Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 31

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 31
Uppáhalds- flugan mín Að þessu sinni er það hinn snjalli fluguveiðimaður Haraldur Stefánsson, sem segir okkur frá uppáhaldsflugunni sinni. Á öðrum stað í blaðinu fræðir Haraldur okkur um flugukort veiðifélaga síns, Joseph P. Hubert, sem er heims- kunnur laxveiðimaður og mikill fræðimaður um margt, er viðkemur laxinum. Haraldur Stefánsson Black sheep Það er gaman að lesa greinarnar í Veiði- manninum um uppáhaldsflugur veiði- manna. Þær eru margar, uppáhaldsflug- urnar, sumar vegna þess að þær fiska vel, og kannski fleiri vegna sérstakra augna- blika í lífi manna og veiðifélaga. Eg er ekki gamall að árum sem flugu- veiðimaður á lax, byrjaði ekki að ráði á þessu fyrr en 1972, en fram að þeim tíma hafði ég veitt mikið af silungi á flugu, og lax á maðk. I júlí 1972 lenti ég fyrir tilviljun sem aðstoðarmaður fluguveiðimanna um tíma í Norðurá. Þetta voru útlendir veiðimenn, sem voru við þetta af sportmennsku, þannig að þeir gáfu sér tíma til að reyna fluguna vel og lengi, en voru ekki með hugann við kostnað og sem mesta veiði, eins og við flest höfum vanist við laxveiðar, vegna of dýrra leyfa. Upp úr þessum tíma við Norðurá fór að gerast ævintýri í mínu veiðilífi. Haraldur Stefánsson með fallega morgunveiði úr Hítará á Black sheep. Þannig var, að Stangaveiðifélagið hafði fengið Grímsá á leigu, og stóð til að byggja þar veiðihús, en það var gert með fjár- magni, sem að mestu var fengið með fyrir- framsölu á veiðileyfum til útlendra veiði- VEIÐIMAÐURINN 29

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.