Skessuhorn - 30.11.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 21
Pennagrein
Borgarfjörður
miðvikudagur 30. nóvember
Félag eldri borgara í Borgar-
fjarðardölum heldur Ljósmynda-
sýningu í félagsheimilinu Brún.
Ágúst Elí Ágústsson sýnir ljós-
myndir sínar kl. 13:30-17.
Stykkishólmur
miðvikudagur 30. nóvember
Snæfell og Tindastóll mætast í 1.
deild kvenna í körfuknattleik í
íþróttamiðstöðinni á Borgarbraut
og hefst leikurinn klukkan 19.15.
Grundarfjörður
miðvikudagur 30. nóvember
Kórarnir á Snæfellsnesi halda tón-
leika í Grundarfjarðarkirkju kl.
20:00. Aðgangseyrir: Frjáls fram-
lög
Ólafsvík
fimmtudagur 1. desember
Árlegir jólatónleikar menningar-
nefndar Snæfellsbæjar verða
haldnir í félagsheimilinu Klifi í
Ólafsvík kl. 20:00 en húsið opnar
hálftíma fyrr. Guðrún Gunnars,
Hera Björk, Karl Olgeirs og Vignir
Snær stíga á svið á koma gestum
í hinn eina sanna jólagír. Hægt
er að panta miða á netfangið
menningar nefnd@snb.is en miðar
eru einnig seldir við hurð að
kvöldi tónleika á meðan birgðir
endast. Aðgangseyrir: 3.500.-
Borgarnes
fimmtudagur 1. desember
Aðventukvöld Líflands í Borgar-
nesi. Notaleg stemning, góm-
sætar veitingar og jólatilboð á
ýmsum vörum. milli kl. 18-21.
Ólafsvík
föstudagur 2. desember
Kórarnir á Snæfellsnesi halda tón-
leika í Ólafsvíkurkirkju kl. 20:00
Aðgangseyrir: Frjáls framlög
Dalabyggð
föstudaginn 2. desember
Kvenfélagið Fjóla í samstarfi við
Sælureitinn Árblik heldur spila-
kvöld í Árbliki og hefst það kl.
20:00
Akranes
föstudagur 2. desember
ÍA og Þór Akureyri eigast við í
1. deild karla í körfuknattleik í
íþróttahúsinu á Vesturgötu og
hefst viðureignin klukkan 19.15.
Dalabyggð
laugardagur 3. desember
Slitgigtarskóli Þórfríðar heldur
námskeið sem byggir á sértækri
þjálfun og fræðslu fyrir einstak-
linga með verki frá mjaðma-
svæði og hnjám. Námskeiðið er
um fjórar klukkustundir að lengd
og er mæting upp í húsnæði RKÍ
í Búðardal (Rauða kross húsið)
kl. 12:45. Allir velkomnir. Gott ef
haft er samband við Ingibjörgu
Jóhannsdóttur varðandi mætingu
í síma 896-8315. (Ef mæting
verður það mikil að skipta þarf
um húsnæði)
Dalabyggð
laugardagur 3. desember
Léttir, heimilislegir og hátíðlegir
jólatónleikar í Dalabúð kl. 19:30.
Hægt er að panta miða í gegnum
netfangið skerdingar@gmail.com
og í gegnum síma 843-6818 eftir
kl. 16 á daginn. Einnig er hægt að
kaupa miða við innganginn en
enginn posi verður á staðnum.
Fram koma fjögur sett af syst-
kinum úr Dölunum, sem bæði
syngja og spila undir. Aðgangs-
eyrir: 3.000.-
Stykkishólmur
sunnudagur 4. desember
Hinn árlegi jólabasar kven-
félagsins Hringsins í Stykkis-
hólmi fer fram upp á Fosshót-
eli Stykkishólmi þann 4. des
milli kl. 14-16. Fullt af vörum til
sölu. Heimabakaðar kræsingar,
handunnar vörur og pakkaveiði.
Tónlistarskólinn verður einnig á
staðnum.
Dalabyggð
sunnudagur 4. desember
Jólaföndur í Árbliki milli kl. 14-18.
Snæja sér um skemmtilega
föndur stund.
Akranes
sunnudagur 4. desember
Jólagleði í Garðalundi. Göngu-
kerlingar leiða hópinn í
sögugöngu milli kl. 16-18.
Aðgangur ókeypis.
Á döfinni
Nýfæddir Vestlendingar
24. nóvember. Stúlka.
Þyngd: 2.986 gr. Lengd: 50 cm.
Foreldrar: Margrét Diljá Odds-
dóttir og Frímann Ingvarsson,
Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Hafdís
Rúnarsdóttir.
26. nóvember. Stúlka.
Þyngd: 3.824 gr. Lengd: 53 cm.
Foreldrar Aleksandra Sicagaj og
Lukasz Adam Sicagaj, Patreks-
firði. Ljósmóðir: G. Erna
Valentínusdóttir.
VEKJUM ATHYGLI!
Bæjarstjórn Akraness ! –
ER EKKI KOMINN TÍMI
TIL AÐ HLUSTA?
HVAÐ SKIPTIR YKKUR MÁLI – ER ÞAÐ VELFERÐ FÓLKS
OG VILJI ? HVAÐ STJÓRNAR YKKAR FÖR?
ÞIÐ hafið svikið loforð – þið misnotið vald með hroka - þið talið
niður til og hundsið skoðanir fólks!
HVAÐ ER SAMFÉLAG ÁN AÐGREININGAR?
ÞIÐ tókuð ákvörðun um innra skipulag Fjöliðjunnar án aðkomu
þeirra sem þar starfa og þekkja best!
EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!
ÞIÐ tókuð ákvörðun um að HLUTI VINNUSTAÐARINS Fjöliðj-
unnar væri best settur í samfélagsmiðstöð, á neðstu hæð í blokk með
tómstundastarfi barna og unglinga.
ÞIÐ spyrjið ekki og takið ekki tillit til vilja og skoðana þeirra sem
málið varðar. SAMNINGUR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
ÞIÐ spyrjið ekki og kynnið ykkur ekki hugmyndafræði, reglur og
skyldur þær sem Fjöliðjan vinnur eftir.
ÞIÐ segið leiðbeinendum Fjöliðjunnar að hlýða ákvörðun stjórn-
valdsins eða finna sér aðra vinnu.
VINNUSTAÐURINN: Fjöliðjan & Búkolla telur 78 starfsmenn –
skiptir rödd þeirra engu máli?
FJÖLIÐJAN: Sinnir magnaðri starfsemi – er fyrirmynd annarra
vinnustaða á landsvísu – er eftirsótt.
FJÖLIÐJAN ER: Vinnustaður sem sinnir fjölbreyttum verkefnum,
pökkun o.fl. fyrir fjölda fyrirtækja á landinu, sinnir endurvinnslu, rekur
Búkollu nytjamarkað, rekur Gróðurhús, Smiðju. Er fyrirmynd annarra
sambærilegra staða. Er og á að vera stolt allra Skagamanna
FJÖLIÐJAN í dag var EKKI búin til af bæjarstjórninni
FJÖLIÐJAN í dag var þróuð og mótuð af starfsmönnum, leiðbein-
endum og stjórnendum hennar
Hver á að ákvarða um FRAMTÍÐ FJÖLIÐJUNNAR?
FÓLKIÐ SEM ÞAR STARFAR OG ÞRÓAÐI OG MÓTAÐI
STARFIÐ!
VIÐ HVETJUM YKKUR TIL AÐ ENDURSKOÐA ÞESSA
ÁKVÖRÐUN ÞVÍ KRAFA OKKAR ER EINFÖLD;
FJÖLIÐJAN ÖLL SAMAN Í EINU HÚSI!!
Aðsend grein frá leiðbeinendum Fjöliðjunnar á Akranesi
Getir þú barn þá
birtist það hér,
þ.e.a.s. barnið!
WWW.SKESSUHORN.IS