Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s | FRÍTT 2 0 2 3 HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20 Ár endurkomu 5 1 . T Ö L U B L A Ð | 2 3 . Á R G A N G U R | ÍÞRÓTTIR | | 17 FRÉTTIR | | 4 LÍFIÐ | | 24 Sádar kaupa íslenskt hugvit Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . M A R S| Reisa á 1.000 fermetra villu og 700 fermetra gestahús við rætur fjallsins. MENNING | | 22 Töluðu saman í síma Dapurlegur Draumaþjófur Kanadísk hjón hafa fest kaup á jörðinni Horni í Skorradal og þar með fjallinu Skessu- horni. Þau munu reisa 1.700 fermetra villu og gestahús. kristinnhaukur@frettabladid.is VE STURL AND Kanadískur auð- kýfingur hefur fest kaup á jörðinni Horni í Skorradal en innan hennar er hið þekkta fjall Skessuhorn. Hyggst hann byggja þar 1.000 fer- metra villu og 700 fermetra gesta- hús. Fjallið Skessuhorn er bæði þekkt fyrir fegurð sína og sem vinsæl gönguleið fjallgöngumanna. Er það eitt þekktasta fjall Borgarfjarðar og af því dregur héraðsblaðið heiti sitt. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru kaupendurnir hjón í yngri kantinum og eiginmaður- inn auðgaðist í tæknigeiranum. Þau keyptu jörðina með aðstoð umboðsmanns hjá félaginu Nordic Luxury. Jörðin Horn, sem telur 110 þús- und fermetra, var sett á sölu í maí á síðasta ári og seldist á aðeins fjórum dögum. Fyrir utan fjallið liggja þrjár veiðiár um jörðina, Hornsá, Álf- steinsá og Andakílsá. Ásett verð var 145 milljónir króna en jörðin var seld á 150 milljónir. Ekkert eiginlegt íbúðarhús er á jörðinni en eitt af fjárhúsunum hefur verið gert upp sem íbúð. Ekki stendur til að rífa nein hús jarðar- innar að svo stöddu. Í febrúar var gefið út byggingarleyfi fyrir tveimur byggingum. Annars vegar 1.000 fer- metra húsnæði fyrir hjónin og svo 700 fermetra gestahúsi, sem mun innihalda íþróttahús. Þegar er byrjað að vinna að grunni húsanna sem verða reist ofar í fjallshlíðinni en núverandi hús standa. Búist er við því að eiginleg bygging hefjist í apríl og ljúki árið 2025. n Auðjöfur keypti Skessuhorn Prinsessuleikarnir Frumsýning 17. mars Tryggðu þér miða Prinsessuleikarnir N Ó I S Í R Í U S Eitt helsta kennileiti Borgarfjarðar og eitt þekktasta fjall landsins, Skessuhorn, fylgir með í kaupunum á jörðinni Horn. Fjallið er um 967 metra hátt og er þekkt fyrir fegurð sína. Fyrir utan fjallið liggja þrjár veiðiár um jörðina, meðal annars Andakílsá. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Selt SVEITASTJÓRNIR Bragi Þór Thorodd- sen, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, sakar Sigurð Inga Jóhannsson, ráð- herra sveitarstjórnarmála, um hefndarhyggju. Tillögur nefndar um breytingu á framlögum úr jöfnunarsjóði sveit- arfélaga munu þýða að sum fámenn sveitarfélög missa allt að 170 millj- óna króna tekjur. Bragi segir að Súðavíkurhreppur fengi eftir breytingu rúmar 50 millj- ónir og missi 66 milljónir eða um 57 prósent frá síðustu úthlutun. „Þessar tillögur eru hefndargjöf frá Sigurði Inga,“ segir Bragi sem telur að ráðherrann hafi ekki þolað að verða undir í öðru tengdu máli. SJÁ SÍÐU 6 Sakar ráðherra um hefnigirni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.