Skessuhorn - 30.11.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 202212
Snjólfur Björnsson og Björg
Gunnarsdóttir tóku í haust fyrsta
skrefið að því að flytja í Stykkis-
hólm þegar Snjólfur opnaði þar
sjúkraþjálfunarstofu. Þar vinnur
hann tvo daga í viku en vinnuvik-
una klárar hann á sjúkraþjálfunar-
stofunni Stíganda í Reykjavík. Eftir
áramót hyggst hann vera þrjá daga
í viku í Stykkishólmi og stefna þau
Björg á að flytja þangað fyrir alvöru
næsta sumar, en nú eru þau búsett
í Kópavogi. Saman eiga þau sex
mánaða dóttur, Þórunni Maríu, og
hafa þær Björg fylgt Snjólfi til og
frá Stykkishólmi hér um bil í hverri
viku nú í haust og heldur fjöl-
skyldan því úti tveimur heimilum.
Þau segja ferðalögin á milli hafa
gengið vel í haust en hlakka til þess
að vera alflutt. Björg og Snjólfur hafa
alla tíð verið mjög virk í íþróttum
og sjá þau fyrir sér að taka virkan
þátt í að efla það góða íþróttastarf
sem þegar er í Stykkishólmi. Þau
segja fólkið í bæjarfélaginu vera
afar hvetjandi og eru ákveðin í að
koma þar inn með ferskan blæ og
gefa af sér til samfélagsins.
Ætlaði aldrei að
læra yfir páskana
Snjólfur fæddist á spítalanum í
Stykkishólmi árið 1994. Hann ólst
upp í Stykkishólmi, lauk þar leik-
og grunnskóla og útskrifaðist sem
stúdent úr Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga í Grundarfirði. Árið 2015
flutti hann svo til Reykjavíkur til að
fara í háskólanám í sjúkraþjálfun.
„Ég ætlaði alls ekki að verða sjúkra-
þjálfari,“ segir Snjólfur þegar
blaðamaður spyr hann út í náms-
val. „Systir mín er sjúkraþjálfari og
þegar hún var í náminu kom hún
eitt sinn heim yfir páskana og var
að læra. Og þá hugsaði ég með mér
að það væri eitthvað sem ég ætlaði
aldrei að gera, að læra yfir páskana,
mér fannst það alveg fráleitt,“ segir
Snjólfur og hlær.
En að loknum framhaldsskóla
skráði hann sig í einkaþjálfara-
nám hjá ÍAK einkum til þess að
læra betur hvernig hann ætti að
styrkja sjálfan sig en hann hefur alla
tíð stundað íþróttir af krafti, bæði
frjálsar íþróttir og körfubolta. „Svo
í framhaldinu ákvað ég að fara í
inntökuprófið í sjúkraþjálfaranám-
inu því ég hafði áhuga á að læra
meira þessu tengt. Og síðan bara
er ég sjúkraþjálfari,“ segir Snjólfur
sem útskrifaðist úr fimm ára sjúkra-
þjálfaranámi árið 2020 og hefur
síðan þá unnið á sjúkraþjálfunar-
stofunni Stíganda.
Þarf ekki að
vera endastöð
Björg er uppalin í Garðabæ, hún er
kennari að mennt og hefur undan-
farin tvö ár kennt við Smáraskóla
í Kópavogi. Hún æfði lengi vel
frjálsar íþróttir hjá ÍR með aðalá-
herslu á hlaup og segja má að það
hafi verið íþróttirnar sem leiddu
þau Snjólf saman. „Við kynntumst
sem krakkar þegar við vorum saman
í úrvalshópsbúðum í frjálsum
íþróttum og héldum alltaf smá
sambandi eftir það,“ segir Björg
en þau tóku svo upp þráðinn þegar
Snjólfur flutti til Reykjavíkur og hafa
nú verið í sambandi í sjö ár. „Síðan
við byrjuðum saman hefur það bara
alltaf verið inni í myndinni að flytja
hingað í Stykkishólm. Það er vissu-
lega nýtt fyrir mér að flytja út á land
en mér finnst Stykkishólmur mjög
heillandi staður og ég held að það
séu mörg tækifæri hérna. Svo erum
við bara að prófa þetta og þetta þarf
alls ekkert að vera nein endastöð,“
segir Björg.
Geymsla verður að
sjúkraþjálfunarstofu
Sjúkraþjálfun Stykkishólms var
opnuð í Íþróttamiðstöðinni 12.
september sl. Þar hefur Snjólfur
aðstöðu í herbergi sem gegnt hefur
misjöfnu hlutverki en var síðast
helst nýtt sem geymslurými. Auk
þess hefur hann aðgengi að lík-
amsræktarsal stöðvarinnar og getur
sinnt skjólstæðingum sínum þar.
„Ég sá þarna tækifæri til þess að
nýta þetta rými betur en þegar var
gert og ákvað að opna hér sjúkra-
þjálfunarstöð. Bæði af því mig lang-
aði til þess að flytja heim en líka til
þess að hjálpa aðeins til hérna í þessu
bæjarfélagi,“ segir Snjólfur og við-
tökurnar hafa ekki látið á sér standa.
Sjúkraþjálfun Stykkishólms er
opin tvo daga í viku, mánudaga og
þriðjudaga, og nær Snjólfur að taka
á móti um 10-15 manns á hverjum
degi. Dagarnir eru því ansi þétt-
bókaðir. Þar að auki sér hann um
styrktarþjálfun fyrir yngri flokk-
ana í körfubolta í Stykkishólmi, og
þjálfar þá einu sinni í viku, á þriðju-
dagsmorgnum. „Þegar ég var að
græja herbergið hérna í Íþrótta-
miðstöðinni í haust þá var bara
potað í mig og ég spurður hvort
ég gæti tekið þetta að mér. Og ég
ákvað auðvitað að gera það, en eini
tíminn sem ég hafði fyrir þetta er
eldsnemma á þriðjudagsmorgnum,
áður en vinna hefst hjá mér og skóli
hjá krökkunum,“ segir Snjólfur.
Leitar leiða
til að hjálpa fólki
„Planið var ekkert endilega að
lenda í þessu herbergi hér í Stykk-
ishólmi þótt ég hafi séð að það
væri möguleiki,“ segir Snjólfur
aðspurður um vinnuna en hann
hittir núna fólk af öllu Snæfellsnes-
inu. Hann segir vandamálin vera
misjöfn sem skjólstæðingar hans
eru að fást við og það haldi honum
á tánum. „Verandi með stofu hér
þarf ég að geta gengið í öll verk, ef
svo má segja. Til mín kemur fólk
með alls kyns vandamál sem veldur
því að ég verð fróður um ýmis
mál sem ég hefði kannski aldrei
fengið til mín inn á stofu í Reykja-
vík. Kannski er ég þá ekki frábær
í neinu, því ég hef ekki sérhæft
mig, en ég held að það sé skiln-
ingur hér fyrir því að ég leita leiða
til að hjálpa fólki. Það er kannski
ein stærsta ástæðan fyrir því að það
hafa verið mjög góðar viðtökur því
ég sýni að ég er að reyna, ef það er
eitthvað sem ég hef litla þekkingu á
þá afla ég hennar og reyni að mæta
fólki, því það er kannski ekki í boði
fyrir það fólk að fara annað.“
Ekki gaman að
vera með biðlista
„Mér finnst mjög spennandi að vera
í þessum fasa, að byggja upp fyrir-
tæki, og ég gæti það náttúrulega
ekki nema með þeim stuðningi sem
ég fæ frá Björgu,“ segir Snjólfur en
Björg gengur í ýmis verk til þess að
hjálpa honum í þessu verkefni. Það
hefur hentað mjög vel að vera með
opið hér tvo daga í viku og ég sé að
ég hef reiknað rétt með að ákveða
að vera þrjá daga í viku eftir áramót
því það er farinn að myndast smá
biðlisti,“ segir Snjólfur og bætir
við að honum finnist ekki sérlega
gaman að vera með biðlista, hann
vilji geta komið öllum að en það
sem standi í vegi fyrir því sé að hann
geti ekki unnið allan sólarhringinn.
Skemmtilegast að
vinna með börnum
Í haust hefur Björg verið í fæðingar-
orlofi með Þórunni Maríu og hafa
þær mæðgur átt rólegan tíma í
Hólminum á meðan Snjólfur er í
vinnu. Björg vinnur sem kennari
í Smáraskóla í Kópavogi og segir
hún að draumurinn sé að fá vinnu
í grunnskólanum í Stykkishólmi
þegar hún er flutt þangað. „Síðustu
tvö ár er ég búin að vinna í mjög
stórum skóla svo ég sé fyrir mér
aðeins persónulegri vinnu í grunn-
skólanum hér, ef ég fengi hana. Það
er örugglega allt öðruvísi en mig
langar að prófa það,“ segir Björg
og bætir við að ef það gangi ekki
upp sé hún opin fyrir flestu öðru.
Skemmtilegast finnist henni þó að
vinna með börnum, hvort sem er
við að kenna eða þjálfa.
Samfélagið er hvetjandi
Snjólfur sér fyrir sér að vera inn-
viklaður í körfuboltann í Stykkis-
hólmi þegar hann er alveg fluttur
þangað næsta sumar en hann
æfir nú og spilar körfubolta með
Ármanni í Reykjavík. Þau Björg
hafa stórar hugmyndir um hvernig
hægt sé að lífga upp á bæjarlífið í
Hólminum og segja það sammerkt
með heimamönnum að þeir taki
þátt í því sem í boði er. „Mér finnst
andrúmsloftið í bænum vera gott
og það er mikið af ungu fólki að
flytja heim í Hólminn. Samfélagið
Að gera góða hluti og gefa til baka
Íþróttirnar leiddu þau Snjólf og Björgu saman
– en nú setja þau setja stefnuna á Stykkishólm
Snjólfur og Björg með dóttur sína, Þórunni Maríu. Ljósm. gbþ
Björg hélt frjálsíþróttanámskeið í Stykkishólmi fyrr í haust fyrir börn í 1.-4. bekk.
Þórunn María fær sér blund í Hólmin-
um í blíðskaparveðri.
Frá útskriftardegi Snjólfs úr sjúkra-
þjálfaranámi.
Snjólfur æfir og spilar með Ármanni í
Reykjavík.
Ljósm. Páll Jóhannesson.