Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 26

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 26
SVFR 45 ára Þann 17. maí s.l. voru 45 ár frá stofnun Stangaveiðifélags Reykjavíkur. I tilefni afmælisins gaf félagið 45 trjá- plöntur, aspir, til gróðursetningar við veiðihúsið á Rjúpnahæð við Norðurá, og settu stjórnarmenn þessar plöntur niður, þegar þeir fóru að „opna“ ána í byrjun júní. Veiðibók Friðrik Karlsson framkvæmdastjóri, Mávahlíð 39, Reykjavík, hefur gefíð út „Veiðibók.“ Formála ritar Stefán Jónsson og segir þar m.a.: „Þessari bók er ætlað að geyma hrá- efni í minningu margra veiðiferða. Þér, ágæti bókareigandi, er ætlað að safna á auðu blaðsíðurnar hér fyrir aftan þeim staðreyndum veiðiferða þinna, sem nægja til þess að vekja minningarnar hvenær sem þú þarft á þeim að halda og varðveita þær með lífi, ómi og angan í hugskoti þínu. Þetta má þér vel auðnast með því að veiða af þeirri hjartaprýði, sem nægir til þess að forða fiskunum þínum, mörgum eða fáum, stórum og smáum, frá því hlutskipti að verða einungis ótútlegar beinagrindur í kös gleymskunnar. Sú er ætlun útgefanda, að eyðublöðin vinstra megin geymi orðknappar og ein- faldar upplýsingar um veiðivatnið, veður, agn og veiðifang. Ostrikuðu síðunum hægra megin er ætlað að varðveita ljós- myndir, teikningar og ýmsar athugasemdir til frekari glöggvunar, að ekki sé minnst á eina og eina bögu, sem kynni að falla til í veiðiferðinni.“ Bókina prýða teikningar eftir Kolbein Grímsson. Veiðibókin er til sölu hjá útgefanda, í sportvöruverzlunum og áskrifstofu SVFR. Sportveiðiblaðið Sportveiðiblaðið, 1. tbl., 3. árg., kom út í júní. Blaðið hóf göngu sína 1982, og kom þá út eitt tölublað, og 1983 kom annað hefti. Blaðið fjallar um lax-, silungs- og skot- veiði. Ritstjóri er Gunnar Bender, útgefandi Sportveiðiblaðið. 24 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.