Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2023, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 30.03.2023, Qupperneq 21
Með aðild að Evrópu- samband- inu yrði yfirstjórn Íslands færð til erlendra manna. Nú er að ganga í garð „skerðinganna óvissu tími“ í lífi ellilífeyristaka. Eldra fólk á eftirlaunum hjá Tryggingastofnun ríkisins skilar inn tekjuáætlun til stofnunarinnar í árslok fyrir komandi ár. Þar tíunda þeir samviskusamlega væntanlegar tekjur sínar sem oftast eru tekjur úr lífeyrissjóði og örlitlar fjármagns- tekjur af sparireikningum sínum sem eru oftar en ekki neikvæðir vextir sem þó teljast til tekna í vænt- anlegu uppgjöri. Þessir litlu vextir eru reiknaðir þeim til skerðingar á ellilífeyri að fullu. Vísitölutenging lífeyrissjóðsgreiðslna skilar þeim örlítilli hækkun mánaðarlega yfir árið. Yfirleitt er tekjuáætlun ekki flóknari en það. Síðan geta komið óvæntar tekjur, líkt og hjá öllum öðrum. Eldra fólk sem eru lífeyristakar reynir að skila samviskusamlega réttri tekjuáætlun fyrir komandi ár og tekur yfirleitt tillit til áætlaðra hækkana á greiðslum úr lífeyris- sjóði og jafnvel hana ríflegri en ætla má, til að hafa vaðið fyrir neðan sig. Síðan hefjast reglulegar greiðslur frá Tryggingastofnun og um leið óvissa um hvort tekjuáætlunin standist gagnvart Tryggingastofnun og útreikningi hennar á eftirlaunum með tilliti til skatta og skerðinga. Greiðslur frá TR berast mánaðar- lega á reikning eftirlaunatakans án teljandi upplýsinga um hvernig þær eru reiknaðar. Nagandi óvissa Þegar lífeyristakinn hefur síðan skilað inn skattskýrslu sinni fyrir tekjuárið fer af stað eftir á útreikn- ingur hjá Tryggingastofnun á hvort allt hafi nú verið rétt. Hvort stofn- unin hafi ofgreitt til eldri borgarans – eða vangreitt. Hið síðarnefnda er miklu mun fátíðara að mati Trygg- ingastofnunar sjálfrar. Hún hefur einstakt lag á að skilja lög þrengsta skilningi – eftirlaunamanninum í óhag. Sú tíð er nú að koma, hin mikla óvissutíð uppgjörs. Því stóri dómur fellur hjá Trygg- ingastofnun um einu og hálfu ári eftir að eftirlaunatakinn skilaði inn tekjuáætlun sinni fyrir árið sem liðið er. Margir eldri borgarar kvíða þessu uppgjöri. Fæstir búast við jákvæðum úrskurði því oftast er það svo að einhvern veginn tekst reiknimeisturum kerfisins að finna út í útreikningum sínum að lífeyris- takinn hafi dregið sér fé frá Trygg- ingastofnun, ef svo má segja, og hann skuldi stofnuninni. Ógagnsæi Hið ógagnsæja kerfi sem búið hefur verið til, og ellilífeyrir frá Trygg- ingastofnun grundvallast á, veldur mörgum lífeyristakanum veru- legum kvíða í löngum aðdraganda uppgjörsins og síðan oft örvilnun, reiði og vanmætti þegar stóri dómur fellur. Þó svo að eftirlaunamaðurinn efist um niðurstöðu Trygginga- stofnunar í uppgjöri hennar á hann erfitt með að beita sér í málinu. Hann mætir her lögfræðinga sem eru á launum hjá stofnuninni þegar hann skýtur máli sínu til úrskurðar- nefndar velferðarmála. Stendur þá einn á móti þeim öllum. Fáir treysta sér í það ferli einir og óstuddir. Sundurliðaður launaseðill frá TR Það er með ólíkindum að eldra fólk sem fær eftirlaun frá Trygginga- stofnun skuli ekki fá sundurliðaðan launaseðil um hver mánaðamót. Á launaseðlinum ætti að koma fram hver full réttindi hans eru, bæði í krónutölu sem og prósentum. Því réttindi fólks eru misjöfn, s.s. þess sem hefur lífeyristöku frá TR við 67 ára aldur miðað við þann sem hefur töku fyrr, t.d. við 65 ára aldur og tekur á sig varanlega skerðingu líf- eyris. Eins getur lífeyristaki ákveð- ið að fresta lífeyristöku allt til 80 ára aldurs og ætti því að uppskera varanlega hækkun, bæði í krónum talið og prósentum. Því er réttlætismál að eftir- launatakinn fái vel sundurliðaðar greiðslur, eins og almennt gerist á vinnumarkaði. Allar grunntölur útreikninga til skerðinga koma frá tekjuáætlun eftirlaunatakans og hefur TR þær upplýsingar allar sem hún síðan vinnur með. Því er auð- velt fyrir TR að vinna með þessar tölur svo skýrt sé fyrir eftirlauna- takann hvernig skerðingar virka á full ellilífeyrisréttindi. Hægur leikur væri að forrita launaseðilinn þannig að þar komi fram lið fyrir lið hvernig einstakar greiðslur frá lífeyrissjóðum skerða grunnupp- hæðina sem og aðrar tekjur. Að viðbættu þessu síðan frádregnir skattar og gjöld. Ef slíkur launaseðill birtist eftir- launatakanum um hver mánaða- mót ætti hann auðveldara með að bregðast fyrr við og ef þörf væri á að uppfæra tekjuáætlun sína til að minnka hugsanlega örvilnun í loka- uppgjöri sem margir kvíða fyrir. Því lífeyristakinn hefur rétt á að lagfæra tekjuáætlun sína einu sinni í mán- uði ef hann telur þörf á því. Hvaða launamaður á vinnu- markaði myndi láta bjóða sér svona ógagnsæja launaseðla eins og lífeyristökum er boðið upp á af Tryggingastofnun ríkisins? Greinilega sundurliðaður launa- seðill og gagnsæi í launaútreikningi er sjálfsagt mál á almennum vinnu- markaði. Af hverju ekki hjá Trygg- ingastofnun ríkisins? Þetta vinnulag myndi auðvelda mörgum eftirlaunatakanum lífið og létta á símaveri TR um hver mánaðamót. Öllum til hagsbóta, bæði eftirlaunatökum og starfs- fólki TR. n Ógagnsæi eftirlauna eldri borgara Jón Steindór Valdimarsson reynir nýverið í Fréttablaðinu að safna fólki til atkvæðagreiðslu um hvort óska eigi eftir innlimun Íslands í Evrópusambandið, sem á tungu innvígðra heitir að „hefja aðildar- viðræður við Evrópusambandið“. Hver getur svo sem verið á móti því að menn ræðist við? Segjum svo að ákveðið verði að „hefja viðræð- ur“. Annar aðilinn í samtalinu yrði vitaskuld ríkisstjórn Íslands sem saman stendur af stjórnmálaflokk- um sem allir hafa lofað kjósendum sínum að standa vörð um fullveldi landsins. Hvernig halda menn að samtalið yrði? Líklega svipað og ef krakki kæmi peningalaus í fiskbúð til að kaupa brennivín. Kannski þætti Evrópusambandinu í góðu lagi að taka þátt í svoleiðis spjalli í nokkur ár eða áratugi. Hafa svo allt tilbúið fyrir innlimun ef það skyldi verða hrun og það mundi myndast nokkurra vikna tækifæri til að blása til atkvæðagreiðslu um inn- limun rétt á meðan þjóðin væri að átta sig. Það væri óneitanlega sér- kennilegt lýðræði. Með aðild að Evrópusamband- inu yrði yfirstjórn Íslands færð til erlendra manna. Hlutur Íslendinga í umboði þeirra manna er núll komma smáræði. Rétt nálgun á því er núll. Stærri hlutur stendur ekki til boða, enda væri það ólýðræðis- legt. Það væri ekki mikið lýðræði í því að núll prósent manna réði miklu meiru en sem næmi núll prósenti. Það má því segja að í nafni lýðræðis hafi menn uppi kröfu um afnám lýðræðis. Það skyldi svo ekki gleymast að það er ekki hægt að taka upp nýtt stjórnarfar af þessu tagi til reynslu í skamman tíma, því þegar búið að af henda völdin úr landinu verða þau ekki auðveld- lega endurheimt. n Lýðræðisleg krafa um afnám lýðræðis Viðar Eggertsson varaþingmaður Samfylkingarinn- ar, jafnaðarflokks Íslands Það er með ólíkind- um að eldra fólk sem fær eftirlaun frá Trygg- ingastofnun skuli ekki fá sundurliðaðan launaseðil um hver mánaðamót. Haraldur Ólafsson formaður Heims- sýnar, samtaka um fullveldi Íslands FréttabLaðið skoðun 1330. mars 2023 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.