Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Síða 21
fulltrúi flutti kveðjur Stéttarsambandsins,
en Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
kveðjur búnaðarmálastjóra og Jón Öm
Pálsson kveðju veiðimálastjóra og ræddi
um bleikjueldi, sem er samvinnuverkefni
sem Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar
að Hólum í Hjaltadal tekur þátt í.
I sambandi við aðalfundinn buðu
heimamenn félögum og gestum til kynnis-
ferðar um Húnavatnssýslu og var m.a.
komið í Blönduvirkjun og notið þar frá-
bærrar móttöku og leiðsagnar Guðmundar
Hagalín, stöðvarstjóra Landsvirkjunar. Þá
var veislufagnaður í Hótel Blönduósi, þar
sem fundurinn var haldinn, á fimmtudags-
kvöld sem Magnús Olafsson, Sveins-
stöðum stjómaði. Þar sáu heimamenn um
dagskráratriði, m.a. flutti Kristófer Krist-
jánsson, Köldukinn fróðlegt spjall um
Húnavatnssýslur og fímm konur úr hérað-
inu sungu nokkur ljóð og lög við frábærar
undirtektir.
A fundinum var Halldóri Sigurðssyni,
Miðhúsum þakkað mikið og gott starf fyr-
ir landssambandið á liðnum ámm, en hann
hefúr um langt skeið setið í stjóm þess og
verið ritari samtakanna. Halldór var kjör-
inn heiðursfélagi, en Halldór verður sjö-
tugur síðar í þessum mánuði. I stað Hall-
dórs var kjörinn Bragi Vagnsson, Bursta-
felli sem fúlltrúi Austurlands.
Aðalfund LV sóttu að þessu sinni um
40 fulltrúar víðsvegar að af landinu.
Stjóm sambandsins skipa nú: Böðvar Sig-
valdason, Barði, formaður, Bragi Vagns-
son, Burstafelli, ritari, Svavar Jensson,
Hrappsstöðum, gjaldkeri, Ketill Agústs-
son, Brúnastöðum, og Vigfús B. Jónsson,
Laxamýri.
Þrjár vinnunefndir störfuðu á fúndinum:
Allsherjamefnd; formaður Þorsteinn Þor-
steinsson, Skálpastöðum, Málefna- og út-
breiðslunefnd; formaður Magnús Ólafs-
son, Sveinsstöðum og Fjárhagsnefnd; for-
maður Agúst Sigurðsson, Geitaskarði.
ÁYKTANIR AÐALFUNDAR LV 1993
Um frv. til laga um breytingar á lax- og
silungsveiðilögum frá 1970:
“Aðalfundur Landssambands veiðifé-
laga, haldinn á Blönduósi 10. - 11. júní
1993 fagnar framkomnu fmmvarpi til laga
um breytingar á gildandi lax- og silungs-
veiðilöggjöf, sem landbúnaðarráðherra
lagði fyrir Alþingi í vor.
Fundurinn telur að í frumvarpinu felist
mörg þau atriði, sem landssambandið hef-
ur lagt áherslu á að kæmu inn í löggjöfina.
Eigi að síður em atriði, sem fundurinn
vill benda á, að betur mættu fara, eins og
varðandi ffiðunarsvæði í sjó úti frá ósum
ánna. I stað 1500 metranna, eigi friðunar-
svæði að vera 2000 metrar, eins og er í
gildandi lögum um hinar vatnsmeiri ár.
Hins vegar væri rétt að láta þetta gilda
einnig um allar aðrar ár, hversu sem vatns-
magnið er í hverju tilviki, og fella þar með
alveg út 1.000 metrana. Þá telur fúndurinn
rétt að grein sú, er verða skal 91. grein,
hefjist svo: Öll ( veiðifélög, samkvæmt á-
kvæðum VII. kafla laga þessara hafa með
sér landssamtök, Landssamband veiðfé-
laga, sem gætir sameiginlegra hagsmuna
þeirra).
Fundurinn vill benda á, að ákvæðin um
fiskeldi í fmmvarpinu em til bóta frá því
sem nú er, þar sem þau eru ítarlegri og
tryggja betur en áður, að slík starfsemi sé
stofnsett og rekin svo að gætt sé varúðar
varðandi mengunarþáttinn og að fískeldi
valdi ekki árekstmm við aðra nýtingu og
náttúruleg sjónarmið um meðferð þeirrar
auðlindar, sem lax og silungur er í ám og
vötnum landsins. I því efni má m.a. benda
sérstaklega á að gert er ráð fyrir heimild
til að setja reglur um töku á laxi hjá haf-
beitarstöðvum.
Þá em ákvæði um skipulag og stjóm
Veiðimálastofnunar í frumvarpinu til bóta
og vill fundurinn í því sambandi lýsa á-
nægju með lögfestingu deilda Veiðimála-
VEIÐIMAÐURINN
19