Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 20
Páskamarkaðir eru algengir og mjög vinsælir í Þýska- landi, Austurríki, Póllandi, Sviss og Tékklandi. Mark- aðirnir eru opnir fyrir páska þar sem boðið er meðal annars upp á dýrindis handmáluð egg. elin@frettabladid.is Það er sannarlega hægt að vekja í sér hátíðargleðina með því að upplifa evrópskan páskamarkað. Markaðirnir eru yfirleitt opnir vikurnar fyrir páska og þar má finna ýmiss konar handverk og dýrindis matvörur auk þess sem skemmtiatriði eru venjulega í hávegum höfð. Páskamarkaðir eru vel sóttir af heimamönnum jafnt sem ferðamönnum. Páskamarkaðurinn í Vínar- borg er einn sá frægasti í Evrópu. Hann er settur upp fyrir framan ráðhúsið og býður upp á mikið úrval af hefðbundnu handverki, dýrindis ostum og öðrum veislu- kosti. Páskamarkaðurinn í Prag er litríkur og líf legur viðburður sem fram fer á torgum í gamla bænum. Markaðurinn er þekktur fyrir hefðbundið tékkneskt handverk þar sem eru handmáluð páskaegg og tréleikföng. Gestir geta einnig notið þjóðlegs matar og drykkja. Páskamarkaðurinn í Nürnberg þykir fagur viðburður í hjarta borgarinnar. Þar er boðið upp á hefðbundið handverk, hand- máluð páskaegg og tréleikföng. Einnig eru dýrindis þýskar matar- hefðir í hávegum hafðar, pylsur, kringlur og glögg. Í Zürich er sömuleiðis þekktur páskamarkaður sem nefnist Ostermarkt, heillandi heimur í gamla hluta borgarinnar. Þar eins og annars staðar er boðið upp á handmáluð páskaegg og tréleik- föng. Sömuleiðis er hægt að kaupa dýrindis osta og súkkulaði. Þjóðverjar eru með páska- markað í f lestum bæjum og borgum. Oftast eru þetta úti- markaðir en stundum þarf hluti markaðarins að vera innandyra vegna viðkvæmra handmálaðra eggja. Þjóðverjar bjóða einn- ig blásið gler, körfur, keramik, handmálað silki, útsaum ásamt f leiru handverki. Handmáluðu eggin eru hvert og eitt sem lista- verk og sumir listamenn sýna snilli sína á markaðnum. Fínustu eggin eru ekki ódýr, geta kostað 3–400 evrur. Einnig er hægt að fá ódýrari egg en þá er minna lagt í listina. n Einstakir gripir á páskamörkuðum Spreewald safnið í Lübbe- nau stendur fyrir sinni 22. páskaeggja- messu með 40 sýnendum frá Brandenborg, Berlín og Sax- landi. FRÉTTabLaÐIÐ/ GETTY Páskakanínur úr strái og með litríkar fjaðrir eru í boði á vikumarkaði í Greifswald í Þýskalandi. Einstaklega falleg, hand- máluð og list- ræn egg í Kraká í Póllandi. Ljúfari lifur, alla daga Háþróuð blanda sem verndar lifrina og styður við hreinsun GUARD-YOUR-LIVER® Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf og heilsu og á goodroutine.is fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE® K AV IT A630 mg 100 mg 37,5 mg 2,5 mcg Fosfólípíð (EPL) Silymarin Silybin Fosfatidýlkólín 8 kynningarblað A L LT 23. mars 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.