Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Blaðsíða 69
Bugðufoss. Ljósm. J.S.A.
draga skýr mörk milli hafbeitar og
fískræktar. Samanlagt gefa tölur um
endurheimtur úr hafbeit og veiði á
náttúrulega framleiddum laxi í íslenskum
vatnakerfum hugmynd um ijölda íslenskra
laxa í úthafinu. Um endurheimtur í hafbeit
er stuðst við skýrslu Stefáns Eiríks
Stefánssonar (1993) og um skiptingu milli
landshluta eru upplýsingar fengnar frá
Stefáni Eiríki Stefánssyni (munnl. uppl.).
LAXVEIÐIN 1992
Sumarið 1992 veiddust alls 42.309
laxar á stöng, 7.265 laxar veiddust í net í
ám, 4.797 í net í sjó og 140.763 laxar
endurheimtust úr hafbeit (tafla 1). Alls
eru þetta 195.134 laxar. Heildarþungi
veiddra laxa og hafbeitarlaxa var 635,9
tonn sem skiptist þannig að 140 tonn
veiddust á stöng, 22,3 tonn í net í ám, 13,1
tonn í sjó og 460,5 tonn endurheimtust úr
hafbeit.
Heildarveiði laxa og endurheimtur
hafbeitarlaxa á árinu 1992, var sú mesta
frá upphafí (tafla 2).
Samanlagður fjöldi stang- og net-
veiddra laxa er um 4% meiri en meðal-
veiði áranna 1974 - 1991 (tafla 2). Stang-
veiðin 1992 fór vaxandi eftir þriggja ára
lægð (mynd 1) og var 15% meiri en
meðalveiði áranna 1974 - 1992. Neta-
veiðin var 27% minni en meðalveiði sömu
ára og svipuð og verið hefur undanfarin
fjögur ár (mynd 2).
Fjöldi endurheimtra hafbeitarlaxa jókst
frá árinu 1991 og var á árinu 1992 sá
mesti frá upphafi (mynd 3).
Stangveiðin
Heildarstangveiði á Islandi 1992 var
42.309 laxar og vógu þeir samtals 140
tonn. Flestir laxar veiddust á Vesturlandi
15.923 en fæstir á Vestfjörðum 1.357
VEIÐIMAÐURINN
67