Fréttablaðið - 14.03.2023, Blaðsíða 18
Garðurinn er að
verða sannkallað
spa-svæði og krafan um
æfingasvæði í garðinum
æ algengari. Sumir hafa
útbúið gervigrassvæði
með lóðum, ketilbjöll-
um og öðrum lyftinga-
búnaði.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Björn Jóhannsson, landslags-
arkitekt hjá Urban Beat, segir
síðasta ár hafa verið magnað
og að þau hafi aldrei séð eins
marga garða byggjast upp
með hugmyndafræði Urban
Beat, sem snýst um að hanna
þannig að jafnskemmtilegt
sé að vera úti í garði og inni,
helst allan ársins hring.
Við fengum Björn til að ljóstra upp
því sem verður heitast í garða
hönnun á nýju ári.
„Við höfum unnið með ýmsar
nýstárlegar hugmyndir en fyrir
fjórum árum leit kampavíns
veggurinn dagsins ljós. Það er fastur
veggur í barborðshæð þar sem hægt
er að leggja frá sér diska, bolla og
kampavínsglös. Á síðasta ári var
þessi hugmynd tekin enn lengra og
byggður garður þar sem þemað var
kampavín og samkvæmi. Sá garður
fékk nafnið kampavínsgarðurinn
enda í eigu þeirra sem eiga og reka
Kampavínsfjélagið. Kampavíns
garðurinn var svo tekinn sérstak
lega fyrir í þætti Sjafnar Þórðar, Mat
og heimilum, þar sem ferlinu öllu
voru gerð góð skil. Þar var eigend
um, hönnuði og verktökum fylgt
eftir allt frá fæðingu hugmyndar að
fyrstu garðveislunni,“ segir Björn og
bætir við að þetta sé eitt af því sem
verður heitt á nýju ári.
„Í hönnun og framkvæmdum
ársins 2022 var áberandi hvað
garðeigendur vildu fá tækifæri til
að eyða meiri tíma í garðinum.
Þeir vildu aukna möguleika til
afþreyingar og tók hönnun mið af
því. Þannig verður hægt að nýta
garðinn mjög vel að sumri, en einn
ig á öðrum tímum. Þar spila stærstu
rulluna smáhýsi, skýli, gróðurhús,
geislahitarar, heitir pottar, sánur og
útieldhús. Þannig er hægt að slappa
af, stunda íþróttir og elda góðan
mat í garðinum þótt sólin sé ekki
hátt á lofti.“
Kryddjurtabar og trúnóbekkur
Hvað spáir þú að verði áberandi í
hönnun garða og framkvæmdum á
nýju ári?
„Fyrir marga er kampavíns
veggurinn gömul frétt en hann kom
fyrst fram á sjónarsviðið þegar ég
flutti heim frá Svíþjóð með aragrúa
af skemmtilegum hugmyndum.
Þetta er í raun bara venjulegur
veggur í sömu hæð og barborð,
með góðri borðplötu og breidd sem
rúmar snittur, bjórkönnur og að
sjálfsögðu kampavín, kælifötu og
glös. Kampavínsveggurinn fékk á
síðasta ári tvo arftaka og munu þeir
verða áberandi á því næsta. Annar
mun breyta talsvert möguleikum
til matargerðarlistar utandyra
en það er kryddjurtabarinn sem
er upphækkað gróðurbeð útfært
þannig að auðvelt sé að sjá þar
um nokkrar vel valdar krydd
jurtir. Staðsetning er að sjálfsögðu í
nágrenni útieldhússins og því auð
velt að grípa lófafylli af uppáhalds
blaðkryddinu og strá yfir steikina
eða salatið,“ segir Björn.
Hinn arftaki kampavínsveggsins
er trúnóbekkurinn sem fékk nafn
sitt á aðalfundi Félags skrúðgarð
yrkjumeistara þegar þeir fengu að
skoða nýhannaðan garð í sýndar
veruleika.
„Kampavínsgarðurinn varð fyrir
valinu sem sýnisdæmi í sýndar
veruleika og þegar garðyrkjumeist
ararnir settu upp sýndarhjálminn
upphófst skemmtilegt samtal um
þennan veisluvæna garð. Eitt af því
sem prýðir garðinn er innbyggður
bekkur með hallandi baki og sléttri
syllu efst á bakinu. Þar má leggja
frá sér glös, matardiska og annað
gagnlegt. Eftir nokkra umræðu
fékk bekkurinn nafnið Trúnó
bekkurinn því þeim þótti upplagt
að nýta hann í lok veislunnar fyrir
trúnaðarsamtöl og þá má leggja frá
Trúnóbekkur og kryddjurtabar í sumargarðinn
Björn Jóhanns-
son spáir því
að kampavíns-
veggurinn fái
tvo arftaka á
árinu; krydd-
jurtabarinn og
trúnóbekkinn
þegar kemur
að nýjungum í
garðahönnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Æðislegt
útieldhús með
yfirbyggðu
þaki, plássi
fyrir gasgrill og
kolagrill, góðu
vinnuborði og
geymslum fyrir
mat og drykk.
MYNDIR/AÐSENDAR
Sumargarðurinn er paradís með hengirúmi og aðstöðu fyrir öll lífins ævintýr. Trúnóbekkur er nauðsyn á fallegum sumardögum.
Notalegt svæði
fyrir krakka til
að njóta lífsins
í rólegum takti
eftir önnur
skemmtileg
ærsl og gleði.
sér síðasta drykk kvöldsins á glasa
sylluna. Við gerum ráð fyrir áfram
haldandi þróun og skemmtilegri
útfærslu trúnóbekksins á næsta
ári,“ segir Björn og brosir.
Útieldhúsið á næsta stig
Fyrir tuttugu árum var nóg að
finna skjólgóðan stað fyrir grillið
og eiga góða hlíf til að skella yfir
þegar það var ekki í notkun. Auk
þess var grillið aðallega notað á
sumrin og geymt inni í bílskúr yfir
vetrartímann. Fyrir áratug færðist
svo í aukana að grilla allt árið og þá
þurfti að vera pláss fyrir grillið, smá
vinnusvæði og staður til að geyma
grillið eða skýla því á veturna.
„Í fyrra voru svo aðstæður fyrir
grill og útieldhús hreinlega komnar
á annað og hærra plan. Það þurfti
að vera pláss fyrir gasgrill og kola
grill ásamt vinnuborði með góðu
gólfplássi til að athafna sig. Þar
átti einnig að vera pláss fyrir lítinn
gasdrifinn pitsaofn og helst það
stórt þak að svæðið rúmaði pláss
fyrir fjögurra til sex manna borð
til að snæða við. Þannig er ekkert
mál að borða úti þegar aðeins
dropar úr skýjum. Við spáum því
að þessi þróun muni halda áfram
og geymslur fyrir mat, vaskar, sam
byggðar geymslur fyrir grillið og
ýmis búnaður sem ekki hefur sést
utandyra verði meira áberandi í
útieldhúsum landsmanna,“ segir
Björn.
Íþróttasvæði og spa í garðinn
Árið 2022 var árið sem dekur
íslensku sundlauganna færðist inn
í garðinn. Heiti potturinn hefur
verið gríðarlega vinsæll síðustu
áratugi en með áhrifum frá Norður
löndunum og víðar hafa bæst við
kaldur pottur, sána og útisturta.
„Garðurinn er að verða sann
kallað spasvæði. Með auknum
vinsældum CrossFitæfinga sem
heilsubótar verður krafan um
æfingasvæði í garðinum algengara.
Sumir hafa svo útbúið lítið gervi
grassvæði með lóðum, ketilbjöllum
og öðrum lyftingabúnaði. Við
sjáum fyrir okkur að á árinu verði
íþróttahlutinn tekinn enn lengra.
Í flestum görðum má reisa 15 fer
metra smáhýsi sem fólk hefur nýtt
sér á ýmsan hátt. Það má til dæmis
sjá fyrir sér spinninghjól sem snýr
að stórum útsýnisglugga og upp
hífingarstangir fyrir þá allra hörð
ustu. Svo má taka svæðið fyrir utan
smáhýsið og þekja með tartan efni
eða gervigrasi,“ segir Björn.
Róleg afþreying fyrir krakka
Síðustu áratugi hefur verið ofur
áhersla á tækifæri til ærslafullra
leikja með rólum, köstulum, og
öðrum hreyfihvetjandi leiktækjum.
„Fyrir nokkrum árum tókum
við eftir að trampólínin, sem lengi
hafa verið vinsælustu leiktækin
í görðum, voru ekki bara notuð í
hopp og ærsl, heldur áttu krakk
arnir það til að liggja hlið við hlið
á mjúkri hoppudýnunni, horfa
upp í himin og kjafta um heima og
geima. Þannig fæddist sú hugmynd
að kannski þurfi krakkar líka tæki
færi til að hangsa eins og fullorðna
fólkið. Þar koma rólubekkurinn og
klassíska hengirólan sterkt inn.“
Sjá garðinn í sýndarveruleika
Vert er að geta þess að þau hjá
Urban Beat sýna öll verkefni sín í
sýndarveruleika.
„Árið 2019 byrjuðum við að
vinna með tölvuleikjatækni og
sýndarveruleika og 2022 kláruðum
við að færa öll verkefni yfir á þetta
form. Þannig fá allir viðskipta
vinir okkar tækifæri til að upp
lifa garðinn í sýndarveruleika og
aðgang að svæði á netinu þar sem
hægt er að ganga í gegnum garðinn
líkt og í tölvuleik. Sýndarveruleiki
er orðin venjulega leiðin til þess
að sýna verkefnin okkar. Á næsta
ári munum við halda áfram að
þróa þessa tækni og ekki mun líða
langur tími þar til hægt verður að
skoða garðsvæðin í viðbættum
veruleika. Þannig mun viðskipta
vinurinn geta beint myndavél
snjallsímans að svæði í garðinum
og sjá á skjánum hvernig svæðið
mun líta út,“ segir Björn og er
orðinn afar spenntur fyrir fram
tíðinni. n
4 kynningarblað A L LT 14. mars 2023 ÞRIÐJUDAGUR