Skessuhorn - 30.11.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 11
Fyrsti
sunnudagur
í aðventu í
Grundarfirði
Aðventan í Grundarfirði var með
hefðbundnu sniði í ár, það er að
segja miðað við hvernig þetta var
fyrir tíma Covid. Nú var hægt
að halda jólamarkað og gat fólk
komið saman og gætt sér á dýrindis
súkkulaði og vöfflum hjá Kven-
félaginu Gleym mér ei. Fjöldi sölu-
bása var í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar og var margt forvitnilegt
að finna þar. Þá voru úrslit í ljós-
myndasamkeppni Grundarfjarðar
gerð kunnug, söngatriði og dregið
í hinu árlega leikfangahappdrætti
kvenfélagsins.
tfk
Mæðgurnar Ingibjörg Sigurðardóttir og Helga Sjöfn Ólafsdóttir við sölubás sinn
þar sem mátti finna margt skemmtilegt.
Systurnar Anna Björg, Berglind og Helena María Jónsdætur við sölubás Stolta Arts.
Verðlaunahafar í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar. F.v. Sverrir Karlsson
sem hlaut þriðja sætið, Elínborg Þorsteinsdóttir sem hafnaði í öðru sæti, Marie
Mrusczok sem tók við verðlaunum fyrir hönd Stefan Wrabetz sem varð í fyrsta
sæti og svo Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.
Jólasveinarnir létu sig ekki vanta þegar kveikt var á jólatrénu í Grundarfirði.
Kátir krakkar stilltu sér upp með jólasveinunum þremur sem höfðu viðkomu í Grundarfirði. Verðlaunamyndina í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2022 tók Stefan Wrabetz.