Fréttablaðið - 14.03.2023, Side 15

Fréttablaðið - 14.03.2023, Side 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 14. mars 2023 Boltinn á hilluna fyrir kokkinn Aþena Þöll Gunnarsdóttir stundaði knattspyrnu með unglingalandsliðinu og hafði hugsað sér framtíðina í boltanum þegar hún féll fyrir kokkinum og hóf nám í matreiðslu, sem hún lauk síðasta vor. Nú stefnir hún á bakaranám. 2 Aþena Þöll með marsípankökuna góðu sem er þakin saltkaramellu. Aþena segir auðvelt að gera kökuna og að hún passi við öll tækifæri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Skúli Bragi Geirdal heldur fræðslu- fund fyrir foreldra um samfélags- miðla í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI starri@frettabladid.is Fræðslufundur fyrir foreldra um samfélagsmiðla verður haldinn í Hlöðunni við Gufunesbæ í Grafar- vogi í kvöld en þar mun Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjöl- miðlanefnd, halda erindi. Skúli var einmitt einn gesta í Silfri Egils síðasta sunnudag á RÚV þar sem áhrif samfélagsmiðlanotk- unar á börn og ungmenni voru rædd en þátturinn hefur vakið mikla athygli. Á fundinum í kvöld skoðar Skúli hvernig algóritmar samfélags- miðla virkar, hvað þarf að hafa í huga varðandi samskipti á netinu, áreiti frá ókunnugum og deilingu nektarmynda og ýmsa aðra þætti. „Það er okkar hlutverk sem for- eldra að undirbúa börnin okkar sem best til þess að takast á við lífið og tilveruna, segir Skúli. Allt annað umhverfi „Umhverfi okkar í dag er allt annað en það var fyrir 30 árum síðan þegar Wi-fi, Bluetooth og sam- félagsmiðlar voru ekki hluti af veruleika okkar. Afleiðingarnar af því að senda börnin út í umferðina á netinu án þess að kenna þeim umferðarreglurnar geta verið gríðarlega alvarlegar.“ Fundurinn hefst klukkan 19 og stendur yfir í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis. n Samfélagsmiðlar fyrir fullorðna Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.