Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Blaðsíða 62
NÝUNGAR
NÝUNGÍINNLENDRI
OFNAFRAMLEIÐSLU
VOR-YL OFNINN FRÁ O.S.S.er framleiddur af OFNASMIÐJU
SUÐURNESJA meö einkaleyfi fró VEHA BELGlU, VOR-YL OFNINN
er viðurkenndur af staðlanefnd ÍST 69,1. hvað varðar varmagjöf,
efnisþykkt, þrýstiþol og suðugœði, íslenskar töflur eru einnig til
og samþykktar. VEHA hefur nú framleitt ofna og ofnaefnl úr
gœðastóli 150 ár og er ein stœrsta ofnaverksmiðja í Evrópu,
VINNSLUAÐFERÐ. Ofnaefnið í VOR-YL ofninn kemur með
gámum til landsins vel innpakkað svo tryggt sé að efnið ryðgi
ekki á leið til landsins, Við samsetningu ofna, suðu múffa og
upphengja er notuð argonsuða sem bœði er áferðarfalleg og
mjög sterk. Flekunum er komið fyrir í bekkjum svo að allir ofnar
séu með eins millibil á stútum og upphengjur á réttum stöðum.
Síðan eru allir ofnar þrýstiprófaðir, en ofnínn er viðurkenndur og
þolir 8 bara þrýsting. Stútar eru á öllum hornum og eru 1/2"
(minnkanir í 3/8", tappar og loftskrúfur fylgja) þannig að ekki þarf
að leggja vinnu fyrirfram í að ákveða hvorum megln ofnarnir
eiga að tengjast. En einmitt þetta atriði hefur valdið
vandrœðum þegar stútastaðsetning breytist eftir á, Hefur þá
þurft að senda ofna til verksmiðjunnar til breytinga.
Þegar ofnarnir eru tilbúnir til lökkunar eru þeir fyrst baðaðir og
síðan er ofninum dýft niður í sértilgert lakk. Þetta er mikilvœgt
atriði svo ofninn verði lakkaður bœði inn á milli og að utan.
Að lokum er ofninn iátinn síga í brennsluofn sem innbrennir lakkið
við ofninn við 230 gráðu hita. Lakkið er hvítdrappað og er
áferðin eftir lökkun bœði sterk, glansandi og mjög áferðarfalleg.
Allur þessi málningarbúnaður er sjálfvirkur og er hann hannaður
og framleiddur af starfsmönnum OFNASMIÐJU SUÐURNESJA
auk pökkunarvélarinnar.
Eftir bökun er ofninn látinn kólna niður. Þaðan fer hann eftir
fœriböndum að innpökkunarvélum, þar sem pappaspjöldum
er komið fyrir eftir endilöngum ofninum og síðan sér vélin um að
vefja plasthimnu þétt um ofninn svo það myndar tvöfalt lag,
Er því lítil hœtta á að ofninnn verði fyrir hnjaski í meðförum
pípara, múrara eða annarra iðnaðarmanna meðan á vinnu
stendur á byggingarstað. Á pakkninguna eru aðeins gerð göt
fyrirstúta svo hœgt sé að setja hita á ofnana. Þá er límmiði settur
utan á hvern ofn til aðgreiningar hvar hver ofn á að vera í
húsbyggingunni.
Ábyrgð er á allri framleiðslu O.S.S. Allir ofnar á höfuðborgar-
svœðinu eru keyrðir á byggingarstað en aðrir á viðkomandi
vöruafgreiðslu.
60
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG