Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 9
Starfsfólkið er framúr- skarandi, vörurnar góðar, tæknin er engu lík og við störfum í afskaplega góðu umhverfi fyrir nýsköp- unarfyrirtæki. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis Kaup, sala og samruni fyrirtækja. • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferðir • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð kontakt@kontakt.is | 414 1200 |Ránargata 18, 101 Reykjavík www.kontakt.is Kaup, sala og samruni fyrirtækja • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferðir • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð Umhverfismat framkvæmda Matsáætlun í kynningu Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats breytinga á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og leiðar Borgarlínu á milli Stekkjarbakka og Vogabyggðar. Kynning á matsáætlun: Matsáætlunin liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun og er aðgengileg á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn.Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 27. apríl til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Kerecis situr eitt íslenskra fyrirtækja á lista Financial Times yfir evrópsk fyrirtæki sem vaxa hraðast. Stofnandi fyrirtækisins segir bæði góðar og slæmar ástæður fyrir velgengni Kerecis. helgisteinar@frettabladid.is Lækningavörufyrirtækið Kerecis er eina íslenska fyrirtækið sem birtist á FT-1000 lista Financial Times yfir þau fyrirtæki í Evrópu sem vaxa hraðast. Í f lokki fyrirtækja í heil- brigðis- og lífvísindum er Kerecis í fimmta sæti en situr í 246. sæti heildarlistans sem telur þúsund fyrirtæki. Þetta er í sjöunda sinn sem FT-1000 listinn er gefinn út. Við gerð listans horfir Financial Times til samanlagðs árlegs tekjuvaxtar fyrirtækja milli 2018 og 2021. Kerecis framleiðir lækninga- vörur úr þorskroði og fitusýrum sem verja líkamsvefi og græða. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 500 manns en frá 2018 til 2021 meira en þrefaldaðist starfsmannafjöldinn, úr 59 í 196. Þar að auki nam árlegur samanlagður tekjuvöxtur á þessu tímabili um 94,6 prósentum og var heildarvöxtur Kerecis 636,5 pró- sent. Höfuðstöðvar félagsins eru á Ísa- firði, þar sem vörur þess eru fram- leiddar, en vöruþróun fer fram í Reykjavík. Sölu- og markaðsstarf er rekið frá Washington D.C.-svæð- inu í Bandaríkjunum en Banda- ríkin eru mikilvægasti markaður Kerecis. Fyrirtækið er einnig með starfsemi í Sviss, Þýskalandi og Austurríki. Tæk ni Kerecis hef ur vak ið athygli á heimsvísu og er félagið í samstarfi um þróun og notkun á tækninni víða um heim, meðal annars við bandarískar varnar- málastofnanir. Vörur Kerecis eru meðal annars notaðar á mörgum stærstu sjúkrahúsum Bandaríkj- anna. Guðmundur Fertram Sigurjóns- son, stofnandi og forstjóri Kerecis, segir að það séu góðar og slæmar ástæður fyrir velgengni fyrir- tækisins. „Starfsfólkið er framúrskarandi, vörurnar góðar, tæknin er engu lík og við störfum í afskaplega góðu umhverfi fyrir nýsköpunarfyrir- tæki. Á hinn bóginn hefur þörfin fyrir lækningavörur Kerecis aukist mikið, meðal annars vegna mikils vaxtar á sykursýki og öðrum sjúk- dómum sem valda þrálátum sárum og af limunum. Það er ekkert lát á þeirri þróun og viðbúið að við munum áfram þurfa að þjónusta stækkandi hóp sjúklinga.“ Meðal þeirra sem eiga hlut í Kerecis er eignarhalds- og fjár- festingarfyrirtækið KIRKBI, kennt við dönsku LEGO-fjölskylduna. Árið 2022 keypti fyrirtækið hlut fyrir 40 milljónir Bandaríkjadala, sem svaraði til 5,5 milljarða króna. Á þeim tíma sagði Guðmundur að aðkoma KIRKBI væri gæðastimpill á vegferð Kerecis. Árið 2020 fékk Kerecis þriggja milljarða króna lánsfjármögnun frá Silicon Valley Bank en sá banki hefur verið mjög áberandi í fjöl- miðlum undanfarið eftir hann varð gjaldþrota fyrr í mánuðinum. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr- verandi forseti Íslands, situr í stjórn Kerecis og lék meðal annars lykil- hlutverk í að koma á tengslum milli Kerecis og Emerson Collective. Guðmundur hefur sagt að tengsl- anet Ólafs sé gríðarlega mikilvægt fyrir sókn Kerecis á erlendum mörkuðum. n Ísfirskt fyrirtæki kom sér inn á lista Financial Times Forstjóri Kerecis segir þörf á lækningavörum fyrirtækisins hafi vaxið mikið vegna aukningar á sykursýki og öðrum sjúkdómum sem valda þrálátum sárum og aflimunum. MYND/AÐSEND Höfuðstöðvar félagsins eru á Ísafirði, þar sem vörur þess eru framleiddar. MYND/AÐSEND helgisteinar@frettabladid.is Chris O‘Shea, eigandi breska fyrir- tækisins Centrica, mun þiggja 630 milljóna króna bónusgreiðslu eftir að hafa  skilað methagnaði fyrir árið 2022. Bónusgreiðslan er harð- lega gagnrýnd en orkufyrirtækið British Gas er í eigu Centrica og hafa margir Bretar átt í erfiðleikum með að greiða orkureikninga sína. Eigandinn hefur hafnað öllum bónusgreiðslum undanfarin þrjú ár en hann er einnig með sem nemur 134 milljónum króna í árs- laun. Hagnaður Centrica fyrir árið 2022 nam 3,3 milljörðum punda eftir að verð á gasi og olíu hækkaði í kjöl- far stríðsins í Úkraínu. Fyrirtækið hefur verið sakað um að brjótast inn á heimili fólks til að setja upp mæla sem  krefjast fyrirframgreiðslu á orku frá íbúum. n Gagnrýndur fyrir bónusgreiðslur Breska orkufyrirtækið British Gas er í eigu Centrica. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fréttablaðið markaðurinn 923. mars 2023 FimmTuDaGur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.