Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 62
Þannig orð bera allir þeir veiðimenn, sem
ég hef talað við, þeim er byggja Lundar-
reykjadalinn.
Þau 43 ár, sem ég hef stundað laxveiði,
hefur mér þótt mun meiri ástæða til þess
að kvarta yfír lélegri vörslu við veiðiár
heldur en góðri, eða of mikilli, sbr. frá-
bæra grein Hrafns Einarssonar í síðasta
tbl., þar sem hann lýsir aðkomunni að
Fljótinu og Grænugróf í Elliðaánum. Eg
hef einnig lent nákvæmlega í því sama, að
þurfa að stugga við óvelkomnum veiði-
mönnum þama, en fengið í staðinn langt
nef og all hressilegt orðbragð handan ár.
Fremur tel ég það góðan sið en slæman að
veiðiverðir heilsi upp á mig við veiðar og
reyndar angrar það mig ekkert þó ég viti
af þeim (eða viti ekki af þeim) fylgjast
með mér í sjónauka úr fjarlægð. I þessu
sambandi má benda stangaveiðimönnum
á, að það em sjónaukar á flestum (öllum)
bæjum við laxveiðiár og oft bregð ég mín-
um upp til að íylgjast með veiðimönnum
við Elliðaámar úr stofuglugganum.
Veiðivörðum hlýtur að bera skylda til
að vakta vel sín veiðisvæði og skylda er
að sýna veiðivörðum við Elliðaámar afla
þann sem þar fæst og finnst engum til-
tökumál.
Ritfrelsi
Guðmundur vitnar til rit- og tjáningar-
frelsis í grein sinni. Skyldi hann eiga við
það að útgefanda Veiðimannsins SVFR, sé
skylt að birta allt efni í blaðinu sem til
þess berst? Eg hef skilið ritfrelsi þannig
að hverjum og einum sé heimilt að gefa út
svo til allt sem hann vill, í eigin nafni og á
eigin kostnað. En ekki svo að Morgun-
blaðinu, Veiðimanninum eða öðmm fjöl-
miðlum sé skylt að birta öll handrit sem til
þeirra berast.
Nei, kæri Guðmundur og Ólafur, því
miður þá skil ég alls ekki tilganginn með
svona skrifum „Afglöp í Afdölum“. Er
einhver boðskapur í þessu til áskrifenda
blaðsins? Eiga þetta að vera vamaðarorð
og þá vísbending til veiðimanna um að
varast þetta heillandi veiðisvæði? Eða er
þama verið að skemmta einhveijum og þá
hverjum?
Útlitsbreytingar
Guðmundur gagnrýnir mig fýrir að-
fmnslur mínar og annarra á nokkmm út-
litsbreytingum sem nýja ritnefndin gerði á
blaðinu og lætur birta myndir af tveimur
kápum máli sínu til stuðnings. Eg vil þá
nota þetta tækifæri til þess að þakka rit-
nefndinni fyrir að hafa tekið flestar mínar
ábendingar til greina t.d.
1. - Að fjarlægja rauða borðann sem
þeir lögðu upp með á sínu fyrsta blaði tbl.
135.
2. - Að fjarlægja síðan bláu borðana
sem gengu þvert yfír forsíðumyndina á
tbl. 136.
3. - Að minnka stríðsletrið, sem ég kall-
aði svo, í fýrirsögnum greina sem hertóku
heilu blaðsíðumar, t.d. bls. 12 í tbl. 136 og
bls. 22 í tbl. 138.
4. - Að plástra yfir stórar eyður (1/2 síð-
ur) sbr. bls. 9, bls. 27 og bls. 37 í tbl. 137,
þó plástramir mættu gjaman vera efnis-
meiri og fallegri.
5. - Að vanda betur til myndskýringa
(þó svo að Laxfoss i Leirvogsá komi mér
sérkennilega fyrir sjónir í síðasta blaði).
6. - Ljósmyndir í síðasta tbl. einnig til
bóta.
Fyrir allar þessar lagfæringar er ég
þakklátur, því mér er annt um Veiðimann-
inn og mér er alls ekki sama hvemig farið
er með hann, minnugur þess hvemig fór
fyrir honum árið 1969, þegar hann var þá
færður í nýjan búning sem entist þó aðeins
í tvö skipti.
60
VEIÐIMAÐURINN