Fréttablaðið - 30.03.2023, Síða 9
Annað árið í röð koma allir
helstu fjárfestar landsins
saman á Siglufirði til fundar
við frumkvöðla í auðlinda-,
orku- og umhverfismálum.
Ráðherra nýsköpunar segir
hátíðina gegna lykilhlutverki
í að skapa Íslandi sérstöðu í
loftslagsmálum.
Fjárfestahátíðin Norðanátt var
haldin í fyrsta skipti í fyrri en þá var
áherslan eingöngu á sprotaverkefni
á Norðurlandi. Vegna þess hversu
vel tókst til fyrir ári var ákveðið
að stækka hátíðina verulega í ár og
höfða til frumkvöðla og fjárfesta
hvaðanæva af landinu.
Ef til vill er það til marks um
gróskuna í grænni nýsköpun um
allt land að viðbrögð fjárfesta og
frumkvöðla voru slík að mun færri
komust að en vildu.
Sérstök valnefnd var svo fengin
til að velja þau þrettán verkefni sem
frumkvöðlar fengu að kynna fyrir
forsvarsfólki fjárfestingarsjóða og
sjálfstæðum fjárfestum.
Kerfin eru of flókin
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráð-
herra háskóla, iðnaðar og nýsköp-
unar, segir fjárfestahátíðina Norða-
nátt þegar búna að sýna fram á hve
mikil þörf sé á stóraukinni áherslu á
stuðning við sprota og frumkvöðla
um allt land.
„Það að tengja allar þessar ný-
sköpunarlausnir af öllu landinu við
fjárfesta er liður í því að nýta auð-
lindir okkar betur og grípa tæki-
færin sem blasa við okkur á tímum
þar sem allur heimurinn er að reyna
að leysa sömu loftslagsverkefnin.
Þetta er gríðarlega mikilvægt og við
Íslendingar þurfum að átta okkur á
því að við getum gert miklu betur í
að nýta öll þessi tækifæri. Sérstak-
lega úti á landi, í námunda við auð-
lindirnar okkar.
Og það að fá allt þetta fólk hingað
til Siglufjarðar til að sýna hvað
frumkvöðlar um allt land eru kröft-
ugir og í mikilli sókn er ómetan-
legt,“ segir Áslaug.
Gróska grænnar nýsköpunar á Siglufirði
Aðstandendur
Norðanáttar
ásamt Áslaugu
Örnu Sigur-
björnsdóttur,
ráðherra há-
skóla-, iðnaðar
og nýsköp-
unarmála og
Guðlaugi Þór
Þórðarsyni,
ráðherra lofts-
lags-, orku- og
umhverfismála.
MYNDir/ANÍTA
ELDJÁrN
Færri komust að
en vildu á Fjár-
festahátíðina á
Siglufirði í ár.
En hún segir nýja tíma og aukna
sókn í nýsköpun á Íslandi ekki bara
snúast um frumkvöðlana sjálfa eða
fjárfestana. Hið opinbera þurfi að
líta dálítið stíft í spegilinn og ein-
henda sér í að einfalda regluverk og
rangala sem hafa einkennt íslenskt
styrkjaumhverfi til þessa.
„Það verður bara að segjast eins
og er að við höfum komið okkur
upp of f lóknu og þungu kerfi til að
styðja við alla þessa verðmætasköp-
un sem felst í öflugu frumkvöðuls-
starfi. Og það er líka of kostnaðar-
samt því við erum að verja alltof
háum fjárhæðum í umsýslukerfi
styrkjakerfanna.“
Þessu segist Áslaug vilja breyta og
hefur sett sér það markmið sem ráð-
herra nýsköpunar að gera styrkja-
umhverfið sem mæti íslenskum
frumkvöðlum einfaldara.
„Hið opinbera er með áttatíu sjóði
á sínu forræði. Þetta er allt of mikið
og eiginlega algjör frumskógur.
Umsýslukostnaðurinn við þessa
sjóði er hátt í 800 milljónir króna.
Það er að mínu viti ekki góð nýting
á fjármunum.
Ég hef verið ófeimin við að segja
að það verði að vera algjört for-
gangsmál í mínu ráðuneyti að ein-
falda þetta kerfi og styðja þannig
betur við öll þau frábæru sprota-
fyrirtæki sem við sjáum spretta upp.
Við verðum að einfalda þeim leiðina
í gegnum þennan frumskóg.“
Hátíð sem skiptir sköpum
Hún segir þetta helsta lærdóminn
sem hún taki með sér úr samtölum
og við fólk sem lifir og hrærist í
nýsköpunarumhverfinu.
Fjárfestahátíðin á Siglufirði sýni,
svo ekki verði um villst, að ef hið
opinbera einfaldi sínar snúruflækjur
þá muni ekki standa á frumkvöðlum
eða fjárfestum að skapa verðmæti
og sjá fólki fyrir lausnum sem eigi
eftir að reynast ómetanlegar fyrir
þjóð sem er á fleygiferð inn í græna
framtíð.
„En svona heilt yfir þá verð ég að
segja að maður fyllist eldmóði af að
vera svona innan um allt þetta frá-
bæra og hugvitssama fólk hér á Siglu-
firði.
Öll þessi verkefni, allar þessar hug-
myndir. Þetta er með hreinum ólík-
indum. Það er gríðarlegur kraftur í
íslenskri nýsköpun og því hvernig
við Íslendingar ætlum að nálgast
bætta nýtingu auðlindanna. Lykill-
inn er í hugvitinu og fólkinu. Það
hefur fjárfestahátíðin hér á Siglufirði
sannað,“ segir Áslaug Arna. n
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars
@frettabladid.is
Fréttablaðið markaðurinn 930. mars 2023
FimmTuDaGur