Fréttablaðið - 14.03.2023, Page 22

Fréttablaðið - 14.03.2023, Page 22
Að alast upp í Vaðbrekku í Hrafnkelsdal var umhverfi sem var frjótt fyrir slíka hugsun. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . MERKISATBURÐIR | Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Einar Runólfsson lést sunnudaginn 19. febrúar sl. á líknardeild Landspítalans. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórunn Guðbjörnsdóttir Runólfur Óskar Einarsson Þórólfur Björn Einarsson Jóhanna Björk Gísladóttir Bjarki Valur Þórólfsson Sævar Hugi Þórólfsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Oddur Friðriksson frá Gróustöðum, lést á Barmahlíð Reykhólum 6. mars. Útför hans fer fram frá Garpsdalskirkju föstudaginn 17. mars kl. 13. Friðrik Jónsson Hugrún Einarsdóttir Bergsveinn Reynisson Stefán Jónsson Bára Borg Smáradóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskaður eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Ragnar Jónsson hárskeri, lést 8. mars sl. Jarðarförin auglýst síðar. Anna Þórdís Bjarnadóttir Ómar Stefánsson Arnheiður Skæringsdóttir Hanna Sigríður Stefánsd. Vilhjálmur Hörður Guðlaugss. Jón Þorgrímur Stefánsson Kristín Ásta Matthíasdóttir barnabörn og barnabarnabörn Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jón G. Bjarnason S: 793 4455 Jóhanna Eiríksdóttir Útfararstofa Íslands www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararstofa Hafnarfjarðar www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Eiríkur Skjöldur Þorkelsson mjólkurfræðingur, lést miðvikudaginn 8. mars. Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Sigrún Skaftadóttir Anna Eiríksdóttir Elín Eiríksdóttir Hermann G. Bridde Rebekka, Sigrún, Eiríkur, Silja, Sandra, Axel og Hafalda Elín Hagyrðingurinn Snorri Aðalsteins- son sendi nýlega frá sér sína fyrstu ljóðabók, stútfulla af uppsöfnuðu efni. Hann leitar nú að áhugasöm- um söngvara til að tækla þýðingu sína á írskum klassíker. arnartomas@frettabladid.is Snorri Aðalsteinsson frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal sendi nýlega frá sér sína fyrstu ljóðabók, Gullvör. Þar má finna ljóð og lausavísur eftir Snorra sem teygja sig yfir ansi langt tímabil. „Ég hef verið að semja meira og minna alla ævi,“ segir Snorri sem er sextíu og eins árs gamall. „Ragnar Ingi Aðalsteins- son, föðurbróður minn, benti mér á að þegar maður er orðinn sextugur þá sé tímabært að opinbera það sem maður hefur verið að fást við. Það er algjörlega honum að kenna að þessi bók er komin út.“ Snorri segir að Ragnar Ingi eigi mikið inni í baráttunni fyrir hefðbundna ljóð- forminu. „Hann lætur engan í friði sem er með í skúffunum sínum eitthvað sem honum finnst bitastætt,“ segir Snorri. „Það jók manni heilmikið sjálfstraust þegar maður sem hefur varið doktorsritgerð í íslenskri bragfræði hælir kveðskap hjá manni og telur að hann eigi fullt erindi hjá almenningi.“ Hagyrðingar og harmonikkur Kveðskapurinn í Gullvör segir Snorri að taki á sigrum og vonbrigðum í lífi hans. Bókinni er skipt í þrjá hluta: Ljóð og lausavísur, ljóð á ensku og ljóð af hag- yrðingamótum. „Efni bókarinnar spannar kannski tímann frá því að ég var tuttugu og fimm ára eða þegar maður var farinn að hafa eitthvert vald á kveðskap,“ segir hann. „Að alast upp í Vaðbrekku í Hrafnkelsdal var umhverfi sem var frjótt fyrir slíka hugsun.“ Viðtökur við Gullvör segir Snorri hafa verið góðar og að það gleðji hann sér- staklega hvað lesendur tengja við ólík ljóð bókarinnar. Hluti af kveðskapnum er upprunninn á hagyrðingamótum sem Snorri hefur tekið þátt í í gegnum árin. „Félag harmonikkuunnenda á Horna- firði byrjaði með hagyrðingakvöld á Smyrlabjörgum í Suðursveit,“ segir Snorri um kvöldin sem hafa verið fjög- ur til þessa. „Þetta hefur vakið feiknar lukku og oftar en ekki hefur verið hús- fylli. Það var þá sem ég uppgötvaði hvar er best að fara með kveðskap, því oft fær hann misgóðar undirtektir, en þarna ertu með tvö hundruð manns sem eru komnir til að hlusta á kveðskap.“ Í fjarska flautur kalla Meðal þess sem er að finna í bók Snorra er íslensk þýðing hans á írska ljóðinu Danny boy eftir Frederic Weatherly sem er jafnan sungið í ballöðuformi af mikilli angurværð. „Ég er mjög ánægður með þessa þýðingu mína því hún er samin eftir hefðbundnum reglum án þess að vera mjög hallærisleg,“ útskýrir Snorri. „Ég vil endilega koma því á rekspöl að mig langar að finna einhvern sem treystir sér til að syngja þessa þýðingu mína.“ Meðfylgjandi má finna brot úr þýð- ingu Snorra á ljóðinu sem bíður spennt- ur eftir að söngfuglar bíti á agnið. n Hagyrðingur leitar flytjanda að íslenskuðum Danny boy Danny boy Drengur minn – í fjarska f lautur kalla, að fjallabaki læðast niður í byggð. Þig seiða burt er sumri fer að halla, sama hverju líður hjartans tryggð. Ef áttu leið, þá allt er grænt um haga, eða þegar vetrarstormur hrín. Ég verð hér bjarta jafnt sem dimma daga, drengur minn – og mun ætíð sakna þín. Snorri gaf bókina sjálfur út í fyrra. MYND/AÐSEND 44 f.Kr. Casca og Cassius ákveða, kvöldið fyrir morðið á Júlíusi Sesar, að Markús Antoníus fái að lifa. 313 Jin Huaidi, keisari í Kína, er tekinn af lífi. 1647 Bæjaraland, Köln, Frakkland og Svíþjóð skrifa undir vopnahlé í Ulm. 1885 Óperan Mikado eftir Gilbert og Sullivan frumsýnd í Lundúnum. 1911 Kristján Jónsson verður ráðherra Íslands. 1933 Verkamannafélagið á Akureyri hindrar uppskipun á tunnum úr norska skipinu Novu vegna kjaradeilu. 1939 Slóvakía lýsir yfir sjálfstæði vegna þrýstings frá Þjóð- verjum. 1950 Steingrímur Stein- þórsson verður for- sætisráðherra. 1964 Jack Ruby er sak- felldur fyrir morðið á Lee Harvey Oswald. 1981 Tommaborg- arar opna dyr sínar í Reykjavík. 2005 Milljón mótmælir í Sedrusbyltingunni í Beirút í Líbanon. 18 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 14. MARS 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.