Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 11

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 11
Eyjólfur Ágústsson Ævintýr í Vatnsdalsá Þetta er saga um veiðiferð í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Við vorum þrír, veiðifélag- arnir, Sigurður bróðir minn, Oskar vinur minn og ég, og áttum saman tvær stengur í tvo daga. Þetta mun hafa verið árið 1971 eða 1972. Þegar dregið var um veiðisvæði, kom í okkar hlut að byrja á 3. svæði, sem er efst, og nær frá Hofi og upp úr, þ.e.a.s. upp að Dalfossi í Vatnsdalsá og upp að gljúfrum í Alftarskálará (Alku), en á þessu svæði eru tvær stengur. Við félagarnir ókum sem leið liggur inn dalinn og litum við hjá öðlingnum Lárusi i Grímstungu. Síðan var ekið að efsta bænum í dalnum, Forsæludal. Þar fengum við leyfí til að aka upp túnið, áleiðis að Dalfossi. Þetta er stærsti fossinn í Vatns- dalsá, og lengra kemst laxinn ekki. I hylnum undir Dalfossi lenti ég í dálitlu ævintýri. Eg renndi 30 gramma hvítum Toby í hylinn. Ég kastaði honum tvisvar eða þrisvar, en svo varð ég kærulaus, því að ég hélt, að enginn fiskur væri í hylnum, og í næsta kasti kippti ég spæninum upp úr vatninu, þegar hann var tvo eða þrjá metra frá landi. Þá sá ég, að stórlax hafði elt spóninn. Hver veit nema eitthvað hefði gerst, ef ég Eyjólfur Ágústsson hefði dregið spóninn alveg að landi? Já, þetta var stórlax! Hann þurfti þrjár eða fjórar atrennur til að snúa sér út í hylinn aftur. Ég held, að hann hafi séð mig. Ég reyndi í um það bil stundarfjórðung, en varð einskis var. Síðan fórum við niður að Stekkjarfossi. Þar veiddi Sigurður bróðir minn sjö punda lax. Oskar vinur minn setti líka í lax. Sagði hann okkur, að þetta væri stórlax. Við fylgdumst með Oskari og trúðum því, að hann væri með stórlax á. Laxinn stökk í Stekkjarfossi og reyndi að komast upp fossinn. Ekki tókst honum það. Oskar hélt honum í fosshylnum í 10- VEIÐIMAÐURINN 9

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.