Leikhúsmál - 01.06.1998, Síða 11
LEIKHÚSMÁL
Frumvarp til leiklistarlaga gagnrýnt
Frumvarp til nýrra leiklistarlaga hefur
legið fyrir Alþingi í vetur. Það var nú á
útmánuðum sent stofnunum og félög-
um sem hafa leiklist á sinni könnu til um-
sagnar, þar á meðal Félagi íslenskra leikara.
Það virðist nokkuð einróma álit leiklistar-
fólks sem um þetta frumvarp fjallaði að það
sé mjög gallað, jafnvel svo að sníða þyrfti
það upp á nýtt. Meginhluti frumvarpsins er
um Þjóðleikhúsið, enda er gert ráð fyrir að
gömlu þjóðleikhúslögin falli inn í leiklistar-
lögin. Um aðrar stofnanir eða félög sem fást
við leikhúsrekstur er lítið fjallað, nema það
sætir tíðindum að þeir aðilar sem löngum
hafa notið fjárframlags frá ríkinu eru ekki
nefndir á nafn. Með frumvarpinu er verið að
færa aukið vald til menntamálaráðuneytis
og ráðherra, bæði hvað varðar skipun þjóð-
leikhúsráðs og eins til ráðstöfunar fjár til
annarra aðila.
Ýmislegt í þessu frumvarpi þótti sem sagt
athugavert og vonandi tekst að endurskoða
það og lagfæra, eða þá að afgreiðslu þess
verði frestað svo tóm skapist til þess að
vinna það betur - og ræða. En hér fara á eff-
ir þær athugasemdir sem FfL sendi frá sér
um frumvarpið og einstakar greinar þess:
FfL telur þetta frumvarp í meginatriðum svo
gallað að réttast væri að vinna það að stór-
um hluta upp aftur. Þegar leikiistarfólk er
ósátt við eins mikilvægar greinar frumvarps-
ins eins og um skipan þjóðleikhússtjóra,
skipan þjóðleikhúsráðs og kaflana um aðra
leiklistarstarfssemi og leiklistarráð þá er
það skoðun FfL að mikillar uppstokkunar sé
þörf.
Hér eru þó hugmyndir að brýnustu lag-
færingum frumvarpsins:
í 6. gr. er fjallað um skipan þjóðleikhús-
stjóra. FÍL mælir með því að sá einstakiingur
sem skipaður er í það embætti hafi ekki ein-
göngu staðgóða þekkingu á starfi leikhúsa
heldur einnig reynslu í listrænu starfi.
í framhaldi af ráðningu þjóðleikhússtjóra
telur FfL mjög mikilvægt að í það embætti sé
sami einstaklingur ekki ráðinn lengur en í 10
ár. FÍL telur líka rétt að starf þjóðleikhús-
stjóra verði auglýst laust til umsóknar strax
eftir fyrstu 5 árin.
Það er álit FÍL að það geti verið mjög
hættulegt fýrir listina í landinu ef einn og
sami einstaklingur situr lengur en 10 ár í svo
mótandi og veigamiklu starfi. Um Þjóðleik-
hús okkar verða að fá að leika ferskir vindar
þar sem ný listræn sjónarmið fá að blómstra.
Tillaga FfL að 6. gr. hljóðar því svo:
„Menntamálaráðherra skipar þjóðleik-
hússtjóra til fimm ára í senn, að fenginni
umsögn þjóðleikhúsráðs. Skipaður skal
maður með staðgóða þekkingu á starfi leik-
húsa og reynslu í listrænu starfi. Ætíð skal
auglýsa embættið laust til umsóknar að
loknum fimm ára skipunartíma og leita
umsagnar þjóðleikhúsráðs. Heimilt er að
endurráða þjóðleikhússtjóra í eitt skipti,
eða til annarra fimm ára.
Þjóðleikhússtjóri er stjórnandi leikhússins
..." o.s.ffv.
f 7. gr. er fjallað um skipan í þjóðleikhús-
ráð. FfL er þeirrar skoðunar að þjóðleikhús-
ráð sé mjög mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að
það er umsagnaraðili um skipan væntanlegs
þjóðleikhússtjóra.
FfL telur að sá háttur sem hafður hefur
verið á varðandi skipan í þjóðleikhúsráð sé
mjög lýðræðislegur og hafi reynst vel. Full-
trúar á Alþingi velja fjóra einstaklinga til
setu í ráðinu og er það skoðun FÍL að það
val hafi verið gott og tengslin sem þeir
mynda milli Þjóðleikhússins og fólksins I
landinu skipti miklu máli. Þjóðleikhús er
eign okkar allra og með setu fulltrúa valinna
af alþingismönnum fær þjóðin sterkari til-
finningu fyrir því að Þjóðleikhúsið sé henn-
ar eign og um leið vilji hún hag þess sem
bestan.
Það er því tillaga FfL að þjóðleikhúsráð
verði skipað á sama hátt og áður, fjórir full-
trúar skipaðir af stjórnmálaflokkum en sá
fimmti af FfL.
FfL hefur samkvæmt gildandi lögum um
Þjóðleikhús tilnefnt einn fulltrúa í þjóðleik-
húsráð og því til staðfestingar að svo skuli
vera áfram má geta þess að FÍL er stærsta
stéttar- og fagfélag leiklistarfólks á íslandi. í
FfL eru ekki eingöngu leikarar heldur einnig
listdansarar, óperusöngvarar og leikmynda-
og búningahöfundar og eru meðlimir þess
rúmlega 350.
Tillaga FfL er að 7. gr. hljóði svo:
„Menntamálaráðherra skipar eftir hverj-
ar alþingiskosningar, fimm menn í þjóð-
leikhúsráð, fjóra eftir tilnefningu fjögurra
stærstu þingflokkanna og einn samkvæmt
tilnefningu Félags íslenskra leikara. Ráð-
herra skipar formann og varaformann úr
hópi ráðsmanna. Varamenn skulu skipaðir
með sama hætti. Fulltrúi starfsmanna leik-
hússins, kjörinn úr hópi þeirra til eigi
skemmri tíma en eins árs í senn, á sæti á
fundum þjóðleikhúsráðs með málfrelsi og
tillögurétti.“
Tillaga FÍL er að 14. gr. hljóði svo:
„Alþingi veiti árlega fé í fjárlögum til
stuðnings annarri leiklistarstarfsemi:
1. Til Leikfélags Reykjavíkur
2. Til Leikfélags Akureyrar
3. Til Bandalags íslenskra leikfélaga
4. Til f slenska dansflokksins
5. Til íslensku óperunnar
6. Til Leiklistarsambands íslands vegna
starfsemi atvinnuleikhópa"
Að því leyti sem framlög til einstakra aðila
eru ekki ákveðin í fjárlögum hverju sinni
annast menntamálaráðuneytið úthlutun
þess fjár sem veitt er skv. þessari grein. Slíkur
stuðningur getur auk framantaldra aðila
tekið til hvers konar sviðslista.
Um veitingu starfslauna til leikhúsfólks
fer skv. ákvæðum laga um listamannalaun,
nr. 35/1991, með síðari breytingum.
Varðandi 14. gr. frumvarpsins gerir FlL
eftirfarandi athugasemd:
Það er að mati félagsins grundvallaratriði
að þær stofnanir sem gegna og hafa gegnt
forystuhlutverki í sviðslistum hér á landi eigi
sinn sess í leiklistarlögum. FÍL telur ótækt að
fela alfarið menntamálaráðuneytinu úthlut-
un fjár til þessara aðila svo sem lagt er til í
frumvarpinu.
1) í athugasemdum sem frumvarpinu
fylgja segir m.a. um 14. gr.: „Að því er Leik-
félag Reykjavíkur varðar er rétt að taka
fram að árleg framlög ríkisins til félagsins
hafa verið mjög takmörkuð hin síðari ár, eft-
ir að nokkurs konar verkaskipting komst á
milli ríkisins og Reykjavíkurborgar árið
1991 um fjárstuðning við LR og íslensku óp-
eruna.“ - Um þessa „nokkurs konar verka-
skiptingu“ má spyrja:
Hvernig komst þessi verkaskipting á
1991?
Hverjir fjölluðu um hana?
Hverjir samþykktu hana?
Hvernig hefur hún reynst í framkvæmd?
LR átti ekki aðild að þessari verkaskipt-
ingu heldur mótmælti henni og fullyrða má
að þessi ráðstöfun hafi síður en svo auðveld-
að félaginu að sinna því forystuhlutverki
sem það hefur gegnt í heila öld, ásamt Þjóð-
leikhúsinu hin síðari ár. Að mati FÍL hefur
ríkisvaldið tvíþættar skyldur við LR, sögu-
legar og í ljósi samkeppni, og það yrði að
mati FlL menningarlegt slys ef nafn þess
yrði fellt úr leildistarlögum.
2) Leikfélag Akureyrar hefur löngu fest
sig í sessi sem eina atvinnuleikhúsið utan
höfuðborgarsvæðisins. Það gegnir því for-
ystuhlutverki sem landsbyggðarleikhús og á
að mati FÍL tvímælalaust að skipa sinn sess í
leiklistarlögum. Enda er engum tvímælum
bundið að fjárveitingavaldið hafi skyldum
að gegna við félagið.
3) Áhugafélögin í landinu eru sá grund-
völlur sem sviðslistir hér á landi eru sprottn-
Framhald á bls. 27
11