti flugunni með bros á vör. Þá byrjuðu stigasmiðirnir aftur að vinna. Dagurinn var á enda, og sæluþreyta mæddi mig á leiðinni heim í veiðikofann Flúðabakka. Morguninn eftir átti ég að byrja í Hjónahylnum, en félagi minn og faðir neðan til í ánni. Klukkan 8 var ég kominn upp á hleinina, en skuggi var þá á sjálfum hylnum. Ennþá var alskýjað, en sunnan- gola, og hiti þá þegar f4°. Ekki sá ég eins vel í hylinn. Þriðja flugan þennan dag var Blue charm nr. 8, tvíkrækt. I öðru kastinu var hún hremmd niðri á brotinu. Strax kom heljarrumur upp úr vatninu með fluguna í kjaftvikinu. Eg náði að komast niður í fjöruna og stóð nú betur að vígi en daginn áður. Glímdum við nokkuð jafnt um tíu mínútur, og mátti ekki á milli sjá, hvor hefði. Skyndilega tók hann á rás upp hylinn, milli hleinsins og bergveggsins niður á dýpið, upp á yfirborðið, snarsnéri sér þvert og sleppti flugunni i miðju stökki. Nokkur sársauki fylgdi þessari gjörð konungsins. Var þetta sá sami og daginn áður? Kom nú 29. ágúst, en þá átti ég fyrripart í Fnjóská. Veðrið var indælt, heiðskírt, logn og f0° hiti. Eg byrjaði ofantil á III. svæði árinnar. Hóf ég að kasta á svonefndri Þvergarðs- breiðu, sem er breið og allstraumþung, með ál við austurlandið, og hefur gefið mér margan stóran lax. Eg er vanur að veiða frá vesturlandinu úr miðri á, en óð nú breiðuna neðst og hóf að kasta á austur- bakkanum rétt ofan álsins, kl. 8.30. Þriðja flugan var Blue charm nr. 8, tvíkrækja, sú sama og ginnti höfðingjann í Hjónahylnum. Lax tók fluguna snarlega, og landaði ég fljótlega vel legnum fimm punda laxi. Ffeiri gáfu sig ekki þar. Hélt ég nú að stað, sem fítið er reyndur og heitir Litlabreiða. Ain var frekar lítil og tær eins og venjulega. Veiðistaðurinn er fremur lítill, eins og nafnið segir, og verður tif þar, sem áin tekur sveig í austur og strengir svo á sér og veltir til baka yfir stóra steina og lygnir sér því næst með austurlandinu, en heldur strengnum að vestan. Dýpið er mest neðan steinanna. Ég óð varlega út í rúmlega miðja ána efst við dýpið og var þá varla meira en 10 m frá austurbakkanum. Hnýtti ég nú Sweep nr. 8, tvíkrækju, á girnið og hóf veiðina. Kastið var stutt og flugan snerti vatnsflötinn fimm metrum þvert niður frá mér, og silfurglampi hrifs- aði hana á fullri ferð og sveif í stórum boga og skellti sér í botninn. Ég beið. Ekkert gerðist í fímm mínútur. Þá kom gafsi í laxinn og hann notaði vel veiðistaðinn, rásaði upp og niður, austur og vestur, og stökk á milli. Ég var á nálum, enda sannfærður um, að hér hefði ég sett í bikarlax sumarsins, 15-18 pund. Eftir um /i klst. fór ég að þreytast og hafði þá nálgast bakkann, en þar var komin góð grasrót ofan á malarhrönglið og auð- veldara að fóta sig. Hafði mér og tekist að beina til mín tveim 11 ára guttum, er með mér voru, syni mínum og vini hans, sem fylgja mér oft. Var ég nú farinn að taka á laxinum, og hann hafði róast þarna á grynnra vatninu. Skyldi nú sýna drengjunum veiðihæfi- leikana með orðum og athöfnum. Var 6 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.