Leikhúsmál - 01.06.1998, Qupperneq 13

Leikhúsmál - 01.06.1998, Qupperneq 13
LEIKHÚSMÁL Edda Þórarinsdóttir Leikarar! Stöndum saman í talsetningarmálum framtíðarinnar Formáli Undanfarin ár hafa leikarar haft töluverða atvinnu af talsetningu barnaefnis og hefur FÍL lengi barist íyrir réttindum þeirra vegna endursýninga á talsettu efni og hefur félagið ekki verið tilbúið til að semja um sölu á þeim í eitt skipti fyrir öll. Fyrsti raunverulegi samningurinn um tal- setningar var gerður við Stöð 2 árið 1989 og eru réttindi leikara í þeim samningi þau að Stöðin hefur aðeins rétt til þriggja sýninga, og ef þörf er á fleiri sýningum verður að semja um það sérstaklega. Árið 1997 gerði FlL svo samning við Rík- issjónvarpið þar sem er kafli um talsetningar en þar segir að sjónvarpið hafi rétt til þriggja sýninga á fimm árum. I þeirri talsetningarflóru sem við búum við nú, hefur þeim aðilum fjölgað sem talsetja barna- efni, ýmist fyrir sjónvarp, kvikmyndir eða mynd- bönd. Þessir aðilar hafa flestir búið til einhliða gjaldskrá fyrir leikara þar sem allur réttur er seldur og leikarar skrifað undir slíka samninga. Þróunin hefur því orðið sú að t.d. Stöð 2 er nánast hætt að talsetja sjálf, en kaupir á lægra verði talsett barnaefni frá öðrum aðil- um og þar eru engar höml- ur á endursýningum þar sem allur réttur er seldur. FÍL hefur nýverið átt nokkra fundi með þeim Stöðvar 2-mönnum, þar sem rætt hefur verið um gerð nýs samnings, og von- um við að viðræðurnar við þá verði árangursríkar og skili okkur góðum samn- ingi. Ef lending næst við höfn Stöðvar 2, munum við freista þess að ná samskon- ar lendingu í Efstaleitinu um talsetningar í samningi FlL og RÚV. Eftirmáli Ef þetta gengur effir verðum við að treysta því að félagar FÍL standi saman og noti þann samning sem gjaldskrá gagnvart öðrum að- ilum á talsetningarmarkaðnum. Ef þróunin verður sú að við viljum selja allan rétt í eitt skipti fýrir öll megum við ekki gefa hann heldur selja hann góðu verði. Að lokum má geta þess til ffóðleiks að FlL náði nokkuð góðum samningi við Disney ekki alls fyrir löngu. Sambíóin höfðu gefið út barnaefni á myndböndum sem Stöð 2 hafði talsett á sínum tíma. Þarna var því far- ið út fyrir samning FlL og Stöðvar 2 um þrjá sýningarrétti og varð FlL að sjá til þess að réttur leikarans væri ekki fyrir borð borinn. Hófust svo samningaviðræður við fulltrúa Disney í Kaupmannahöfn og París. Það kom okkur hjá FÍL þægilega á óvart hversu gott var að eiga við þá samstarf og að allt hefur staðist upp á punkt og prik. Meðal nýrra félaga FIL eru nemendur sem útskrifuð- ust síðasta ár úr Leiklistarskóla Islands: Strákarnir: Halldór, Atli Rafn, Gunnar og Baldur Trausti. Stelpurnar: Katla M. Þorgeirsdóttir, Inga Maria, Þrúður og Hildigunnur. Fundur um réttindi listamanna I lok apríl nk. verður haldinn á íslandi tveggja daga fundur Norræna leikararáðsins, en ráðið hittist að jafnaði tvisvar á ári og vill svo skemmtilega til að um þessar mundir er formaður FlL einnig formaður Norræna leikararáðsins. Á þennan fund mæta m.a. þau Katherine Sand framkvæmdastjóri FIA (Alþjóðasam- taka leikara) og Björn Höberg Petersen lög- maður FIA og Danska leikarafélagsins. Björn er reyndar íslendingur að þremur fjórðu og talar „barna-íslensku“ eins og hann orðar það sjálfur. I kjölfar fundarins í Norræna leikararáð- inu munu þau Katherine og Björn að öllum líkindum halda fund með FlL og jafnvel Bandalagi íslenskra listamanna um réttinda- mál listamanna. Þessi fundur getur vissulega orðið forvitnilegur og mælir FlL með því að listamenn fjölmenni þar þegar þar að kem- ur. Sautján nýir FÍL-félagar Á einu ári hafa óvenjumargir gengið í Félag íslenskra leikara, en milli aðal- funda 1997 og 98 (sem haldinn var 23. mars) sóttu 17 listamenn um inn- göngu og var umsókn þeirra samþykkt í samræmi við lög FlL. Þetta eru leikar- arnir: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sigurðsson, Baldur Trausti Hreinsson, Gunnar Hansson. Halldór Gylfason, Hákon Leifsson, Hildigunnur Þráins- dóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Inga María Valdimarsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Linda Sif Þorláksdóttir, Róbert Snorrason, Tristan Elizabeth Gribbin og Þrúður Vilhjálmsdóttir; einn dansari: Sveinbjörg Þórhallsdóttir; einn söngvari: Þórunn Stefánsdóttir, og leikmynda- og búningahönnuðurinn Áslaug Leifsdóttir. 13

x

Leikhúsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.