Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Page 40

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Page 40
arársvæðið. Við Miðfjörðinn, og fyrir utan, er og verður um ókomna tíð ómengaður sjór. Jarðrask, á móts við það, sem er að eiga sér stað á Blöndusvæðinu, er ekki í sjónmáli næstu mannsaldra, og verður því vatnið í ánum óspillt. Vatnsmagnið, í hverri á fyrir sig og öllum saman, er sér- staklega hentugt til hverskonar rannsókna, með tilliti til talningar, hegðunar, endur- heimtu o.fl. o.fl. Þessi stöð mundi því vera fær um að miðla vísindum sínum til annarra stöðva, sem byggðar eru á staðar- eldi. Ég tel nauðsynlegt, að staðareldi sé sett upp við öll veiðisvæði og víðar, ef áhugi er fyrir því að koma upp nýjum veiðisvæð- um eða að skerpa á lélegum. Uppbygging og hönnun staðareldis Staðarval er mjög áríðandi eins og áður er sagt. Best er að eldið sé sem efst í ánum, svo að gönguseiðin eigi sem lengst- an farveg til sjávar, það stuðlar að sterkari einstaklingum, meiri dreifmgu og þar með betri endurheimtum (sjá síðar). Séu staðhættir ekki þannig, að þeir verji stöðina fyrir ís, flóðum og yfírborðs- vatni, verður að byrja á að gera viðeigandi ráðstafanir í jarðvinnslu. Tel ég ekki þörf á að skýra þetta nánar að sinni. Þar sem ekki eru stundaðar viðamiklar rannsóknir, nægir ca 30-40 m2 hús, til að rúma bakka fyrir klak og kviðpokaseiði, föður, áhöld og tæki, snyrtingu, kaffistofu og skýrslugerð. Sé aðstaða til að ná jarðvarma eða annarri ódýrri orku, verður að gera ráð fyrir því í húsi. Sé jarðvarmi eða hitaorka til staðar, skal hún notuð óbeint, ekki blandast árvatninu (sjá síðar). Vatnið til stöðvarinnar er tekið úr nógu djúpum hyl, þar sem breytingar á að- rennsli og botnefnum eru sem minnstar. Vatnið er leitt í 12“ plaströr(um) (4 kg þr.) svo langa vegalengd sem þurfa þykir. Stilla skal undir inntakið, svo að það hald- ist frá botni, ca 50 sm. A enda intaksins er perulagað, mjög sterkt stálnet, möskvi ca 7 sm. Rörið skal hulið möl, nema 1 m við inntak. Alls eru rörin fimm, eða eitt pr. ker/tjörn. Hallinn á fyrsta röri þarf ekki að vera mikill, ca 4-5°. Frá þessu röri rennur vatnið í steypt ker við húsgafl. Á úttaksenda skal vera loki. Kerið er ca 3x2x1 (dýpt) eða minna. Til miðlunar í hús, og ef jarðvarmi er til staðar, skal setja hitaspírala í kerfið sem þurfa þykir, og skal þá stærð kersins og straumhraði miðast við að ná hita, 18°- 20° æskilegt. Stilliventill skal vera á hita- spíralnum. Ur kerinu er vatn tekið í klak- bakkana, kælt ef þörf þykir og gert súr- efnisríkt, hitastig æskilegt 14°, mest 18°. Frá kerinu rennur vatnið í bunu niður í fyrstu eldistjörnina. Það er gert súrefnis- ríkt með grind. Eldistjörnin er ca 50 sm lægri en kerið, grafin í möl. Stærð tjarn- arinnar er 10x4 m, 75-100 sm niður á stokk. U-lagaður 60x40 sm steinsteyptur stokkur liggur eftir endilangri tjörninni. Gafl tjarnarinnar er steyptur með klauf fyrir affallsvatnið. Loka er á gaflinum til tæmingar. Til þessarar tjarnar liggur annað 12“ rör með meiri halla sem nemur hæðarmun frá hylnum, eins útbúið að öllu leyti. Affallið fellur í bununa frá ker- inu (stilliloki er á útfalli rörsins). Hliðar tjarnarinnar slúta 45° út og upp frá stokkn- um. Eftir endilangri tjörninni milli gafla er byggð göngu- eða vinnupallur, 60 sm breiður, úr 2,5“ plönkum með 1 sm milli- bili. Plankarnir hvíla á stoðum 4x4“. Þessir vinnupallar koma í veg fyrir skrið á möl- inni, og svo er nauðsynlegt að festa í þá og strekkja net yfir tjörnina. 38 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.