Skessuhorn - 30.11.2022, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 48. tbl. 25. árg. 30. nóvember 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Opið
alla
daga
ársins
Þinn árangur
Arion
Persónuvernd hefur úrskurðað að eigendur
bifreiða eigi rétt á að fá viðgerðar- og
þjónustu sögu bílsins afhenta rafrænt. Þannig
má kalla fram allar upplýsingar um viðgerðar-
og þjónustu sögu bílsins á einum stað. Nýtt
fyrir tæki rekur vefsíðuna thjonustubokin.is og
býður það upp á þjónustu fyrir bíleigendur og
-kaupendur.
„Þjónustubókin er ný rafræn lausn sem aflar
upplýsinga um viðgerðar- og þjónustusögu bif-
reiðar frá bifreiðaumboðum og -verkstæðum á
grundvelli umboðs frá eigendum viðkomandi
bifreiða. Eigendur bifreiðanna geta svo nálgast
upplýsingarnar og fengið samræmda skýrslu
um viðgerðar- og þjónustusögu bifreiðanna,
auk frekari upplýsinga m.a. úr ökutækjaskrá.
Skýrslurnar geta bifreiðaeigendur m.a. notað
til þess að veita væntanlegum kaupanda upp-
lýsingar um viðhald og þjónustu sem bifreiðin
hefur fengið,“ segir í tilkynningu.
Þá segir að slíkar skýrslur auki ekki einungis
traust neytenda og kaupenda bifreiða heldur
munu þær draga úr umsýslukostnaði eigenda
og verkstæða við upplýsingöflun. Þjónustu-
bókin sækir upplýsingarnar á grundvelli
umboðs frá bifreiðareiganda sem veitt er þegar
skilmálar Þjónustubókarinnar eru samþykktir.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur verið
starfsmönnum Þjónustubókarinnar innan
handar við þróun lausnarinnar.
mm
Jólafundur Rekka- og Svannasveitar Skátafélags Akraness var haldinn síðastliðið mánudagskvöld. Það var síðasti fundur ársins en fundir eru haldnir í sveitinni með
reglulegu millibili yfir árið. Iðulega sækja fundina um 25-30 skátar, flestallt konur sem hafa verið innviklaðar í skátahreyfinguna frá barnæsku. Hér er verið að slíta fundi
á hefðbundinn hátt en þá taka skátar höndum saman og syngja Bræðralagssönginn. Sjá nánar bls. 17. Ljósm. gbþ
Tímamót fyrir bifreiðaeigendur og kaupendur bifreiða
Skjáskot af upphafssíðu thjonustubokin.is.
Kaupandi að bíl eða bíleigandi fer á síðuna, óskar
upplýsinga um ákveðið bílnúmer, fer þá inn með raf-
rænni skráningu og óskar eftir upplýsingum um bílinn.
Þjónustubók kallar eftir upplýsingum um viðgerðar- og
þjónustusögu sem verkstæðum og umboðum er skylt
að gefa upp samkvæmt úrskurði Persónuverndar.