Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 26
Draumaþjófurinn í uppsetningu Þjóðleikhússins er meingölluð sýning með töfrandi augnablikum að mati gagnrýnanda. MYNDIR/JORRI Gleðin og lífskrafturinn geislar af Þuríði Blævi í hlutverki Eyrnastórrar Aðalbarns Gullfallegrar Rottudísar. LEIKHÚS Draumaþjófurinn Þjóðleikhúsið Höfundur bókar: Gunnar Helgason Handrit söngleiks: Björk Jakobsdóttir Söngtextar: Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason og Hallgrímur Helgason Leikstjóri: Stefán Jónsson Tónlist og tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Leikarar: Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Örn Árnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðarson, Þórey Birgisdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Guðrún S. Gísladóttir, Pálmi Gestsson, Hákon Jóhannesson, Edda Arnljótsdóttir, Viktoría Sigurðardóttir, Oddur Júlíusson, Almar Blær Sigurjónsson, Saadia Auður Dhour, Kolbrún Helga Friðriksdóttir/Dagur Rafn Atlason, Guðmundur Einar Jónsson/ Nína Sólrún Tamimi, Oktavía Gunnarsdóttir/Rafney Birna Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Sturla Olsen/Kristín Þórdís Guðjónsdóttir, Rebekkah Chelsea Paul/Jean Daníel Seyo Sonde og Helgi Daníel Hannesson/Leó Guðrúnarson Jáuregui Dansar og sviðshreyfingar: Lee Proud Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: María Th. Ólafsdóttir Brúðuhönnun: Charlie Tymms Brúður - hugmynd og útlit: Charlie Tymms og Ilmur Stefánsdóttir Lýsing og myndbandshönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hlousek Hljóðmynd: Kristján Sigmundur Einarsson og Þóroddur Ingvarsson Hljóðfæraleikarar: Kjartan Valdemarsson, Haukur Gröndal og Einar Scheving Sigríður Jónsdóttir Gjáin á milli þjóðfélagsstétta stækk- ar með degi hverjum, ofgnótt þeirra sem eiga stækkar og lífsbarátta þeirra sem eiga ekki harðnar. Í for- garði helvítis er síðan flóttafólk í leit að betra lífi en kemur alls staðar að lokuðum dyrum. Hvernig er hægt að koma á jöfnuði í slíku samfélagi? Í Draumaþjófnum er reynt að svara þessum áleitnu spurningum og er hann eitt stærsta viðfangsefni Þjóð- leikhússins á þessu leikári. Öllu er tjaldað til og splunkunýr íslenskur söngleikur lítur dagsins ljós á Stóra sviðinu. Þjóðleikhúsið leggur hér allt undir í leit að smelli. Gunnar Helgason á stóran aðdá- endahóp í heimi barnabókmennta og tryggt sæti á metsölulistum. Draumaþjófurinn kom út á bók 2019 og fjallar um rottur sem berjast fyrir betri heimi. Björk Jakobsdóttir skrifar leikgerðina og Hallgrímur Helgason semur söngtextana í sam- vinnu við parið. Meingölluð uppbygging Á yfirborðinu geymir Drauma- þjófurinn margt gott. Ævintýra- heim þar sem barátta milli góðs og ills snýst um jöfnuð. Aðalpersónan er sterkur kvenkyns karakter. Þar með eru flestir kostirnir upptaldir, í söngleik sem minnir óneitanlega á Cats og áhrif Vesalinganna eru líka áþreifanleg. Handritsgallarnir eru fjölmargir og útfærslur ófull- nægjandi. Persónur verksins segja stöðugt frá viðburðum og útskýra í stað þess að höfundar sýni áhorf- endum veröldina. Uppbygging sögunnar er mein- gölluð, framvindan silast áfram og persóna sem kynnt er til sögunnar sem aðalpersóna hverfur fljótlega á braut. Aðalsagan er fremur veik og hliðarsögurnar sömuleiðis. Báta- rottunum eru aldrei gerð góð skil og áhorfendur kynnast þeim lítið. Sumir áherslupunktar eru útskýrðir út í hið óendanlega en aðrir alls ekki. Af hverju ákveður Eyrdís að leita að matarfjallinu? Af hverju sækist Ljúfur eftir völdum? Hvað gera bardagarotturnar? Söngtextarnir eru frekar til að útskýra söguþráðinn en að þróa persónurnar: „Við stöndum saman alla leið. Þá verður rottugatan greið! Við erum algjörir Hafnar- lands-himna-rottu-vinir. Erum besta teymi í heimi.“ Þessi tækni er gegnumgangandi allan tímann, að útskýra heiminn og söguþráð- inn. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur tónlistina og stjórnar en tekst ekki að skapa heildstæðan hljóm- heim. Fyrir utan einstaka lag eins og „Ekki gráta“ eru fá eftirminnileg. Grunnstefið vantar, lögin tengjast þannig ekki heldur eru samansafn af ólíkum hugmyndum. Blær heillar salinn Leikarahópurinn gerir sitt besta með takmarkað efni. Nærvera Þur- íðar Blævar heillar heilan sal og er frábært val fyrir söngleik af þessu tagi. Gleðin og lífskrafturinn geislar af henni í hlutverki Eyrnastórrar Aðalbarns Gullfallegrar Rottudísar, nafnið er dæmi um brandara sem er aldrei fyndinn. Kjartan Darri er svikinn af sínu hlutverki og fær Á villigötum í Hafnarlandi miklu minna að gera en söngleik- urinn lofar. Hann er þó algjörlega á réttri hillu, orkumikill með fína söngrödd. Örn á skilið orðu fyrir þjónustu sína í þágu barnaleikhúss. Hann gefur svo gríðarlega mikið af sér í hlutverki Hjassa Draumasmiðs, Old Deuteronomy að frönskum hefðarstíl. Þegar hann stígur á svið birtir til, íburðarmikill í anda Count de Monet og Mel Brooks. Þröstur Leó er honum til halds og trausts, til í tuskið og sjarmerandi. Hafnarlandi stjórnar Skögultönn foringi með harðri hendi, leikin af Steinunni Ólínu. Frammistaða hennar hverfur undir gervinu en kemur með skemmtilega en iðandi orku inn í sýninguna. Atli Rafn leikur Ljúf af miklum móð. Ljúfur þjáist af dansröskun, annað dæmi um hugmynd sem er sett fram en ekki vel framkvæmd. Gaman er að sjá unga og upprennandi leikara fjölmenna á sviðið í fjölbreyttum hlutverkum. Þórey í hlutverki Pílu er hressandi og lífleg. Viktoría grípur augnablikið og skilar sínum söng af mikilli fagmennsku. Oddur Júlíus- son er á heimavelli. Börnin standa sig með prýði og gefa sýningunni glaðværan lit. Spyrja má hvort ofaukið sé í leikarahópnum. Reyndir leikarar á borð við Pálma, Guðrúnu og Eddu týnast í fjöldanum. Styrk leikstjórn Stefán leiðir hópinn og með styrkri leikstjórn gerir hann hvað hann getur við efniviðinn. Senurnar f læða vel og samvinna hópsins er góð. Danshöfundurinn Lee Proud hefur séð betri daga. Dansarnir renna hver inn í annan, „Jó halló“ er undantekningin þrátt fyrir undar- leg efnistök. Ilmur Stefánsdóttir skapar leikmyndina og tekst ágæt- lega til. Hún leikur sér að hlutföll- um, allt er í rottustærð, og áferðum til að draga fram smáatriði til að skapa sviðsmyndirnar. María Th. Ólafsdóttir sér um búningana sem er frekar ruglingslegur gjörningur, í takt við söguna. Allt of margir ofhlaðnir heimar skarast og fáum eru gerð góð skil. Af hverju eru ítölsku veitingastaðar- rotturnar í f lamengóbúningum? Grímurnar sem leikararnir bera á höfði eiga að undirstrika rottugerv- in en eru ekki nægilega sýnilegar. Gleðin dvínar snögglega Senuþjófarnir eru stórkostlegar brúður Charlie Tymms, leikhús- draumar í raunheimi. Magnað er að berja tannhvassa selinn, svarta köttinn og fálkann f ljúgandi augum. Hver þeirra er eins og ljóð á hreyfingu, litríkir leikhústöfrar í öllum sínum krafti. Nýr íslenskur söngleikur er fagn- aðarefni, en gleðin dvínar snögglega þegar á hólminn er komið. Metn- aðurinn sem stjórnendur Þjóðleik- hússins hafa sett í Draumaþjófinn er sömuleiðis virðingarverður. Aftur á móti er veðjað á kolrangan söng- leik í annað sinn á leikárinu og upp- skeran er eftir því. Skilaboðin eru falleg, leikhópurinn gerir sitt allra besta og brúðurnar eru listaverk, en afspyrnu dapurt handrit verður söngleiknum að falli. n NIÐURSTAÐA: Þrátt fyrir töfrandi augnablik er Draumaþjófurinn kannski best geymdur á hafs- botni. Þrátt fyrir töfrandi augnablik er Drauma- þjófurinn kannski best geymdur á hafsbotni. 22 MENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.