Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 45
5
BRÉF FRÁ VEIÐIMÖNNUM
I
Laxveiði í kreppunni - hvernig getum við sparað ?
Ljóst er að færri veiðimenn en áður munu eiga fyrir veiðileyfum.
Hins vegar munu allir laxveiðimenn reyna að fara eins oft og þeir
geta að veiða. En í því atvinnuástandi sem nú ríkir þarf að finna
ódýrustu leyfin.
Nær uppselt er í margar minni laxveiðiár þar sem leyfin eru á
viðráðanlegu verði en erfiðar hefur gengið að selja í þær stærri.
Sumir hugsa sér því gott til glóðarinnar og bíða í þeirri von að
leyfin fari á útsölu í sumar. Reynslan sýnir hins vegar að
veiðileyfasalar eru mjög tregir til að lækka verð á veiðileyfum.
Annað ráð til að veiða í kreppu er líklega að kaupaVeiðikortið
sem er frábær nýjung i veiði fyrir byrjendur og lengra komna hin
seinni ár. Þar má fmna veiðisvæði um allt land á lágu verði.
Þriðja ráðið er deila stöng með öðrum sem algengt er í laxveiði
en ekki svo mjög í silungsveiði. Við teljum þetta álitlegan kost
því góður félagsskapur er mikils virði.
Fjórða ráðið er að fara frekar í styttri veiðiferðir; það fækkar
gistinóttum og minnkar útgjöld.
Ýmis önnur ráð eru til að spara peninga. Helst má nefna að
veiðimenn sameinist um bíl og fari frekar í ár og vötn sem nálægt
eru heimili þeirra.
Veiðin eftir kreppu - hvað er framundan?
Enginn er spámaður i eigin foðurlandi og þróun stangveiða er
um margt óljós sem stendur. Mun verð á veiðileyfum lækka?
Fjölgar útlendingum aftur? Heldur ásóknin í silung áfram að
aukast? Heldur stórlaxi áfram að fækka? Fer meðalstærð laxa
minnkandi? Fátt er ljóst í þeim efnurn og enn færra öruggt.
Nokkuð víst er að sleppingar á laxi skila hærra hlutfalli afstórlaxi
þegar frani líða stundir — slíkt er talið sannað afhálfu vísindamanna.
Hins vegar getur slík þróun tekið nokkuð langan tíma.
Afar nauðsynlegt er að slaka ekkert á þessu átaki að sleppa
stórlaxi en ein ánægjuleg staðreynd hefur komið í ljós í
veiðiferðum okkar félaganna á haustin. Nú veiðast mun fleiri
stórlaxar á haustin en áður. Sennilegasta skýringin er að við
veiðum þá stórlax sem veiddur hefur verið áður um sumarið.
Þetta gerir haustveiðina mun skemmtilegri. Þetta reyndum við
félagarnir haustið 2007 í Selá þegar við veiddum 22 laxa á þremur
dögum, þar af 13 stórlaxa.
Við komum að ánni í flóði og rigningu. Það var fiskur um allt
og greinilegt að hann gekk úr neðri hyljum árinnar og upp eftir.
Við fengum þó nokkra fiska frammi á blábrotum, þeir voru
greinilega í göngu. Eftir hádegi einn daginn veiddum við fimm
laxa í Dimmahyl. Ari kastaði fyrst á hylinn og við sáum engan
fisk. Hann kastaði Green Machine, grænni bomber einkrækju,
sem hann heldur mikið upp á. Hún skautaði failega eftir hylnum
og strax kom fiskur á eftir henni en tók ekki, áfram hélt flugan
og þá kom annar og hann náði henni heldur ekki. Þegar hann
kannaði fluguna hafði bugurinn á önglinum flækst í taumnum og
flugan snéri öfugt. Það var lagað, kastað aftur og þá var hann á
um leið. Fiskarnir sem þarna fengust voru 7-11 punda, flestar
hrygnur.
Doktor Jónas með fallegan
sjóbirting við Rio Grande í
Argentínu.
- ' '