Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 16

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 16
smíðum, orti Jóhann þetta til eins félaga síns: í veiðiförum vaskur gefur vænum löxum engin grið. Menja hrygnu marga hefur manndóms stöng hans leikið við. í Veiðivötnum „Nokkrum sinnum veiddi ég í Veiði- vötnum. Ég man sérstaklega eftir síðustu ferðinni minni þangað. Það var 1955, rosa- sumarið mikla, en þá var eins og skipti alveg um veður við Tungná. Við vorum þarna í viku, og fengum ljómandi gott fyrir innan ána. Síðasta daginn fórum við frá bækistöð okkar við Snjóölduvatn og héldum inn í Nýjavatn, og þaðan áfram inn í Breiðavatn. I Nýjavatni var silungurinn bjartur eins og sjóbirtingur. Hann hagaði sér líka alveg eins og sjóbirtingur, fjörmikill eftir að hann var fastur á, alltaf i yfirborðinu og hvítt löðrið í kringum hann. Veiðin í Breiðavatni var alveg stórkost- leg. Þar voru þessir voðalegu boltar, enda virtist það ekkert smáæti, sem þeir höfðu í vatninu, því að skjaldkrabbinn var þarna í hrönnum, og eftir því stór. Við vorum þarna með léttan gúmbát og trolluðum með spón um vatnið. Við fengum 17 silunga, og samtals vógu þeir 160 pund. Þegar við vorum að taka saman, kastaði ég spæni af rælni út í vatnið, og hann var á. Þetta var fimm punda silungur, en hann var eins og örverpi borið saman við hina. Sá stærsti vó 18 pund, og fékk Gísli frændi minn Sigurðsson hann. Við send- um hreistur af þessum silungi niður á Veiðimálastofnun, og reyndist hann 11 ára. Hann var alveg sívalur, það var sama, hvar á hann var litið. Lengdin var 73 sm, en ummálið 56 sm.“ Átján á fímm tímum „Ég hef alltaf haft mikið dálæti á Stóru- Laxá. Mér finnst hún falleg og skemmti- leg, og á það við um öll svæði árinnar. Ég hef þó ekki nema í eitt skipti lent þar í mikilli veiði. Þeir buðu mér þá með sér þangað, þeir Osvaldur Knudsen og Runólfur Kjartans- son. Osvaldur var nýbúinn að byggja sumarbústaðinn sinn við Sogið. Þetta var fyrsta sumarið, sem hann var í honum. Ég hafði hjálpað honum dálítið í sambandi við bústaðinn, og hann bauð mér með sér í Sogið. Svo var farið austur í Stóru-Laxá, en þar áttu þeir Runólfur einn dag. Við komum austur eldsnemma um morguninn. Marteinn Einarsson var þarna með eina stöngina, og þeir Osvaldur og Runólfur, sem voru með sína stöngina hvor, skiptu mér á milli sín. Við Runólfur byrjuðum fyrir ofan Bergsnösina. Þá lá áin allt öðruvísi þarna en hún gerir núna. Hún kom undir bakk- ana, áður en hún féll í Bergsnösina, og þar var fallegur veiðistaður. Um hádegið vorum við Runólfur búnir að fá þarna sína tvo laxana hvor, en Osvaldur hafði engan fengið. Hann hafði svo gaman af að veiða í Bergsnösinni og hélt sig þar. Eftir hádegið var farið upp í Kálfhag- ann. Marteinn nennti ekki með okkur þangað. Klukkan var tvö, þegar við byrjuðum í Kálfhagahylnum. Osvaldur kastaði auð- vitað fyrstur, því að hann var fisklaus. Og um leið og hann fór að kasta var hann fastur í fiski. Svo skiptumst við á um stöngina. Þetta var ákaflega skemmtilegt. Aldrei var nema ein stöng úti, hinir tveir sátu uppi í brekkunni að tala saman og horfa á. Það var ákjósanlegt Ouguveður, aðeins norðankaldi, mikið skýjafar og ljósbrigði 14 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.