Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 14

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 14
sér, þá þekkir maður hann upp frá því um leið og hann er fastur. Hann hagar sér allt öðru vísi en aðrir laxar, sem ég hef komizt í kynni við. Fyrst eftir að hann er fastur fínnur maður ekki fyrir honum, því að hann tekur ekkert á móti, en kemur kannski alveg upp að tánum á manni. Svo snýr hann við og lætur sig bara sakka hægt og rólega. Hann tekur aldrei mikið á, þybbast bara við, tekur enga spretti og stekkur aldrei. Að minnsta kosti hef ég ekki séð hann stökkva. Þetta er alveg furðulegur fiskur.“ Meira um brúnbak „Brúnbakurinn er auðvitað víðar en í Haukadalsá, og hann fínnst meðal annars í Norðurá. Eg held, að hann sé þangað kominn úr Víðidalsá. Við fengum á sínum tíma leyfí til að draga þar á, og náðum þá þessum stofni. Einu sinni var ég að veiða við Skerin í Norðurá. Það var mikið vatn í ánni og vaðandi ganga. Eg var strax fastur í fiski rétt fyrir utan neðra Skerið og landaði honum fljótlega. Þetta var vænn fískur, 12 punda hængur, spegilfagur. Eg fékk annan lax strax á eftir. Eg hugsaði með mér, að þetta gæti orðið mokveiði, - bullandi ganga, fiskur- inn í tökuskapi og klukkutími eftir. Eg fór út aftur og var rétt strax fastur í físki. Eg náði honum fljótlega upp að efra Skerinu. Þar synti hann marga hringi, hægt og rólega, kringum Skerið, alltaf með sama hraða. Aldrei leitaði hann út í strenginn, og var þó stutt í hann í svona miklu vatni, en auðvitað reyndi ég líka að halda honum frá því. Og hann fór með það, sem eftir var af tímanum! Þetta var 15 punda hængur, brúnbakur. Það var nokkrum árum síðar, þegar við vorum að veiða í Norðurá, að félagi minn, Hákon Jónsson, setti í einn við Miðbryggjuna. Eg var viðstaddur og sá fiskinn, rétt eftir að hann var fastur, því að hann var þá nálægt landi. „Jæja, góði, ef þú heldur honum, þá ertu ekki alveg búinn að landa honum, þessum,“ sagði ég við Hákon. Við vorum eiginlega að hætta, þegar hann setti í fískinn, því að það var komið fram undir hættutíma. Hákon var með hann á annan klukku- tíma, og náði honum ekki á land fyrr en niðri undir Myrkhyl, þvingaði hann eigin- lega á land þar áður en hann var búinn. Aldrei tók laxinn á, og aldrei tók hann roku, þybbaðist bara við. Hákon var að lotum kominn að glíma við hann. Og það var sama sagan og hjá mér við Skerin forðum. Þetta var 15 punda brún- bakur.“ Hagyrðinganefndin „Við í Norðurárnefnd höfum alla tíð fært vinnubækur. Þar er skráð, hverjir mæta til starfa, og hvað er gert. Þar voru líka geymdar þær vísur, sem til urðu. Síðar söfnuðum við þessum kveðskap saman í sérstaka bók, sem við köllum Litla-Skarðsbók, og eftir það höfum við fært vísur beint í hana. Gunnlaugur Pétursson er virkilegur hagyrðingur, auk þess sem hann er snilld- arkokkur, enda sér hann um að malla ofan í nefndina. Gunnar Petersen er líka lúmskur hagyrðingur. Ég hef gaman af þessu, en er ekki eins vandvirkur og þeir Gunnlaugur og Gunn- ar, kasta þessu svona fram í fíjótheitum og læt það vaða, sem mér dettur í hug. Konan mín kallaði veiðihúsið Vímu. Þá hafði hún ekki í huga vímu af völdum 12 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.