Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 13
Þá dettur mér í hug að fyrir nokkrum
árum síðan er ég var að veiða í Hlíðar-
vatni í Selvogi og hafði fengið nokkrar
bleikjur, að ég hitti mann, sem var að
veiða þar og hann spurði mig á hvað ég
hefði verið að fá hann. Ég sagði honum
eins og var, allar á Peter Ross og það var
alveg satt. Það var sól og gott Peter Ross
veður. Við vorum að spjalla saman um
veiðina í vatninu eins og menn gera oft.
Það fór vel á með okkur og ég tók efitir að
þetta var vanur veiðimaður, enda var hann
með góða veiði. Þegar við vorum að
kveðjast segir hann við mig að hann noti
aldrei Peter Ross. Ég var svolítið undr-
andi, en lét ekki á neinu bera, en ég var
lengi að átta mig á þessu eftir að ég var
orðinn einn.
Já, skrítið menn físka á það sem þeir
trúa á og þá fær maður hann. J.P.
Gullfallegir silungar úr Rangá. Ljósm. J.S.A.
íslenski lífeyrissjóðurinn
- Séreignasjóður í umsjá Landsbréfa hf.
Öllum íslendingum ber skylda til að greiða í lífeyrissjóð. Þeir sem ekki verða lögum samkvæmt að vera í ákveðnum
lífeyrissjóði, geta greitt allt framlag sitt í Islenska lífeyrissjóðinn. Allir einstaklingar, sem greiða samkvæmt lögum
í aðra lífeyrissjóði, geta greitt viðbótariðgjald í sjóðinn.
Framlag hvers sjóðfélaga og mótframlag atvinnurekenda, auk vaxta og verðbóta,
er séreign hans ög nýtist honum einum eða erfingjum hans.
Árið 1992 skilaði sjóðurinn 7,7% ávöxtun umfram lánskjaravísitölu.
Sjóðfélagar fá sent greinargott yfirlit yfír stöðu sína ársfjórðungslega auk
upplýsinga um stöðu sjóðsins. Þannig geta sjóðfélagar fylgst náið með
inneign sinni og ávöxtun hennar.
Sótt er um aðild að íslenska lífeyrissjóðnum á sérstökum eyðublöðum
sem liggja frammi hjá Landsbréfum og umboðsmönnum Landsbréfa
í útibúum Landsbanka íslands um allt Iand.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlondsbraul 24. 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggill verðbréfafyrirlæki. Aðili að Verðbréfaþingi Islands.
VEIÐIMAÐURINN
11