Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 2
Ástandið er til skamm-
ar en það er til einföld
lausn. Að moka
miðbæinn.
Gunnar Níelsson, Akureyringur
Magnús heiðraður
Magnús Kjartansson var sæmdur heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlaunanna í gærkvöldi í Silfurbergi í Hörpu. Keflvíkingurinn Magnús hóf sinn tón-
listarferil 15 ára gamall árið 1966 og hefur gert garðinn frægan með hljómsveitum á borð við Óðmenn, Trúbrot, Brimkló og Brunaliðinu. Fréttablaðið/Ernir
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af
borðstofuborðum frá CASÖ
Teg. 230. Langborð 200 x 98 og 240 x 98 stækkun 2x 50cm
reykt eik og nature eik.
gar@frettabladid.is
flugmál Rannsókn á tildrögum
þess að f lugvélin TF-ABB hafnaði
í Þingvallavatni og allir fjórir um
borð létust 3. febrúar í fyrra er
lokið.
Að sögn Þorkels Ágústssonar,
rannsóknarstjóra f lugsviðs og
rekstrarstjóra rannsóknarnefndar
samgönguslysa, bíða skýrsludrög
nú meðferðar hjá nefndarmönn-
um.
Að sögn Þorkels er yfirferð drag-
anna næsta mál á dagskrá nefndar-
innar sem fundi hálfsmánaðarlega.
Málið verði hins vegar ekki afgreitt
á einum fundi. „Það verður farið vel
yfir þetta,“ segir hann.
Spurður hvort leita hafi þurft út
fyrir landsteinana við rannsóknina
segir Þorkell að tækniaðstoð hafi
verið fengin ytra. „Við fórum með
ákveðna hluti. Þetta fer í ákveðið
ferli þegar þetta blotnar,“ segir
hann. n
Rannsókn á slysi í Þingvallavatni lokið
TF-ABB var lyft upp úr Þingvallavatni
er færi gafst 23. apríl í fyrra, rúmum
ellefu vikum eftir slysið.
Fréttablaðið/Valli
benediktboas@frettabladid.is
slys Rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa beinir þeirri tillögu til RÚV
að yfirfara verklag við gerð veður-
korta. Við rannsókn banaslyss á
Suðurlandsvegi austan við Brunná
í febrúar í fyrra, þegar vörubifreið
með festivagn fauk á hliðina, kom
fram að ökumaðurinn hafði horft á
veðurfréttirnar í seinni kvöldfrétta-
tíma rétt fyrir slysið.
Á veðurkortinu sem sýnt var þar
voru gular vindaviðvaranir birtar
yfir Suðausturlandi en vindur var
birtur sem norðvestan 9 til 10 metr-
ar á sekúndu á hafsvæðinu suður af
spásvæðinu. Vindhraðatölur sem
birtast á veðurkortinu gefa til kynna
spá um vindhraða á þeim stað þar
sem þær eru settar. Hins vegar var
í vindaspá sem Veðurstofa Íslands
gaf út morguninn fyrir slysið fyrir
Suðausturland gert ráð fyrir að
vindur yrði á bilinu 18 til 25 metrar
á sekúndu. Að mati nefndarinnar
getur þessi framsetning skapað mis-
skilning hjá áhorfendum. n
Veðurstofan fær
gagnrýni í skýrslu
Ökumaðurinn hafði horft á veður-
fréttirnar klukkan 22. Mynd/skjáskot
Snjó kyngir niður á Akur-
eyri. Ónógur mokstur skapar
mikla slysahættu og mið-
bærinn er ófær, að sögn íbúa.
Snúið, segir bæjarstjóri.
bth@frettabladid.is
Akureyri Miðbærinn á Akureyri
hefur síðustu daga meira og minna
verið ófær gangandi vegfarendum
vegna hálku og snjóruðninga, að
sögn íbúa á Akureyri. Bæjarstjóri
segir gríðarlega snjókomu síðustu
daga vera áskorun.
Gunnar Níelsson Akureyringur
átti leið um miðbæinn í gær. Hann
varð vitni að slysi þegar gangandi
vegfarandi, erlendur ferðamaður,
rann til og kollsteyptist. Staðan
síðustu daga hefur verið óboðleg að
sögn Gunnars.
„Ástandið er til skammar en það
er einföld lausn. Að moka miðbæ-
inn,“ segir Gunnar.
Átta til tíu dagar hafa liðið síðan
ófremdarástand hófst í miðbænum
að sögn Gunnars eða síðan snjó tók
að kyngja niður.
„Ástandið versnar þegar frostið
minnkar, það er velgja undir í
rörum, en þá blotnar ísinn og verður
fyrst hættulegur,“ segir Gunnar og
vísar til snjóbræðslukerfis sem
hefur ekki undan.
Gunnar segir að bærinn sýni
öllum sem eigi leið um miðbæinn
fullkomið virðingarleysi. Hann sé
stoltur Akureyringur. Hægt væri að
fyrirgefa handvömm við mokstur
á minni stöðum en Gunnar segir
alls ekki viðunandi að miðbærinn
í höfuðstað Norðurlands sé stór-
hættulegur og ófær gangandi fólki.
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
segir málið þó ekki einfalt.
„Það hefur snjóað alveg gríðarlega
mikið síðustu daga, þétt úrkoma
allan daginn, sérstaklega í gær og
fyrradag, alveg samfelld úrkoma,“
segir Ásthildur. „Við hækkuðum
hitastigið á snjóbræðslunni í mið-
bænum til að reyna að koma til
móts við þetta ástand.“
Ásthildur segist hafa beðið um
aukinn mokstur. Skoðað verði að
gera betur í miðbænum.
„Það kæmi mér mjög á óvart ef
bótaréttur gæti skapast. Þá væru
allar heimsins götur hættulegar
og málsóknir út um allt,“ segir Ást-
hildur bæjarstjóri en Gunnar veltir
upp þeim möguleika að slasaðir
ferðamenn höfði mál ef þeir slasi
sig í miðbænum vegna hirðuleysis
bæjarins. n
Miðbærinn sagður ófær og
fólk flýgur beint á hausinn
Óboðlegt ástand, að sögn Akureyrings. Mynd/aðsEnd
2 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023
fiMMtUDAGUR