Fréttablaðið - 14.03.2023, Síða 10

Fréttablaðið - 14.03.2023, Síða 10
Hernaðarsérfræðingar segja að Bakhmút hafi lítið sem ekkert hern- arlegt mikilvægi. Vilja koma í veg fyrir stórfelldan olíuleka Sameinuðu þjóðirnar hafa keypt olíuskip sem mun hafa það verkefni að arlægja 1,1 milljón tunnur af hráolíu úr skipi undan strönd Jemen til að koma í veg fyrir umhversslys. Heimildir: UNDP, CEOBS, Reuters Myndir: SÞ, Apple Maps © GRAPHIC NEWS J E M E N Sana ÓMAN ERÍTREA SÁDI-ARABÍA EÞÍÓPÍA DJÍBÚTÍ S Ó M A L Í A 125 mílur 200 km Bab-el- Mandeb Aden‹ói INDLANDS- HAF Rauðahaf Skipið geymir •órum sinnum meira af olíu en það magn sem fór í sjóinn við Alaska í Exxon Valdez slysinu 1989. Olíuleki myndi hafa stórfelld áhrif á Ÿskveiði, menga næsta umhverŸ og hindra ‹utning á nauðsynlegum matarbirgðum til Jemen. Kostnaður við hreinsun á lekanum myndi nema 20 milljörðum dala. SÞ vara við því að burðarvirki skipsins sé að brotna niður og gæti skipið sprungið. Olíuskipið FSO Safer Óhrey¢ síðan 1988 og yŸrgeŸð þegar borgarastríðið í Jemen hófst árið 2015 129$m. Heildarkostnaður Móttekið 75$m. Lofað 20$m. Vantar 34$m. Maí 2023: Olíuskip sem keypt var af Euronav á 55 milljónir dollara kemur frá Kína. J E M E N Hodeida R A U Ð A H A F Ras Isa- olíustöðin FSO Safer 6 mílur 10 km Achim Steiner, framkvæmdastjóri Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, segir að olíuleki myndi hafa gríðarleg áhrif í Rauðahafi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Olíuskipið SFO Safer hefur marað yfirgefið í Rauðahafi undan ströndum Jemen, með milljón tunnur af olíu um borð. Sameinuðu þjóðirnar vara við því að skipið gæti sprungið og ætla að fjarlægja olíuna úr því. helgisteinar@frettabladid.is JEMEN Sameinuðu þjóðirnar festu nýlega kaup á risastóru olíuskipi í von um að afstýra stórfelldu umhverfisslysi undan ströndum Jemen. Skipið mun hafa það verk- efni að fjarlægja rúmlega milljón tunnur af hráolíu úr öðru yfir- gefnu olíuskipi sem gæti mögulega sprungið í loft upp. Olíuskipið FSO Safer var smíðað árið 1976 fyrir japanska olíufyrir- tækið Hitachi Zosen og fékk þá nafnið Esso Japan. Skipið var svo selt til jemensku ríkisstjórnarinnar árið 1987 og breyttist þá í SFO Safer. Olíuskipið var svo yfirgefið þegar borgarastríðið í Jemen hófst árið 2015 og var á þeim tímapunkti með heilmikla olíu um borð. Síðan þá hefur burðarvirki skipsins rýrnað töluvert. Árið 2020 vöruðu Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, við því að skyldi FSO Safer springa yrði olíulekinn fjórfalt meiri en þegar olía lak úr Exxon Val- dez-skipinu við strendur Alaska árið 1989. Lekinn myndi hafa gríðarleg áhrif á sjávarlíf en rúmlega 1,7 millj- ónir manna á þessu svæði reiða sig á fiskveiðar. Þar að auki myndi lekinn hindra bráðnauðsynlega matarað- stoð sem tæplega helmingur íbúa í Jemen gæti ekki lifað án. SÞ hafa undanfarin ár reynt að finna lausn á vandamálinu og óskað eftir fjárhagsaðstoð. Núverandi áætlun um að færa hráolíuna frá einu skipi yfir í annað mun kosta tæplega 130 milljónir Bandaríkja- dala. SÞ hafa þegar fengið rúmlega 60 prósent af þeirri upphæð og mun fyrsti leggur verkefnisins hefjast í maí á þessu ári þegar nýkeypta skipið á að sigla frá Kína þar sem það er í slipp. Achim Steiner, framkvæmdastjóri Þróunaráætlunar SÞ (e. UNDP), segir kaupin á skipinu marka mikilvægt skref í áætlun SÞ um að fjarlægja olíuna sem er um borð. Hann segir að einnig þurfi að fjarlægja olíuna á öruggan hátt til að forðast umhverf- isslys. „Stórfelldur olíuleki myndi gjör- samlega rústa fiskveiðisamfélögum í kringum Rauðahaf þar sem 200 þús- und störf við fiskveiðar hyrfu sam- stundis. Þar að auki myndi mengun- in hafa bein áhrif á milljónir manna þar í kring sem væru berskjaldaðar fyrir öllum þeim eiturefnum sem eru um borð.“ Í mars 2022 veitti svo Mohammed al-Houthi, leiðtogi stjórnarsvæðis Húta í vesturhluta Jemen, Samein- uðu þjóðunum leyfi til að dæla olí- unni yfir í annað skip. „Ég skal vera fullkomlega hrein- skilinn, þetta er áhættusamt verk- efni og margt gæti farið úrskeiðis. Það gæti líka gerst að við þurfum að hætta við ef við náum ekki að safna nægu fjármagni,“ segir Steiner. n Tifandi tímasprengja í Rauðahafinu helgisteinar@frettabladid.is ÚKRAÍNA Bæði Rússland og Úkraína hafa greint frá töluverðu mann- falli seinustu daga í orrustunni við Bakh mút í austurhluta Úkraínu. Rússneski herinn hefur nú reynt í marga mánuði að hertaka bæinn. Volodímír Zelenskíj, forseti Úkra- ínu, greindi frá því að 1.100 rúss- neskir hermenn hefðu látið lífið á seinustu dögum. Að sama skapi sögðu rússnesk yfirvöld að þau hefuð drepið 220 úkraínska her- menn á einum sólarhring. Hvorug talan hefur þó verið staðfest af þriðja aðila. Hernaðarsérfræðingar segja að mannfallið sé í engu samræmi við hernaðarlegt mikilvægi Bakhmút, sem sé lítið sem ekkert. Hins vegar virðist sem bærinn hafi breyst í nokkurs konar sál- fræðilegan miðpunkt í augum rúss- neskra yfirvalda sem vonast til að geta notað hann til að gefa almenn- ingi í Rússlandi einhverjar góðar fregnir af gangi stríðsins. n Rússar og Úkraínumenn stráfalla í orrustunni við Bakhmút Bandarískir hermenn á heræfingum rúmlega hundrað kílómetrum sunnan við suður-kóresku höfuð- borgina Seúl. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA helgisteinar@frettabladid.is SUÐUR-KÓREA Stærstu sameiginlegu heræfingar bandaríska og suður- kóreska hersins síðan árið 2018 hóf- ust í gær. Æfingarnar voru ákveðnar í ljósi vaxandi spennu sem ríkir nú á Kóreu skaganum og vegna aukinna um svifa kín verska sjó hersins. Norður-Kóreumenn héldu sínar eigin heræfingar í mótmælaskyni og skutu meðal annars tveimur lang- drægum f lugskeytum úr kaf bát. Þarlendir ríkismiðlar segja að flug- skeytin hafi f logið í tvær klukku- stundir og geti slík f lugskeyti hæft skotmörk í 1.500 kílómetra fjar- lægð. n Aukin spenna á Kóreuskaganum arnartomas@frettabladid.is INDLAND Tveimur namibískum blettatígrum, sem f luttir voru til Indlands á síðasta ári, hefur nú verið sleppt út í náttúruna. Rúmir sjö áratugir eru liðnir síðan bletta- tígrar voru úrskurðaðir útdauðir á Indlandi. Tólf aðrir blettatígrar voru fluttir til Indlands frá Suður-Afríku í síð- asta mánuði en yfirvöld stefna að því að flytja inn um hundrað þeirra á næsta áratug. Talið er að síðasti blettatígurinn sem lifði frjáls í Suður-Asíu hafi verið veiddur árið 1947 af indversk- um prins. Var tegundin úrskurðuð útdauð á Indlandi árið 1952. Bhupender Yadav, umhverfis- ráðherra Indlands, sagði á Twitter- aðgangi sínum að dýrin bæru sig vel eftir að þeim var sleppt í Kuno-þjóð- garðinum. n Blettatígrar aftur í náttúru Indlands Úkraínskur stórskotaliðs- hermaður tekur á móti hnitum um mögulegar staðsetningar á rússneskum hersveitum í Bakhmút. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Tegundin var úrskurðuð útdauð á Indlandi árið 1952. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 10 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.