Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Blaðsíða 88

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Blaðsíða 88
HAGKV/EMNI Útreikningar sem taka til stofnkostnaðar, lagnar og endingar sýna að linoleum er mjög hagkvœmt samanborið við flest önnur gólfefni. Af almennum efnum er einungis steinn endingarbetri en linoleum, Sé tekið tillit til upphaflegs kostnaðar efnisins, kostnaðar við endurnýjun, hœkkunar d verði efnis, vaxta sem ella fengjustaffjármagniogviðhaldskostnaðikemurhagkvcemni linoieums fyrst alveg í Ijós. Linoleum stendur þá jafnfcetis gegnheilu vynil önnur efni reynast mun dýrari þegar miðað er víðmeðal íftíma bygginga.Sparnaðuríviðhaldiveguraukþess í mörgum tilvikum þungt. Þurrhreinsun á linoleum getur dregið úr viðhaldskostnaði um allt að 30%, samanborið við blauthreinsun. GÓÐ ENDING Algengt er að linoleumdúkur endist áratugum saman þótt mikið mœði á. Meðan gerviefni á gólf voru við hámark vinscelda sinna var það mörgum eiganda eldra húsnceðis raun að linole- umdúkurinn á gólfunum vildi ekki slitna, Efnið varjafnframt með þeim ósköpum gert að líta alltaf út fyrir að vera nýtt og var því tákn "gamaldags" smekks. Þeir sem ekki tímdu að rífa óslitinn dúkinn af eru hins vegar fegnir þvíí dag, þegar náttúrleg gólfefni eru að nýju að ná vinsceldum. Linoleumefnið á gólfunum hjá þeim er enn jafn óslitið og rétt eins og nýtt og nú er það tákn nýrrar físku. Rétt viðhald er að sjálfsögðu grunnur góðrar ending- ar. ELDÞOL Eldþol linoleums er mikið, Við tilraunir hefur reynst erfitt að fá efnið til að loga og það viðheldur að auki ilia eldi. Efnið þolir meðal annars logandi sígarettuglóð. Ef óhöpp verða má eyða litbreytingunni með stálull eða sandpappír og þegar borið hefur verið yfir svœðið sjást engin ummerki. Þessi kostur hefur vegið þungtí vali á linoleum á margar opinberar byggingar, þar sem skeytingarleysis gagnvart umhverfi gcetir nœr daglega. Óhöpp með eld, til dœmis! vindlingum, verða einnig í heimahúsum. EFNAÞOL Linoleum þolir uppleystar sýrur, olíur, fitur, feiti og mörg leysiefni. Efnaþol gerir linoleum sérstaklega vœnlegan kost á gólf í rannsóknarstofum og mörgum öðrum vinnusvceðum. Á heimil- um hefur efnaþolið jafnframt oft komið sér vel á eldhúsum, baðherbergjum og í geymslum, Ýmis hreinsiefni eru þó óheppileg á linoleum. Einkum þau efni sem innihalda salmíak. UMGANGSÞOL Hcegt er að fá linoleum í mismunandi þykktum og breytilegt að styrkleika. ÞynnstidúkurinnerC2.0mm. MilliþykkurdúkurerB2,5 mm. Þykkasti dúkurinn er A 3.2 mm. Þynnsta dúknum (C) er cetlaður staður á gólfum dvalarherbergja af ýmsu tagi, Þar er meðtalin notkun á almennum heimilum. Mœlt er með milliþykkt (B) á vinnusvœði þar sem umgangur er mikill, en þykkast (A) er linoleum notað á atvinnuhúsnœði, í strœtisvagna og annars staðar þar sem umferð er bceði mikil og samfelld. Efnið hefur reynst sérstaklega vei í byggingum þar sem mikil umferð er af gangandi fólki, tcekjavögnum og öðrum flutningum á hjólum. Einkum þar sem mikilvcegt er að gólf þarfnist lítils viðhalds eða endurnýjunar og þar sem greiðlega verður að ganga að þrífa. Linoleum hefur víða verið notað á gólf heilbrigðisstofnana, meðal annars vegna möguleika sem sveigjanleiki efnisins og samsuðuaðferðir gefa til þess að loka gólfum og kverkum milli gólfa og veggja, Með því hefur tekist að komast fyrir mörg þau hreinlcetisvandamál sem þjakað hafa stofnanir um langt árabil. LITFESTA Linoleum heldur vel lit og áferð. Efnið tekur ekki á sig slitáferð eða aukinn glans með aldri, líkt og mörg vinylefni gera. Þessi eiginleiki getur verið sérstaklega mikilvœgur þar sem litaval er sérstakur þáttur hönnunar byggínga og mannvirkja. Breytingar á lit og áferð geta raskað jafnvœgi í útlíti og jafnvel orðið til þess að skerða verulega gildi hönnunarinnar. Upplitun hluta gólfflata af völdum slits verður einnig oft áberandi lýti. HLUTLEYSI Linoleum er hreint náttúruefni. Það hefur ekki raskandi áhrif á umhverfi sitt og mengar ekki, Tilbúin litar- og mýkingarefni eru ekki notuð í linoleum, eins og í mörg gerviefni, þar á meðal P.V.C. Efni þessi geta haft heilsuspillandi áhrif. Röskun lífríkis og allt það sem lýtur að mengun hefur orðið mönnum vaxandi áhyggjuefni á undanförnum árum. Notkun efna sem ekki menga út frá sér við athafnir og uppbyggingu verður sífellt mikilvœgari þáttur sjálfsmyndar okkar. Linoleum hefur jafnframt reynst mjög góður valkosturí húsnœði fyrir þá sem þjást af ofnœmi og veldur mjög sjaldan ofnœmiseinkennum. HLUTLÆGNI Nœr ótœmandi möguleikar! hönnun með linoleum gera efnið að virkum þœtti í hönnun og útfœrslu húsnceðis þar sem það er notað. Mikið litaúrval og mynsturmöguleikar geta gert linoleum að rmikilvœgum hluta umhverfisins. Þessir eiginleikar linoleums hafa orðið til þess að fólk sér nú gólfflöt sem vettvang persónulegrar _ úrvinnslu, en ekki sem hlutlausan þátt umhverfisins. í tómstundaherbergjum og á svœðum þar sem börn eru oft að leik má með lagningu mynsturs í gólfi leggja grunn að þroskandi leikjum og annarri athafnasemi. í fyrirtcekjum og stofnunum má einnig beita gólfmynstri til þess að stýra umferð þeirra sem þangað scekja þjónustu, á þann veg að vísbendingar verði eðlilegur hluti umhverfisins en ekki aðskotahlutir. I dag er það ce algengara að fyrirtceki noti þessa möguleika. Litaúrval er mikið og með skurðarhnífinn að vopni verða möguleikarnir í þessu efni ncer ótœmandi. EINANGRUN Linoleum einangrar vel frá rafmagni, Efnið heftir einnig myndun stöðuspennu og er því heppilegt þar sem mikið er um viðkvœm rafeindatœki, Þessi eiginleiki fcer aukið mikilvœgi með hverju ári sem líður. Flestir vinnustaðir nota rafeindatceki að einhverju marki, bceðí tölvur og mcelitceki. Stöðuspenna getur truflað starf þessara tcekja, auk þess að einangrun frá jarðsambandi getur verið mjög mikilvceg. Hljóðeinangrun linoleums getur verið nokkur, einkum ef notað er Corkments- undirlag. Hljóðeinangrun efnisins sjálfs getur verið ncerri 6 desibelum, en með undirlagi er hœgt að auka hana í 14 desibel. Hitaeinangrun linoleums er jafnframt merkjanlegur hluti heildareinangrunar húsnœðis. AUKIN NOTKUN Ýmislegt bendir til þess að aukin notkun linoleums sé hluti af stefnubreytingu sem að nokkru er óháð tískusveiflum. Stefnubreyting þessi stafar af því að eftir nokkurra áratuga notkun gerviefna höfum við nú gert okkur grein fyrir veigamiklum og óheppilegum áhrifum þeirra á umhverfi. Þar af leiðandi hneigjumst við að nýju að náttúruefnum. Fátt bendir til þess að "gallalaus" gerviefni finnist og verði hœf til almennrar framleiðslu á komandi árum. Ætla má því að vinsœldir náttúriegra efna séu komnar til að vera. Hvort linoleum verður aftur að þola sveiflu niður, að þessu sinni í samkeppni við önnur náttúrleg gólfefni, getur tíminn einn leitt í Ijós. Nú er þetta efni! mikilli sókn. ■ Halldór K. Valdimarsson. 86 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.