Skessuhorn - 30.11.2022, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Það hefur varla farið fram hjá
neinum að heimsmeistarakeppnin
í fótbolta karla er hafin (HM). Af
því tilefni var gerð könnun meðal
nemenda FVA á rafiðnaðar-
braut. Spáð var hvaða land myndi
standa sig best og verða sigur-
vegari. Á meðan nemendur hugs-
uðu sig um var tekin umræða um
réttlætingu þess að halda keppn-
ina í Katar. Mikil mismunun er í
menningunni. Konur hafa ekki
sama rétt og karlar. Hinsegin fólk
má t.d. ekki leiðast opinberlega.
Knattspyrnuvellirnir hafa verið
reistir af erlendum farandverka-
mönnum, vegabréf tekið af þeim
og laun þeirra lág og þeir hafa tak-
markaðan rétt. Margir nemendur
voru upplýstir um þessa mismunun
og vissu til þess að skv. opinberum
tölum í Katar hafa 6500 verka-
menn látið lífið í byggingafram-
kvæmdum fyrir HM.
Um þriðjungur nemenda ætla
ekki að horfa á
HM. Ýmist vegna
misréttisins eða
að þeir hafa ekki
snefil af áhuga á
knattspyrnu. Um
fjórðungur nem-
enda hefur mik-
inn áhuga og ætla
ekki að missa af
leikjum. Aðrir
ætla að horfa á
einn og einn leik en ætla að horfa
í lok keppninnar þegar mest
spennandi leikirnir fara fram.
Hvað sem líður afstöðu nem-
enda í rafvirkjun í FVA til HM
komst enginn upp með að nefna
ekki liðið/landið sem þeir halda
með. Það má heldur ekki gleyma
fagurfræðinni í íþróttinni en
knattspyrnuíþróttin er væntan-
lega vinsælust í heimi. Aðeins ein
íþrótt er vinsælli hér á Íslandi en
það er sund. Þau sem sækja sund-
laugar landsins eru fjölmennari
en allir þeir sem iðka knattspyrnu
eða kaupa sig inn á leiki. Skráning
á sundstaði landsins staðfesta það.
Niðurstöður nemenda raf-
iðnaðardeildarinnar má finna í
meðfylgjandi grafi.
Áfram Ísland!
Trausti Gylfason.
Höf. er kennari í FVA
Aðventa og jólin eru að koma í
allri sinni dýrð, samveran lýsir upp
skammdegið, gleðin er við völd og
sem fyrr bregðumst við flest öll við
með því að leggjast í mikla neyslu.
Það má auðveldlega halda því fram
að líklega sé aldrei meiri úrgangur
frá heimilum og fyrirtækjum lands-
manna en einmitt á þessum árstíma.
Um komandi áramót taka ný lög
um söfnun á meðhöndlun úrgangs
í landinu gildi, eða hringrásarhag-
kerfislögin eins og þau eru kölluð.
Þessi lög voru samþykkt á vorþingi
2021. Markmiðið með innleiðingu
hringrásarhagkerfisins er að lág-
marka auðlindanotkun og þar með
úrgangsmyndum.
Ábyrgðin er allra
Sveitarstjórnir fara með stjórnsýslu
úrgangsmála í landinu en ábyrgðin
er einnig á hendi ríkisins, þ.e. að inn-
viðir séu til staðar og að móta laga-
umhverfi sem auðveldar innleiðingu
hringrásarhagkerfisins. Sveitar félög
um allt land hafa unnið að inn-
leiðingunni og eru þau mislangt á
veg komin enda er hér um miklar
breytingar að ræða. Um helmingur
sveitarfélaga hefur nú þegar tekist
að innleiða lögbundnar samræmdar
merkingar fyrir úrgangsflokka og
þar hafa fámenn sveitarfélög ekki
staðið sig verr í innleiðingunni en
þau stóru. Sveitarfélög og ríki hafa
ríka ábyrgð við innleiðinguna en
við íbúarnir höfum einnig mikil-
vægt hlutverk við að tryggja að inn-
leiðingin gangi vel. Við erum jú öll
hluti af hringrásinni.
Plast er ekki sama og plast
Að innleiðingu lokinni er gert ráð
fyrir að íbúar geti flokkað úrgang
sinn enn frekar en nú er gert og þá
í fleiri flokka. Þá flokkast samsvar-
andi efni líkt og plast í fleiri efnis-
flokka, er það talið nauðsynlegt til
þess að endurvinnsla sé betur mögu-
leg. Samhliða þessu er nauðsyn-
legt að innleiða samræmda merk-
ingu efna. Þá er það ekki nóg að auka
ábyrgð heimila og fyrirtækja heldur
þarf einnig að auka ábyrgð framleið-
enda í að lágmarka og bæta umbúðir
með það að sjónarmiði að neytendur
geti skilað úrgangi og umbúðum til
endurvinnslu á réttan hátt. Mark-
miðið þarf alltaf að vera að auka
endurnýtingu og lágmarka urðun, en
í dag er því miður verið að urða mikil
verðmæti sem felast í umbúðum og
fleiru sem hægt væri að endurvinna
inn í hringráshagkerfinu.
Nýsköpun er lausn
Aukin umræða um loftlagsmál og
innleiðing hringrásarhagkerfisins
hefur þegar skilað sér í aukinni ný-
sköpun í efnisvinnslu úrgangs. Í því
samhengi vil ég nefna verkefnið
Bláma á Vestfjörðum þar sem unnið
er með hugmyndir á framleiðslu
metangass úr lífrænum úrgangi
sem fellur til í fjórðungnum og er
þónokkur. En lífrænn úrgangur
hefur aukist verulega samhliða upp-
byggingu á fiskeldi og framleiða má
með honum orkugjafa sem þegar
skortir á svæðinu. Hér er um að
ræða verkefni sem er algjörlega sam-
hljóða markmiðum hringrásarhag-
kerfisins og spennandi verður að
fylgjast með framgangi þess.
Hlutverk okkar
er mikilvægt
Líkt og kemur fram í texta sem við öll
þekkjum örugglega flest þá erum við
aðeins gestir og hótel okkar er Jörðin.
Við eigum aðeins eina Jörð og við
eigum ávallt að miða að því að hún
verði áfram byggileg fyrir komandi
kynslóðir. Þá er það ábyrgð okkar
sem gesta á þessari Jörð að taka þátt í
að minnka þann úrgang sem urðaður
er og taka þátt í möguleikum á meiri
endurvinnslu. Okkur ber samfélags-
leg skylda til þess að bregðast við í
loftlags- og umhverfismálum. Með
hringrásarhagkerfinu þurfum við að
taka upp nýjan lífsstíl sem felur í sér
að endurnýta þau hráefni sem við
höfum með fjölbreyttum hætti. Það
er ekki lengur í boði að henda öllu
rusli á haugana heldur þurfum við
öll að leggja hendur á plóg til þess
að breyta hugarfari og ná þannig
jákvæðum árangri til framtíðar.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Höf. er þingmaður Framsóknar í
NV kjördæmi.
Pennagrein Pennagrein
HM - Fótbolti
- Siðferði
Út með ruslið!