Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Qupperneq 55

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Qupperneq 55
Þegar Þorsteinn er horfinn fyrir hólmann flaug mér strax í hug að staldra við því mér riði ekkert á vestur, þegar lítið væri um tekju og svo er það svona, að þegar ég veit af einum manni á leið um vatnið, sem getur reynst ótryggt, vil ég sjá sem lengst til hans. Ég réð því af að setjast þarna og bíða þangað til ég sæi Þorstein ganga heim túnið, utan frá landtökustaðnum, sem ég auðvitað sá ekki fyrir hólmanum, sem skyggði á milli. Ég sest því þarna og hef gætur á hvort ég sjái Þorstein ekki koma undan hólmanum og ganga heim. Hve lengi þetta hefur verið veit ég ekki, en mig fór að lengja og gerast órór. Datt samt í hug, að hann gæti eitthvað hafa tafist út með landinu, annað hvort að taka neta- staura, eða þá að hann hefði rennt þar dorg. Seinast varð ég samt svo órór, að ég fór upp í hólmann til þess að svipast eftir honum. „Og guð minn góður, engan mann að sjá“, en mér fannst ég eygja eins og fugl í eyðunni upp við landið og var þá hinn óljósi grunur minn að verða að veruleika. Skjálfandi af ótta, að svo væri, hraðaði ég mér sem ég gat til að ganga úr skugga um það, í áttina til eyðunnar, og var ekki kom- inn nema stuttan spöl, þegar ég sá hvers- kyns var, að Þorsteinn hafði dottið þarna í vatnið og barðist þarna með síðustu kröftum. Ekkert mannlegt eyra hafði heyrt til hans neyðarópin, því ofsa sunnan veður var á - nema Sigurgeir sonur hans, sem stóð hjá fé uppi í Dimmuborgum. Lokaður bærinn heima á Strönd. Ég heyrði heldur ekki neitt til hans fyrr en ég átti fáa faðma til hans og var röddin þá líka að dvína, eða þrotin. Hann flaut þarna við skörina skelþunna með höfuðið uppi og hendurnar tylltar á hinn veika ís, sem gekk í öldum eins og vatnið. Út lagði ég í guðs nafni, en reyndi að hafa þá varúð og stillingu sem mest ég gat. Fór strax úr kápunni, sem var fremur stutt sem hjálpartaug á milli okkar, og veðrið gerði mér líka erfitt að slöngva henni til hans þar sem hún fauk aftur í fangið á mér, en samt eftir nokkrar atrennur er hún var orðin blaut gat ég komið henni svo hann náði í hana með höndunum, en það stoðaði lítið því hann missti strax af takinu, fyrir loppu og mátt- leysi og svo hafði hann vettlinga á höndun- um. Þetta gekk, að mér fannst, langa stund, að hann náði í hempuna, en missti jafn- harðan af aftur. Nú var ég staddur í þeirri mestu dauðansraun, sem ég hefi reynt um dagana, því ég sá að hér var um beggja okkar líf að ræða. Isinn, sem enn lafði uppi með mig var að bresta og ég sá hina votu gröf okkar beggja. Þá, guði sé lof, datt mér það á augnablikinu í hug að segja honum að bíta af sér vettlingana, sinn í hvort sinn og reyna að koma hempunni upp í sig með hendinni. Þetta gerðist á svipstund og hann náði taki með tönn- unum fremst í ermina á kápunni, en er ég fór að taka í bilaði enn þetta tak, því stykkið sem hann beit í fór úr erminni, og þá hélt ég úti um allt. En þá gat ég komið hemp- unni til hans og hann bitið í á öðrum stað. Bað ég hann nú enn og aftur, og í guðs bænum, að reyna að halda sem fastast þessu taki með tönnunum, en reyna með höndunum að brjóta þá örþunnu skán, sem var á milli okkar, og nú fyrst færðist ég einu feti fjær gröf og dauða með okkur báða, því ég færðist fyrsta fetið til baka upp að haldbetri ís. Og svona mjakaðist ég með hann nokkur fet, að hann braut ófær- una framan af, en ég færðist með hann þar til að brjóstið á honum kom upp og fékk hald á skörinni, og þá um leið, af því að hann var kominn í vik, sem við vorum búnir að brjóta, kom hann öðrum fætinum til stuðnings út á annan vakarbarminn VEIÐIMAÐURINN 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.