Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 60
iVFR
BREF TIL BLAÐSINS
Þakklæti
í 140. tbl. Veiðimannsins upplýsir Guð-
mundur Guðjónsson, blaðamaður, lesend-
ur um örlítið brot af þeim málefnum sem
fram komu á aðalfundi SVFR 27. nóv.
'92. Er ég honum þakklátur fyrir þessa
framtakssemi og trúlega einnig þeir 2000
félagar sem ekki sátu fundinn.
Þegar aðeins 10% félaga mæta á aðal-
fundi, þá finnst mér að stjóminni beri
skylda til að senda öllum félögum greinar-
góða fundargerð. Nefndi ég það á aðal-
fundinum og hef reyndar einnig gert fyrr.
Þetta var ekki eins brýnt hér áður, þegar
þeir Víglundur Möller og Magnús Olafs-
son ritstýrðu málgagninu okkar, því þeir
birtu alltaf all ítarlega greinargerð um að-
alfundinn hverju sinni. Því miður þá hefur
þessi sjálfsagði þáttur félagsstarfsins lagst
af með nýju ritnefndinni. Ólíkt fremur
vildi ég sjá og eiga sem heimild til seinni
tíma, yfirlit yfir starfsemi félagsins hverju
sinni, heldur en 7 blaðsíður frá árshátíð-
inni (með fullri virðingu íýrir því prúð-
búna fólki sem þar birtist).
Fundarsköp og fundarsókn
Guðmundur leyfír sér í grein sinni að
gagnrýna fúndarstjóra aðalfúndar Ólaf G.
Karlsson, íyrrv. formann SVFR, einn
traustasta máttarstólpa félagsins um
áraraðir, fyrir fúndarstjóm og telur að þau
málefni sem ég ræddi um, hefðu fremur
átt heima undir liðnum, önnur mál.
Vegna þessarar furðulegu gagnrýni
(smámunasemi), þá vil ég benda blaða-
manninum á, að nær öll þau atriði sem ég
ræddi um, tengdust á einhvem hátt skýrslu
stjómar eða reikningum félagsins og vom
því á nákvæmlega réttum stað í dag-
skránni.
I tengslum við þetta má benda á, að ó-
líkt öðmm félögum þar sem ég þekki til,
þá stjóma Stangaveiðifélaginu í raun þessi
10% félaga sem mæta á aðalfundum
hverju sinni, því þar em tekin fýrir öll
meiriháttar málefni s.s. skýrsla stjómar,
samþykkt reikninga, lagabreytingar og
stjómarkjör.
Það undarlega hefur svo gerst undan-
fama aðalfúndi að meira en helmingur
fundarmanna hefur horfíð af fundi eftir
stjómarkjör! Þannig, að aðeins u.þ.b. 3%
félagsmanna hlýða á og taka afstöðu til
þeirra mála sem fram koma undir liðnum
önnur mál.
58
VEIÐIMAÐURINN