Fréttablaðið - 23.03.2023, Page 28

Fréttablaðið - 23.03.2023, Page 28
Rrrrrruuuuuuuuu- uuuuuurrrrrrrrrr Chewbacca Hvar eru hetjur Stjörnustríðsins í dag? Stjörnustríðsleikarinn Paul Grant, sem lék Ewok í Return of the Jedi, lést á dögunum eftir langa baráttu við áfengis- og fíkniefnavanda. Hann hneig niður við Kings Cross-lestarstöðina í London og var úrskurð- aður látinn viku síðar. Með fráfalli Grant hefur enn á ný fækkað í hópi leikara sem fóru með bæði stór og lítil hlutverk upp- runalegs þríleiks George Lucas, sem gerði allt vitlaust á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. En hvar eru hetjur og skúrkar Stjörnu- stríðsins í dag? n benediktarnar@frettabladid.is Carrie Fisher Carrie Fisher sló í gegn sem hin hugrakka og ákveðna Lea prinsessa. Æskuást margra og fyrirmynd flestra, hlutverk Fisher sem Leu prinsessu er ógleymanlegt í kvikmynda- sögunni. Meðal kvikmynda sem Fisher lék í á löngum ferli voru Drop Dead Fred, When Harry Met Sally og Scream 3. Í ævisögu sinni greindi Fisher frá því að hún og með- leikari hennar, Harrison Ford, hefðu átt í leynilegu ástar- sambandi á meðan þau léku í Stjörnustríði. Fisher lést árið 2016, sextug að aldri, í kjölfar hjartaáfalls. Hún hafði lengi glímt við fíkniefnavanda og fannst kókaín og heró- ín meðal annars í blóði hennar. Mark Hamill Logi Geimgengill bjargaði vetrarbrautinni og var aðal- hetjan í Stjörnustríðsmynd- unum. Þrátt fyrir að vera einn þekktasti leikari heims snéri leikarinn Mark Hamill sér að mestu að tal- setningu og talaði meðal annars fyrir Jókerinn í fjölda ára. Hamill, líkt og Ford og Fisher, snéri aftur í hlutverk Loga í nýjasta Stjörnu- stríðs-þríleiknum. Þó að hann væri fjörutíu árum eldri var hann alveg jafn svalur sem bjargvættur vetrarbrautarinnar. Harrison Ford Ein skærasta stjarna Holly- wood, hjartaknúsarinn og töffarinn Harrison Ford, er enn í fullu fjöri á níræðis- aldrinum. Ford hefur aldrei verið mikið fyrir sviðsljósið, sem er erfitt fyrir mann sem lék hlutverk á borð við Han Solo, Indiana Jones og forsetann sjálfan í Air Force One. Undanfarin ár hefur hann leikið minna og einbeitt sér aðallega að því að fljúga flugvélum. Hann snýr aftur á skjáinn sem Indiana Jones í síðasta sinn á þessu ári. Peter Mayhew „Rrrrrruuuuuuuuuu rrrrrr,“ sagði Peter May hew svo eftirminnilega, þegar hann lék aðstoðarmann og besta vin Han Solo, Chewbacca. Mayhew var fullkominn í hlutverk hins háruga Chew- bacca. Hann var 2,2 metrar á hæð og lærði á hegðun górilla við undirbúning hlut- verksins sem hann lék svo oft. Hann lést árið 2019 í kjöl- far hjartaáfalls. Harrison Ford sagði að Mayhew hefði verið blíður og góður maður sem honum þótti vænt um. „Hann setti hjarta sitt og sál í hlutverkið og veitti Stjörnustríðsaðdáendum mikla ánægju,“ sagði Ford. Kenny Baker Leikarinn sem fékk okkur til að elska vélmennið R2-D2. Kenny Baker skellti sér í gervi litla vélmennisins í Stjörnu- stríðsmyndunum og var hann sagður afar vinsæll á settinu. Mark Hamill lýsti Baker sem ævilöngum vini. Baker lést árið 2016 í svefni, 81 árs að aldri. Leikstjórinn George Lucas sagði að Kenny hefði verið hjarta og sál R2-D2. James Earl Jones Þótt hann hafi ekki leikið Svarthöfða í kvikmyndunum, þá gerði James Earl Jones rödd fallna Jedi-riddarans ógleymanlega. Jones talaði fyrir Svarthöfða í fjölmörg- um Star Wars-kvik- myndum og -þáttum. Hann er þá einnig vel þekktur fyrir leik sinn í Lion King, Coming to America og Field of Dreams. Þrátt fyrir að vera orðinn 92 ára gamall talaði hann inn á sjónvarps- þáttaröðina Kenobi í fyrra. Hann er enn þá með þetta. Billy Dee Williams Hver man ekki eftir hinum eitursvala Lando Calrissian, sem birt- ist á hvíta tjaldinu í Empire Strikes Back. Hann lék Calrissian í upprunalega þríleiknum, en hann birtist einnig í kvik- myndinni The Rise of Skywalker, Stjörnu- stríðsaðdáendum til mikillar gleði. Anthony Daniels Breski leikarinn Anthony Daniels lék þjónustuvél- mennið C-3PO í tíu skipti, eða í öllum Stjörnu- stríðskvikmyndunum í Geimgengilssögunni. Hann er 77 ára gamall og hvergi nærri hættur, en hann hefur sagt að hann muni aldrei hætta að leika C-3PO. 20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARS 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.