Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 14
Þá er vert að muna að vel mannaðar sjúkra- stofnanir og fjöl- breyttar aðgerðir eru grundvöllur þess að sjúkrahúsin okkar séu góðar menntastofn- anir fyrir heilbrigðis- starfsmenn framtíðar- innar. Nudd Nudd Nudd Slökunarnudd í miðbæ Reykjarvíkur. Lausir tímar. Sími 694 7881, Janna. Hér á landi höfum búið við traust opinbert heilbrigðiskerfi þar sem öll eiga sama rétt til þjónustu óháð efnahag og stöðu. Áhyggjuefni er hve langir biðlistar eru eftir aðgerð­ um, að fólk standi frammi fyrir því að leggja út í mikinn kostnað til að komast í aðgerðir utan almenna heilbrigðiskerfisins. Það eru fjárút­ lát sem sum okkar ráða einfaldlega ekki við, enda viljum við ekki sam­ félag þar sem samfélagssáttmáli um jafnt aðgengi allra að heilbrigðis­ þjónustu er rofinn, án aðkomu hins opinbera mun framboð af aðgerð­ um innan einkageirans því frekar nýtast efnafólki og ekki reynast sú blessun sem einhverjir horfa til. Við sjáum í fjölmiðlum að stjórn­ end ur rík is rek inna sjúkra húsa ótt ast að sjúkra hús in veikist ef sér­ fræð ing ar fari í enn ríkara mæli til einka rek inna fyr ir tækja. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk ótt­ ast að samhliða aukinni útvistun læknisaðgerða til einkaaðila muni Landspítalinn og aðrar heilbrigðis­ stofnanir missa frá sér starfsfólk. Okkar helstu stofnanir búa nú þegar við alvarlegan mönnunarvanda en fram hefur komið að hér vanti m.a. röntgenlækna, skurðhjúkrunar­ fræðinga og hjúkrunarfræðinga til þess að manna legudeildir, tóm legupláss og ónýttar skurðstofur. Það getur því orðið til að auka enn á vandann og lengja biðlista að missa gott starfsfólk úr opinberri starfsemi. Þá er vert að muna að vel mannaðar sjúkrastofnanir og fjöl­ breyttar aðgerðir eru grundvöllur þess að sjúkrahúsin okkar séu góðar menntastofnanir fyrir heilbrigðis­ starfsmenn framtíðarinnar. For stjóri Land spít al ans hefur varað við því að far ið verði stjórn­ laust í átt til einka væð ing ar. Í mínum huga er ótækt að ráðast í frekari útvistun verkefna úr almenna heilbrigðiskerfinu til einkaaðila án stefnumarkandi ákvarðana sem lúta að því að einka­ væða íslenska heilbrigðiskerfið. Það er ekki þjóðarvilji fyrir slíku. Í mínum huga mun sú vegferð að útvista í ríkara mæli aðgerðum til einkaaðila aðeins auka kostnað sjúklinga, kostnað ríkisins af rekstri heilbrigðiskerfisins og mönnunar­ vandann á okkar helstu sjúkra­ stofnunum. Fjármunir sem annars rynnu til aðgerða á tómum skurð­ stofum hjá opinberum heilbrigðis­ stofnunum renni til annars og dýrara kerfis utan þeirra. Það má vel semja við einkaaðila til skamms tíma á meðan hið opinbera kerfi nær vopnum sínum og til að stytta biðlista, en til lengri tíma verður að tryggja í hvívetna öflugt opinvert heilbrigðiskerfi, um það er þjóðar­ sátt. Engum hugnast að hér verði til nýtt kerfi byggt á einkavæðingu heilbrigðisþjónustu. n Samfélagssáttmáli um aðgengi allra að opinberri heilbrigðisþjónustu Bjarni Jónsson þingmaður Vinstri grænna Fyrir fólk í leit af nýjum tækifærum Nú stefnir í enn meira neyðarástand í leikskólamálum í Reykjavík vegna starfsskerðingar eða lokunar fjölda leikskóla sem hafa orðið myglu og áratuga löngu viðhaldsleysi að bráð. Þrátt fyrir síendurtekin loforð Sam­ fylkingarinnar um að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólans hefur innritunaraldur raunar farið hækkandi á mörgum leikskólum og nú stefnir í að börn komist ekki að fyrr en hátt í þriggja ára gömul í einhverjum leikskólum. Viðhalds­ fælni meirihluta Samfylkingarinnar virðist vera inngróin í erfðamengi hennar enda hafa bæði leikskóla­ og grunnskólabyggingar verið illa hirt­ ar síðan 2008. Samfylkingin hefur innleitt metnaðarleysi í málefnum barna í borginni sem birtist ekki síst í skólabyggingum og umhirðu þeirra. Fyrir stuttu síðan rakst ég á myndir frá sumrinu 1957 af borgar­ stjórahjónunum Gunnari Thorodd­ sen og Völu Ásgeirsdóttur ásamt Auði Auðuns borgarfulltrúa, síðar meir fyrsta kvenkyns borgarstjóra Reykjavíkur (öll frá Sjálfstæðis­ flokki), þar sem þau ganga á löngum dregli við hátíðlega athöfn í Mela­ skóla í tilefni heimsóknar finnsku forsetahjónanna. Saga Melaskóla er fyrir margt mjög merkileg en þá kannski sérstaklega fyrir það hversu táknrænn skólinn er fyrir ríkjandi viðhorf í uppbyggingu barnaskóla sem og annarra opinberra bygg­ inga á þessum tíma. Þegar ákveðið var byggja Melaskóla í stríðslok var öllu tjaldað til og okkar færasta fólk fengið til að hanna og skreyta skól­ ann af listaverkum. Skólahald hófst 1946 í reyndar ókláruðum skóla en afraksturinn var þessi glæsilega bygging utan um okkar dýrmætasta fólk. Byggingin þótti svo mikil prýði að í f leiri áratugi lék skólinn lykil­ hlutverk í móttöku erlendra þjóð­ höfðingja eins og finnsku forseta­ hjónanna en einnig má nefna að þegar þeir Gorbatsjov og Reagan komu hingað til lands til að ljúka kalda stríðinu fundum við sama­ stað í Melaskóla fyrir alla erlendu ljósmyndarana sem fylgdu með til að sýna þeim okkar bestu hliðar. Þá má hafa í huga að þegar skólinn var byggður voru borgar­ og ríkis­ sjóður alls ekki jafn digrir og nú en metnaðurinn fyrir reykvísk börn var þess meiri. Margar bygginganna sem byggðar voru á þessum tíma og í þessum samfélagslega anda (t.d. Austurbæjarskóli) standa enn sem tímalausar og glæsilegar vörður í sögu Reykjavíkur. Mér þykir stundum gleymast að borgir eru líka söfn og það eru þess­ ar byggingar sem og litlu bárujárns­ húsin sem trekkja að og segja sögu íbúa borgarinnar. Allt eru þetta miklar menningarminjar að mínu mati og fyrir vikið hefur sinnu­ leysi borgaryfirvalda gagnvart Melaskóla verið sérlega dapurlegt. Í áraraðir hafa skólastjórnendur og kennarar kallað eftir viðhaldsfé til skólans og listaverkum hans og varað við afleiðingum þessa hirðu­ leysis. Myglan á þar sérstakan sess líkt og í f lestum skólabyggingum borgarinnar, ofan á allt hitt. Nú á að fara í viðhaldsátak í skólabygg­ ingum borgarinnar sem svo sem er vonarglæta í annars myrkri sögu tæplega 15 ára viðhaldsleysis en átök og áætlanir hafa oftast reynst villuljós. Sjálfstæðismenn þurfa að komast í meirihluta í borgarstjórn og endurvekja metnaðinn til betri bygginga fyrir börn. n Börn eiga betri byggingar skilið Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins 14 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.