Fréttablaðið - 14.03.2023, Qupperneq 26
Draumaþjófurinn í uppsetningu Þjóðleikhússins er meingölluð sýning með töfrandi augnablikum að mati gagnrýnanda. MYNDIR/JORRI
Gleðin og lífskrafturinn geislar af Þuríði Blævi í hlutverki Eyrnastórrar Aðalbarns Gullfallegrar Rottudísar.
LEIKHÚS
Draumaþjófurinn
Þjóðleikhúsið
Höfundur bókar: Gunnar
Helgason
Handrit söngleiks: Björk
Jakobsdóttir
Söngtextar: Björk Jakobsdóttir,
Gunnar Helgason og Hallgrímur
Helgason
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Tónlist og tónlistarstjórn:
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikarar: Þuríður Blær
Jóhannsdóttir, Kjartan Darri
Kristjánsson, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Örn Árnason,
Þröstur Leó Gunnarsson, Atli Rafn
Sigurðarson, Þórey Birgisdóttir,
Sigurbjartur Sturla Atlason,
Guðrún S. Gísladóttir, Pálmi
Gestsson, Hákon Jóhannesson,
Edda Arnljótsdóttir, Viktoría
Sigurðardóttir, Oddur Júlíusson,
Almar Blær Sigurjónsson, Saadia
Auður Dhour, Kolbrún Helga
Friðriksdóttir/Dagur Rafn Atlason,
Guðmundur Einar Jónsson/
Nína Sólrún Tamimi, Oktavía
Gunnarsdóttir/Rafney Birna
Guðmundsdóttir, Gunnlaugur
Sturla Olsen/Kristín Þórdís
Guðjónsdóttir, Rebekkah Chelsea
Paul/Jean Daníel Seyo Sonde
og Helgi Daníel Hannesson/Leó
Guðrúnarson Jáuregui
Dansar og sviðshreyfingar: Lee
Proud
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Brúðuhönnun: Charlie Tymms
Brúður - hugmynd og útlit: Charlie
Tymms og Ilmur Stefánsdóttir
Lýsing og myndbandshönnun:
Björn Bergsteinn Guðmundsson
og Petr Hlousek
Hljóðmynd: Kristján Sigmundur
Einarsson og Þóroddur Ingvarsson
Hljóðfæraleikarar: Kjartan
Valdemarsson, Haukur Gröndal og
Einar Scheving
Sigríður Jónsdóttir
Gjáin á milli þjóðfélagsstétta stækk-
ar með degi hverjum, ofgnótt þeirra
sem eiga stækkar og lífsbarátta
þeirra sem eiga ekki harðnar. Í for-
garði helvítis er síðan flóttafólk í leit
að betra lífi en kemur alls staðar að
lokuðum dyrum. Hvernig er hægt
að koma á jöfnuði í slíku samfélagi?
Í Draumaþjófnum er reynt að svara
þessum áleitnu spurningum og er
hann eitt stærsta viðfangsefni Þjóð-
leikhússins á þessu leikári. Öllu er
tjaldað til og splunkunýr íslenskur
söngleikur lítur dagsins ljós á Stóra
sviðinu. Þjóðleikhúsið leggur hér
allt undir í leit að smelli.
Gunnar Helgason á stóran aðdá-
endahóp í heimi barnabókmennta
og tryggt sæti á metsölulistum.
Draumaþjófurinn kom út á bók
2019 og fjallar um rottur sem berjast
fyrir betri heimi. Björk Jakobsdóttir
skrifar leikgerðina og Hallgrímur
Helgason semur söngtextana í sam-
vinnu við parið.
Meingölluð uppbygging
Á yfirborðinu geymir Drauma-
þjófurinn margt gott. Ævintýra-
heim þar sem barátta milli góðs og
ills snýst um jöfnuð. Aðalpersónan
er sterkur kvenkyns karakter. Þar
með eru flestir kostirnir upptaldir,
í söngleik sem minnir óneitanlega
á Cats og áhrif Vesalinganna eru
líka áþreifanleg. Handritsgallarnir
eru fjölmargir og útfærslur ófull-
nægjandi. Persónur verksins segja
stöðugt frá viðburðum og útskýra
í stað þess að höfundar sýni áhorf-
endum veröldina.
Uppbygging sögunnar er mein-
gölluð, framvindan silast áfram og
persóna sem kynnt er til sögunnar
sem aðalpersóna hverfur fljótlega á
braut. Aðalsagan er fremur veik og
hliðarsögurnar sömuleiðis. Báta-
rottunum eru aldrei gerð góð skil
og áhorfendur kynnast þeim lítið.
Sumir áherslupunktar eru útskýrðir
út í hið óendanlega en aðrir alls
ekki. Af hverju ákveður Eyrdís að
leita að matarfjallinu? Af hverju
sækist Ljúfur eftir völdum? Hvað
gera bardagarotturnar?
Söngtextarnir eru frekar til að
útskýra söguþráðinn en að þróa
persónurnar: „Við stöndum saman
alla leið. Þá verður rottugatan
greið! Við erum algjörir Hafnar-
lands-himna-rottu-vinir. Erum
besta teymi í heimi.“ Þessi tækni
er gegnumgangandi allan tímann,
að útskýra heiminn og söguþráð-
inn. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
semur tónlistina og stjórnar en tekst
ekki að skapa heildstæðan hljóm-
heim. Fyrir utan einstaka lag eins
og „Ekki gráta“ eru fá eftirminnileg.
Grunnstefið vantar, lögin tengjast
þannig ekki heldur eru samansafn
af ólíkum hugmyndum.
Blær heillar salinn
Leikarahópurinn gerir sitt besta
með takmarkað efni. Nærvera Þur-
íðar Blævar heillar heilan sal og er
frábært val fyrir söngleik af þessu
tagi. Gleðin og lífskrafturinn geislar
af henni í hlutverki Eyrnastórrar
Aðalbarns Gullfallegrar Rottudísar,
nafnið er dæmi um brandara sem
er aldrei fyndinn. Kjartan Darri er
svikinn af sínu hlutverki og fær
Á villigötum í Hafnarlandi
miklu minna að gera en söngleik-
urinn lofar. Hann er þó algjörlega
á réttri hillu, orkumikill með fína
söngrödd. Örn á skilið orðu fyrir
þjónustu sína í þágu barnaleikhúss.
Hann gefur svo gríðarlega mikið af
sér í hlutverki Hjassa Draumasmiðs,
Old Deuteronomy að frönskum
hefðarstíl. Þegar hann stígur á svið
birtir til, íburðarmikill í anda Count
de Monet og Mel Brooks. Þröstur
Leó er honum til halds og trausts,
til í tuskið og sjarmerandi.
Hafnarlandi stjórnar Skögultönn
foringi með harðri hendi, leikin
af Steinunni Ólínu. Frammistaða
hennar hverfur undir gervinu en
kemur með skemmtilega en iðandi
orku inn í sýninguna. Atli Rafn
leikur Ljúf af miklum móð. Ljúfur
þjáist af dansröskun, annað dæmi
um hugmynd sem er sett fram en
ekki vel framkvæmd. Gaman er að
sjá unga og upprennandi leikara
fjölmenna á sviðið í fjölbreyttum
hlutverkum. Þórey í hlutverki Pílu er
hressandi og lífleg. Viktoría grípur
augnablikið og skilar sínum söng af
mikilli fagmennsku. Oddur Júlíus-
son er á heimavelli. Börnin standa
sig með prýði og gefa sýningunni
glaðværan lit. Spyrja má hvort
ofaukið sé í leikarahópnum. Reyndir
leikarar á borð við Pálma, Guðrúnu
og Eddu týnast í fjöldanum.
Styrk leikstjórn
Stefán leiðir hópinn og með styrkri
leikstjórn gerir hann hvað hann
getur við efniviðinn. Senurnar
f læða vel og samvinna hópsins er
góð. Danshöfundurinn Lee Proud
hefur séð betri daga. Dansarnir
renna hver inn í annan, „Jó halló“ er
undantekningin þrátt fyrir undar-
leg efnistök. Ilmur Stefánsdóttir
skapar leikmyndina og tekst ágæt-
lega til. Hún leikur sér að hlutföll-
um, allt er í rottustærð, og áferðum
til að draga fram smáatriði til að
skapa sviðsmyndirnar. María Th.
Ólafsdóttir sér um búningana sem
er frekar ruglingslegur gjörningur,
í takt við söguna.
Allt of margir ofhlaðnir heimar
skarast og fáum eru gerð góð skil.
Af hverju eru ítölsku veitingastaðar-
rotturnar í f lamengóbúningum?
Grímurnar sem leikararnir bera á
höfði eiga að undirstrika rottugerv-
in en eru ekki nægilega sýnilegar.
Gleðin dvínar snögglega
Senuþjófarnir eru stórkostlegar
brúður Charlie Tymms, leikhús-
draumar í raunheimi. Magnað er
að berja tannhvassa selinn, svarta
köttinn og fálkann f ljúgandi
augum. Hver þeirra er eins og ljóð
á hreyfingu, litríkir leikhústöfrar í
öllum sínum krafti.
Nýr íslenskur söngleikur er fagn-
aðarefni, en gleðin dvínar snögglega
þegar á hólminn er komið. Metn-
aðurinn sem stjórnendur Þjóðleik-
hússins hafa sett í Draumaþjófinn
er sömuleiðis virðingarverður. Aftur
á móti er veðjað á kolrangan söng-
leik í annað sinn á leikárinu og upp-
skeran er eftir því. Skilaboðin eru
falleg, leikhópurinn gerir sitt allra
besta og brúðurnar eru listaverk,
en afspyrnu dapurt handrit verður
söngleiknum að falli. n
NIÐURSTAÐA: Þrátt fyrir töfrandi
augnablik er Draumaþjófurinn
kannski best geymdur á hafs-
botni.
Þrátt fyrir töfrandi
augnablik er Drauma-
þjófurinn kannski best
geymdur á hafsbotni.
22 MENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023
ÞRIÐJUDAGUR