Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 28
Það var mikið um dýrðir á Óskarsverðlaununum um helgina.
Engin Björk í svanakjól þó og stjörnurnar virtust að miklu leyti
halda sig við hefðbundna tískustrauma á rauða dreglinum sem
í ár var ekki einu sinni rauður. Korseletttískan er í algleymingi
hjá stjörnunum sem vöktu athygli.
odduraevar@frettabladid.is
Rauði dregillinn
sem var ekki
einu sinni rauður
Michelle
Yeoh skráði sig á
spjöld sögunnar og
vann Óskarsverðlaun
í kjól frá Dior Haute
Couture-tískuhúsinu
sem minnti helst á
skýjabakka.
Cara
Delevingne
var í Elie Saab-kjól
og skóm frá Stuart
Weitzman auk þess sem
hún bar skartgripi frá
Bulgari. Margir í ár voru
í svörtu eða hvítu en
Cara skar sig úr í
rauðu.
Jamie Lee
Curtis vann sín
fyrstu Óskarsverð-
laun um helgina og
var glæsileg í skart-
klæddum Dolce &
Gabbana kjól.
Ana
de Armas
klæddist
kampavíns-
lituðum Louis
Vuitton kjól.
Brendan
Fraser kom, sá
og sigraði og vann
Óskar fyrir hlutverk
sitt í The Whale, en hann
klæddist Giorgio Armani-
smóking á meðan eigin-
kona hans Jeanne Moore
klæddist himneskum
bláum kjól.
Dwayne
Johnson deildi
því að dóttir sín hefði
hjálpað sér að velja
Óskarsklæðnaðinn í ár.
Hann er í fagurbleikum
jakka frá Dolce &
Gabbana.
Annar
af tveimur
Daníelunum sem
unnu til verðlauna
fyrir leikstjórn Everything
Every where All At Once,
Daniel Kwan, minnti á fræg-
asta búninginn í myndinni
með sérlegum Punk-
jakkafötum.
24 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023
ÞRIÐJUDAGUR