Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Qupperneq 13
Dýrðardagar
Magnús Olafsson rœðir við Jóhann Þorsteinsson
III
Haukadalsá
„Mér fínnst Haukadalsá skemmtileg-
asta áin, sem ég hef veitt í, og get ég þó
varla gert upp á milli hennar og Norðurár.
Hyljirnir í Hauku eru sérstaklega falleg-
ir, og fjölbreytnin í klettamyndunum alveg
furðuleg. En svo, þegar maður kemur upp
úr gljúfrinu, er allt kollótt, og það er ekki
hægt að líkja því saman við dásamlega
fallegt umhverfi Norðurár. Það er alveg
gjörólíkt.
Ég veiddi í Hauku í mörg ár, endaði
vanalega sumarveiði mína þar, var þar
oftast í tvo daga um miðjan september.
Upphafið var það, að Jón Sveinsson var
að byrja á klakinu og vildi ná í góðan stofn.
Hann fékk tvo daga í Hauku og tók mig
og Bjarna heitinn Gestsson með sér, en
Bjarni hafði veitt í ánni í 20 ár og gjör-
þekkti hana. Og þetta tókst, við fengum
þarna á fluguna nokkra físka í klakið.
Mér fannst áin svo skemmtileg, að ég
fór þangað á hverju ári eftir það. Þar er
hver fallegur flugustaðurinn við annan.
Við fengum oft góða veiði, eða það kalla
ég, kannski þetta átta væna laxa á stöngina.
Ég fékk þó nokkuð marga 15 punda físka.
Það er mjög vænn stofn í Hauku.
Og þar er þessi brúnbakur, og töluvert
af honum. Það er þessi þykki lax, með
Jóhann við Norðurá fyrir einum 20 árum (ljósm. Jón
Sveinsson).
breiðu trjónuna, sem aldrei er blár á
bakinu, alveg sama þótt hann sé nýgenginn.
Þegar maður hefur einu sinni veitt
brúnbak og fundið, hvernig hann hagar
VEIÐIMAÐURINN
11