Fréttablaðið - 23.03.2023, Side 8
Dæmi eru um að algengar
neysluvörur, jafnvel nauð-
synjavörur, hafi hækkað
um tugi prósenta milli ára.
Matarinnkaup heimilanna
hafa hækkað um meira en
sem nemur ársverðbólgunni
á síðustu tólf mánuðum.
olafur@frettabladid.is
Fréttablaðið fékk verðlagseftir-
lit ASÍ til liðs við sig við að búa til
lista yfir dæmigerðar vörur sem
venjulega barnafjölskylda kaupir
reglulega. Grunnurinn var verð-
lagskönnun ASÍ frá því í mars á
síðasta ári. Þar sem síðasta könnun
ASÍ í febrúar síðastliðinn var ekki
að mæla sömu hluti og gert var í
mars 2022 fór Fréttablaðið sjálft á
stúfana og gerði sína eigin verðlags-
könnun.
Skoðað var hvaða verðbreytingar
hafa orðið í Bónus og Krónunni á
þessum vörum síðustu tólf mánuði.
Niðurstaðan er ekki uppörvandi
fyrir heimilin í landinu. Mjólkur-
vörur hafa almennt hækkað á bil-
inu 13-15 prósent, sem er vel yfir
almennri verðbólgu. Opinber verð-
lagsstýring er á mjólkurvörum.
Goða-pylsur hafa hækkað um
27,4 prósent í bæði Bónus og Krón-
unni. Bakaðar baunir frá Heinz
hafa hækkað um meira en 20 pró-
sent og mjúkísinn frá Kjörís hefur
hækkað um meira en 30 prósent í
Bónus og um 10,4 prósent í Krón-
unni. Verðmunurinn á ísnum milli
þessara verslana er nú ein króna, en
Krónan var miklu dýrari í fyrra.
Kartöf luf lögur frá Lay’s höfðu
hækkað um 20 prósent en kókið
aðeins um liðlega 6 prósent.
Þetta er ekki fólkið
sem flýgur í sólina á
Tenerife.
Kristján Þórður
Snæbjarnarson,
forseti ASÍ
Bónus Krónan
mars ‘22 mars ‘23 Breyting mars ‘22 mars ‘23 Breyting
MS Nýmjólk - 1lítri 175 198 13,1% 176 199 13,1%
MS Léttmjólk - 1 lítri - D-vítamínbætt 208 235 13,0% 209 236 12,9%
Hrísmjólk m. karamellu - 170 g 197 222 12,7% 198 223 12,6%
MS skinkumyrja - smurostur 300 g 698 757 8,5% 699 758 8,4%
MS Smjörvi 400 g 598 675 12,9% 599 676 12,9%
MS heimilisjógúrt með karamellu - 1 lítri 364 419 15,1% 365 420 15,1%
Heimilisbrauð 1/1 - 770 g 495 555 12,1% 496 559 12,7%
Sómi samloka m. kjúklingi og eggi - 160 g 498 498 0,0% 619 649 4,8%
Hobnobs súkkulaðikex - milk choc. - 262 g 219 259 18,3% 220 260 18,2%
Goða-pylsur - 10 stk. - 510 g 729 929 27,4% 730 930 27,4%
1944 - Kjöt í karrý - 450 g 1.139 1.185 4,0% 1.140 1.186 4,0%
Heinz bakaðar baunir - 415 g 117 149 27,4% 123 150 22,0%
Lay’s salted kartöfluflögur - 165 g 247 299 21,1% 250 299 19,6%
Kjörís mjúkís - vanilla - 2 lítrar 798 1.059 32,7% 960 1.060 10,4%
Coca-cola - 2 lítrar 289 307 6,2% 290 308 6,2%
Merrild-kaffi, meðalbrennt malað - 500 g 698 979 40,3% 699 980 40,2%
O.B. original tíðatappar super (4 dropar) - 16 stk. 249 239 -4,0% 250 250 0,0%
Hipp-þurrmjólk, duft - nr. 1 - 0-6 mánaða - 500 g 1.169 1.198 2,5% 1.170 1.199 2,5%
Nói Siríus páskaegg nr. 4 - 325 g 1.859 1.985 6,8% 1.860 1.990 7,0%
NEYTENDUR | hEimilisbókhalDið |
Verðbreytingar á völdum nauðsynjavörum í lágvöruverðsverslunum milli ára
ser@frettabladid.is
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
segir forystu Seðlabankans vera á
algerum villigötum í efnahagsstjórn
landsins. Og þá vandar hann heldur
ekki ríkisstjórn landsins kveðjurnar
í pistli sem hann reit á heimasíðu
sambandsins í gærdag.
„Sinnuleysi stjórnvalda gagnvart
af komu almennings hefur lengi
verið okkur í verkalýðshreyfing-
unni undrunarefni,“ skrifar Kristján
Þórður og bætir því við að nú verði
ekki lengur hjá því komist að takast
á við þann mikla og vaxandi vanda
sem verðbólga og vaxtahækkanir
valda þeim hópum sem verst standa.
„Málið þolir enga bið,“ skrifar hann.
Og Seðlabankinn fær sína sneið.
Hann sé á rangri leið með sífelldum
og öfgakenndum stýrivaxtahækk-
unum, en vextirnir hafa tífaldast á
tveimur árum og aldrei verið hærri
í áratug.
„Nýjasta hækkunin er til þess
fallin að þrýsta meginþorra skuld-
settra heimila yfir í verðtryggt lána-
umhverfi. Það mun draga úr virkni
stýrivaxta Seðlabankans og þann-
ig ýta undir verðbólgu á komandi
mánuðum í stað þess að draga úr
henni,“ skrifar Kristján Þórður.
Verðbólgan sé einkum innflutt,
vextirnir bíti ekki fyrir vikið.
„Þá miklu verðbólgu sem nú ríkir
má í senn rekja til heimatilbúins
vanda en þó að langstærstum hluta
til ytri aðstæðna; heimsfaraldurs og
innrásar Rússa í Úkraínu,“ skrifar
forsetinn og bendir á að verðlag
hafi hækkað gríðarlega og þar með
útgjöld heimilanna í landinu.
Tekjulágir og fyrstu kaupendur
á fasteignamarkaði standi frammi
fyrir bráðavanda af völdum verð-
bólgunnar sem bregðast þarf við.
„Þetta er ekki fólkið sem flýgur í
sólina á Tenerife,“ skrifar Kristján
Þórður Snæbjarnarson. n
ASÍ segir vextina galna á verðbólgutímum
ser@frettabladid.is
Matvælastofnun hefur fengið upp-
lýsingar um að matvælaframleið-
andinn Matfugl hafi innkallað eina
framleiðslulotu af IKEA-kjúklinga-
nöggum vegna aðskotahlutar sem
fannst í pakkningu.
Aðskotahluturinn reyndist vera
hart plast að því er fram kemur á
heimasíðu Matvælastofnunar.
Þá varar sama stofnun við hörð-
um plastögnum sem fundist hafa
í einni framleiðslulotu af Orku-
blöndu sem flutt er inn af Nathan
& Olsen, en matvæli sem innihaldi
aðskotahluti af þessu tagi geti verið
óörugg og óhæf til neyslu. n
Plastagnir finnast
í nöggum og safa
Myndin tengist frétt ekki beint.
ser@frettabladid.is
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum mega fara að búa sig
undir tunnuskipti á vormánuðum
þar sem fjórum úrgangsf lokkum
verður framvegis safnað við hvert
heimili.
„Þetta verður stórt framfaraskref
í umhverfis- og loftslagsmálum en
meðal annars munu öll heimili fá
tunnu fyrir matarleifar,“ segir á vef
Sorpu.
Á hverju heimili verður fjórum
úrgangsf lokkum safnað, matar-
leifum, pappa og pappír, blönd-
uðum úrgangi og loks plasti, en
þeim síðarnefnda verður svo skipt
í fjóra f lokka hjá Sorpu, umbúða-
plast, filmuplast, frauðplast og hart
plast. n
Plastið meira
flokkað en áður
Sorptunnum fjölgar.
ser@frettabladid.is
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lagt fram tillögur
um að einfalda viðurkenningu öku-
skírteina á milli aðildarríkjanna
með innleiðingu stafræns ökuskír-
teinis og um frekari samhæfingu
umferðarreglna. Líkur eru á að
breytingarnar nái líka til EES-landa
á borð við Ísland.
Stafræna ökuskírteinið, sem
þegar hefur verið samþykkt af
stjórninni, á að verða aðgengilegt
í miðlægu skráningarkerfi. Það á
að draga verulega úr möguleikum
brotlegra ökumanna á að komast
undan sektum og öðrum viður-
lögum vegna umferðarlagabrota
utan heimalandsins. n
Stafræn evrópsk
ökuskírteini
Flestar vörur hækka mikið milli ára
Neytendur þurfa að punga mun meiru út við afgreiðslukassann nú en fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mest hafði hækkunin orðið á
kaffi, en Merrild kaffi hafði hækkað
um meira en 40 prósent á síðustu 12
mánuðum.
Páskaeggin hafa ekki haldið í við
verðbólguna, en Nóa Síríus páska-
egg nr. 4 hafði hækkað um nálega
7 prósent.
Í öllu hækkanaf lóðinu voru
undantekningar. Hipp-þurrmjólk
hækkaði aðeins um 2,5 prósent
milli ára og O.B.-tíðatappar höfðu
lækkað um fjögur prósent í Bónus
og stóðu í stað í Krónunni milli ára.
Vert er að taka fram að vörulist-
anum er ekki ætlað að gefa tæm-
andi mynd af innkaupum barna-
fjölskyldu hér á landi.
Einnig er mikilvægt að hafa í
huga að smásalan tekur einungis
til fimmtungs virðiskeðjunnar og
verðhækkanir skýrast því af mun
f leiri og oft stærri þáttum en hlut
hennar. n
Flestar vörur hækka
um meira en sem
nemur verðbólgu og
kaffið mest. Tíðavörur
og þurrmjólk hafa hins
vegar staðið nánast í
stað eða lækkað.
1.998 kr.
10 túlípanar
í Bónus
323,3 kr.
Bensín á Orkunni
Kleppsvegi við
Langholtsveg
1.598 kr.
20 dósir Coke
Zero 0,33l
í Bónus
7,5 %
Stýrivextir
Seðlabanka
Íslands
8 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023
FiMMtUDAGUr