Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 29

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 29
fisk á grunnu vatni í stórgrýti, og ég má hafa mig allan við til að forða því, að línan þvælist um steina og nibbur. Fiskurinn dólar hér fram og aftur nokkra stund með stuttum sprettum, en rennir sér svo allt í einu upp í ólguna neðst í strengnum og þar syndir hann í kringum stóran stein og festir línuna, en leggst svo á milli steina. Þvílík uppákoma, eins og ég er einmitt búinn að reyna að koma í veg fyrir þetta. Nú eru góð ráð dýr, ég má alls ekki missa þennan fisk, ef ég ætla að halda stórveiðimannstigninni í augum afkvæma og maka. Annað hvort er að reyna að lempa línuna úr festunni eða reyna að bakka laxinum úr raufmni milli steinanna. Eg laumast nær, held þó línunni strekktri, ætla að reyna að ná henni út fyrir steininn. Þegar ég á örstutt eftir sé ég fiskinn - og hann mig - og báðir grípa til örþrifaráða. Vatnabúinn rykkir í línuna og reynir að komast á móti straumi, en línan liggur aftur með honum og þar í festuna. Þessa leiðina kemst hann ekki nema slíta úr sér, en það er auðvitað stórhætta á því í þessum látum. Ég geri það eina, sem mér dettur í hug, ja, kannski reyndar án þess beint að detta það í hug, - þetta er fát, - ég trampa ofan í strauminn framan við nefið á laxinum með miklu skvampi. Vatnið er dýpra og straumurinn meiri en ég á von á, svo engu munar, að ég fari flatur í ána, og þar með hefði heiður minn öruggléga rokið út í veður og vind, eða ætti ég kannski heldur að segja flotið á braut. Við þetta kemur slaki á línuna, fiskurinn snarast undan straumi, línan losnar úr festunni og ég næ jafnvægi. Segja mætti mér, að séð úr landi, óvön- um augum, hafi þetta allt litið mjög fagmannlega út, jafnvel glæsilega, a.m.k. „ . .. sé ég fiskinn - og hann mig - og báðir grípa til örþrifaráða“ (íjósm. Þ.I.). hefur aldrei verið dróttað að mér neinu vafasömu af aðdáendaklúbbnum mínum. Þó má auðvitað vel vera, að tillitssemi við mínar viðkvæmustu tilfínningar og stolt ráði þar nokkru. Ég veð áfram yfir ána og upp í mjóu malarfjöruna hinum megin, og innan stundar held ég á fallegri níu punda hrygnu. Áhorfendur fagna ákaflega á hinum bakkanum, ég er hetja dagsins, á því leikur varla nokkur vafi. Já, þetta er sagan, sem leitar á hugann í góða veðrinu í dag, þegar fréttir, sem berast af góðum árangri fyrstu veiðiholla sumarsins hér yfir í Norðurá, auka til- hlökkunina til sumarsins fram undan. Húsafelli, 5. júní 1984. VEIÐIMAÐURINN 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.